Freyr

Volume

Freyr - 15.04.1990, Page 29

Freyr - 15.04.1990, Page 29
Aðalfundur Mjólkursamsölunnar í Rcykjavík 1990 Aðalfundur Mjólkursamsölunnar í Reykjavík árið 1990 var haldinn 16. mars sl. Fundinn sóttu sextán kjörnir fulltrúar úr röðum bœnda, þ.e. fjórir fyrir hönd hvers mjólkursam- Iags sem er aðili að fyrirtœkinu, þ.e. Mjólkurbús Flóamanna, Mjólkursamlags Kjalar- nesþings, Mjólkursamlagsins í Borgarnesi og Mjólkursamlagsins í Búðardal. Auk þess sat fundinn stjórn Sam- sölunnar, nokkrir starfsmenn, endurskoðendur og gestir. Rekstur Mjólkursamsölunnar gekk vel á árinu 1989 MS velti tæpum 3,2 milljörðum króna í fyrra og jókst veltan um 20%. Skuldir nema rúmum 983 milljónum króna en eigið fé telur 1720 milljarða og hefur aukist um 335 milljónir á milli ára. Eignir eru metnar á 2,7 milljarða króna. Skuldir fyrirtækisins lækkuðu og eiginfjárstaða þess styrktist. Sölu- árangur var einnig góður árið 1989. Eins og búist var við minnk- aði sala á fullfeitri nýmjólk frá fyrra ári eða um 1,5% en jókst á léttmjólk um 10,5% og á undan- rennu um 10,2%. Þrátt fyrir til- komu þykkmjólkurinnar var 5,5% aukninga á jógúrtsölu. Þá allt að því þrefaldaðist salan á rjómaskyri og hún jókst um fimmtung á ávaxtaskyri, svo að dæmi séu nefnd. Nýjungar á borð við eðaljógúrt, smámál, að þykk- mjólkinni ógleymdri, féllu í góðan jarðveg. Virkur fullvirðisréttur dugði ekki neyslunni Á síðasta verðlagsári var fullvirðis- réttur Fyrsta sölusvæðis 54,7 millj- ónir lítra. Vegna aðgerða Fram- leiðnisjóðs, greiðslna ríkisins fyrir ónotaðan rétt og tilfærslna milli ára varð virkur réttur þó ekki meiri en 51,6 milljónir lítra. Heildar- framleiðslan varð 52,2 milljónir lítra eða 590 þúsund lítrar umfram virkan rétt. Mjólkurframleiðsla með alminnsta móti Magnús Sigurðsson, stjórnarfor- maður, sagði að framleiðsla mjólkur hefði í fyrra minnkað um 2 milljónir lítra, eða 4% miðað við árið áður. Að sögn Magnúsar dugði framleiðsla svæðisins vart til að fullnægja kröfum markaðarins og stafaði það ugglaust fyrst og fremst af lélegum gæðum fóðurs sökum slæms árferðis. Auka þyrfti mjólkurframleiðslu um 1,5 til 2 milljónir lítra á ári svo að ekki yrði hætta á mjólkurskorti. Lækkun mjólkurverðs brýn Guðlaugur Björgvinsson, for- stjóri, vék í máli sínu að nauðsyn þess að lækka heildarútgjöld mjólkuriðnaðarins og gera þar með verðlækkun vörunnar mögu- lega. Eins mætti lækka milliliða- kostnað með raunhæfum leiðum í hagræðingu. Hann taldi að eftir sem áður yrði ekki litið fram hjá þeirri staðreynd að minnkandi mjólkurframleiðsla hefði óhjá- kvæmilega þyngt rekstur samlag- anna. Einnig bæri að hafa í huga að síharðnandi samkeppni mjólkur- vara við önnur matvæli og drykkj- arvörur þyngdi róðurinn. Meðal mikilvægustu þátta framleiðslunn- ar væru því vöruþróun og mark- aðssetning. Nýtt greiðslufyrirkomulag á mjólk til framleiðenda Á fundinum skýrði Pétur Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Tækni- og framleiðslusviðs, frá nýju greiðslu- fyrirkomulagi þar sem höfð er hlið- sjón af bæði fitu- og próteininni- haldi mjólkur. Ráðgerð er, að þetta nýja fyrirkomulagi taki gildi síðar á þessu ári. í máli Péturs kom fram að með þessu nýja fyrirkomu- lagi sé verið að laga verðlagninu mjólkurafurða að breyttum neysluvenjum. Samlögin greiði í flestum tilvikum fyrir afurðirnar með hliðsjón af fituinnihaldi þeirra á sama tíma og neytendur kjósi síður fiturríkar vörur. Fituinnihald vegur því of þungt í verði miðað við þarfir og kröfur neytenda. Mjólkin hefur aukist að gæðum Á fundinum kom enn fremur fram að íslendingar væru í efsta stæti varðandi mjólkurneyslu á hvern íbúa samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðasamtökum mjólkurfram- leiðenda IDF. Gæði mjólkurinnar hafa aukist og sölufrestur verið lengdur. Hann er nú sex dagar á ferskum mjólkurvörum í stað fjög- urra áður. Þá er samstarfið við kaupmenn gott og ímynd MS já- kvæði í augum almennings. (Frá Upplýsingaþjónustu landbúnadar- ins). 8. APRÍL 1990 Freyr 325

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.