Freyr

Volume

Freyr - 15.04.1990, Page 30

Freyr - 15.04.1990, Page 30
Jón Halldór Guðmundsson, Ærlæk, Öxarfirði Gemlingslömb vanin undir fullorðnarær Að beiðni ritstjóra Freys œtla ég að segja frá nokkurs konar tilraun sem við feðgar á Ærlœk höfum gert í nokkur ár, en hún er íþvífólgin að hleypa til gemlinga en venja síðan öll lömbin sem þeirfœða undir fullorðnu ærnar. Rökin fyrir því að gera þetta teljum við vera eftirfarandi: Það hefur verið reynsla okkar að gemlingana muni ekki svo mikið um að ganga með fóstrið, en séu lömbin látin ganga undir þeim sumarið komi það verulega niður á þroska þeirra, miðað við hina sem ganga geldir. Til að bæta þeim þetta þroskatap þurfa þeir mjög mikið fóður á öðrum vetri og sum- ar ærnar ná sennilega aldrei þeim vænleika sem þær annars hefðu gert. Með því að láta sem allra flestar ærnar ganga með tvö lömb lenda mun færri skrokkar í verðfellingu út af fitu, þ.e. í DIB og DIC. Einnig fjölgar trúlega þeim skrokkum sem flokkast í D Úrval. Með þessu er með öðrum orðum hægt að ná, ef rétt er á málum haldið, hærra meðalverði út úr inn- legginu og þar með nýtist fullvirð- isrétturinn betur. Það er til lítils að hafa háa meðalvigt ef stór hluti fullvirðisréttarins eyðist í að leggja inn verðlausa fitu sem getur j afnvel verðfellt 20 kg fall niður í að vera 16 kg virði. Mjög feitar ær, sem hafa kannski komið einlembdar oftar en einu sinni, en er síðan vanið undir, nást oft niður í hóflegri hold og virðast jafnvel frekar koma tvílembdar eftir það. Vanhöld mega vera býsna mikil á lömbum svo að gemlingslömbin dekki þau ekki. Þannig geta í flest- um tilfellum komið fleiri lömb til nytja á haustin heldur en fædd lömb fullorðnu ánna eru. Samanburðurá þunga. Ég gerði samanburð á þunga síð- ustu fjögurra árganga ánna nú í janúar og þar kemur fram að um óverulegan mun er að ræða á þunga þeirra áa sem gengu með fóstur gemlingsárið og hinna sem gengu geldar. Meðalþungi 138 áa á 1.-4. vetri sem gengu með fóstur gemlingsveturinn var nú í janúar 61,7 kg en þungi 133 áa á sama aldri sem gengu geldar gemlingsár- ið er nú 62,1 kg. Það munar sem sagt 0,4 kg á lifandi þunga og þeim geldu í hag. Þetta kemur þannig út, ef hver árgangur er reiknaður út sérstaklega, að ærnar á öðrum til fjórða vetri eru 250-480 gr. léttari en hinar að meðaltali en vetur- gömlu ærnar sem gengu með fóstur eru nú 200 gr. þyngri en hinar sem voru geldar, hvað sem því veldur. Við höfum ekki vigtað gemlinga í janúar svo að það er engan veginn hægt að sanna að þeir gemlingar sem fengu, hafi verið jafnþungir meðaltalinu þegar þeir fóru að leggja í fóstrið. Það finnst mér hins vegar líklegt þar sem við höfum sett hrút í allan gemlingahópinn ven j ulega sama dag og byrj að er að halda ánum. Við höfum svo tekið hrútinn úr eftir 10-14 daga til þess að fá ekki mörg gemlingslömb síð- ustu daga sauðburðarins. Hér hafa gemsarnir verið órúnir en samt hefur oftast um helmingur þeirra verið með lömbum. Flestir þeirra koma einlembdir en þó er alltaf einn og einn tvílembdur. Vanhöld á gemlingslömbunum hafa verið lítil og eins hefur burður yfirleitt gengið vel. Við höfum þann háttinn á að taka lömbin nýfædd og óköruð frá gemsunum og snertum ekki við júgranu. Með þvf móti losnarmað- ur alveg við sáran saknaðarjarm sem kemur óhjákvæmilega ef þeir fá að kara lömbin. Með því að snerta ekki júgrað byrjar raun- veruleg mjólkurframleiðsla aldrei og júgrað hjaðnar á fáum dögum. Við teljum að minni hætta sé á j úgurbólgu þar sem smit á ekki eins greiða leið í júgrað, sé aldrei tekið úr spenunum. Gemlingunum er 326 Freyr 8.APRÍL 1990

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.