Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1993, Qupperneq 6

Freyr - 01.09.1993, Qupperneq 6
582 FREYR 17.’93 RITSTJÓRNARGREIN------------- Talnaleikur í Háskólanum Undirstöðuþarfir hvers mannsbarns eru ýmsar. Þar má nefna föt til skjóls og mat til viðurværis. Er þá margt ótalið. Af þessu er matur einn stærsti útgjaldaliðurinn og um leið er mikið lagt upp úr að halda verði á matvælum í lágmarki. Vegna þess að mat- urinn er lífsnauðsynlegur leggja allar þjóð- ir höfuðáherslu á að vera sem minnst upp á aðra komnar um öflun matvæla. Litið er á meiri kostnað við matvælaframleiðslu í einum heimshluta en öðrum sem trygging- ariðgjald. Matvælaskortur vegna breyti- legra framleiðsluskilyrða, heftra sam- gangna, stríðsátaka eða annars, er slíkt alvörumál að ábyrgir stjórnendur taka þar sem minnsta áhættu. Síðustu áratugi hefur sú afbrigðilega staða komið upp í matvælaöflun í mann- kynssögunni að framleitt er í ákveðnum heimshlutum meira af mat en unnt er að selja á kostnaðarverði. í því sambandi skiptir ekki máli að stór hluti jarðarbúa skortir mat, þeir hafa bara ekki ráð á að kaupa hann fullu verði. Afleiðing þessa er að á ofgnóttarsvæð- um jarðar hefur myndast vítahringur. Of- framleiðsla hefur valdið verðlækkun á mat sem aftur hefur kallað á aðgerðir til að draga úr framleiðslukostnaði, en þær að- gerðir hafa hins vegar sums staðar orðið á kostnað náttúrunnar og valdið mengun, jarðvegseyðingu og öðrum náttúruspjöll- um á lofti, láði og legi. Jarðarbúum hefur farið ört fjölgandi á þessum tíma, jafnframt því sem hvers kyns tækni sem sparar vinnuafl hefur aukist. Afleiðingin hefur verið vaxandi atvinnu- leysi og í auðugum og iðnvæddum ríkjum hefur verið leitast við að sjá fólki fyrir atvinnu með því að greiða ríkisstyrki til landbúnaðar og lækka um leið verð á matvælum og flytja þau út á niðursettu verði. Að baki því liggur einnig sú hugsun að vald yfir matvælamarkaði gefur pólitískt vald. Gegn þessari skekktu verðmyndun á matvælum (og fleiri verðmætum) er unnið með samningagerð á vegum GATT en sú samningagerð er þung í vöfum, m.a. af áðurnefndum ástæðum um matvælaöryggi og pólitískt vald. ísland er norðarlega á hnettinum, þar sem vaxtarskilyrði eru lakari en í suðlægari löndum með hlýrra veðurfar. Hér er þó unnt að framleiða ýmsar búvörur en aðrar verður að flytja inn. Landbúnaður hér á landi hefur verið verndaður líkt og land- búnaður um mestallan heim en stór skref hafa verið stigin síðustu ár til að draga úr opinberum stuðningi við hann, útflutn- ingsbætur aflagðar og framleiðsla löguð að innanlandsmarkaði og margs konar hag- ræðing í rekstri farið fram. Þá hefur verið boðað að leyfður verði takmarkaður inn- flutningur búvara sem unnt er að fram- leiða hér á landi, ef eða þegar alþjóðlegir viðskiptasamningar taka gildi, þ.e. EES og GATT. Þetta hefur þegar og á enn frekar eftir að þrengja að íslenskum bænd- um, þannig að hagur þeirra hefur hríð- versnað. Um árabil hefur verið í gangi harð- skeyttur áróður fyrir því að draga úr eða hætta að vernda innlenda búvörufram- leiðslu og opna fyrir innflutning að mestu eða öllu leyti. Mest áberandi í þeim mál-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.