Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1993, Blaðsíða 17

Freyr - 01.09.1993, Blaðsíða 17
17.93 FREYR 593 Rofdílar eru ein þeirra rofmynda sem sérstaklega þarf að taka tillit til vegna íslenskra aðstæðna. Þeir eru lítil sár í gróðurþekju þar sem ber jarðvegur er við yfirborðið. Rofdflar eru ótrúlega algengir um land allt þar sem beit er mikil. Jarðsil. Jarðsil verður þegar jarð- vegur skríður undan halla við það að jarðvegur frýs og þiðnar á víxl. Við það myndast stallar í hlíðarnar og stundum allstórar tungur. Þessi ummerki finnast nánast í öllum grónum hlíðum landsins. Opin jarðvegssár myndast auðveldlega þar sem jarðsil á sér stað, ekki síst þar sem er mikil beit. Peir rofdflar sem þannig myndast flokkast sem rof en stallarnir og tungurnar eru einnig þáttur í skilgreiningu á þess- ari rofmynd. Petta ferli hefur verið mikilvirkt við að eyða gróðri og jarðvegi í hlíðum landsins en oft án þess að rofið sé áberandi (1. mynd). Einnig er jarðsil oft undan- fari skriðufalla. Strangt til tekið væri réttara að tala um jarðsilsdfla og jarðsilsstalla, en auðveldara er að nota einfaldlega orðið jarðsil í staðinn. Vatnsrásir eru rásir í hlíðum sem geta rofið jarðveg þegar vatn renn- ur niður þær. Þær einkenna blá- grýtissvæði landsins ásamt jarðsili. Skriður flokkast í marga undir- flokka, en sú flokkun er stutt á veg komin og verður ekki rædd hér. Auðnir eru samsafn lítið gróinna landgerða sem mótast af mörgum ferlum jarðvegseyðingar. Um flokkun rofs á auðnum Eins og áður er getið hefur yfir- borð auðnanna jarðveg. Þetta jarðvegsyfirborð er óstöðugt því að gróðurinn vantar til þess að vernda það gegn eyðingaröflun- um. í flestum tilvikum eru auðnir landsins ekki eðlilegt ástand, held- ur hafa þær orðið til við jarð- vegseyðingu. Á mörgum svæðum kemur beit búfjár í veg fyrir að þær grói upp aftur. Á svæði sem er illa gróið, t.d. á afrétti, er skilgreint rof á ógróna hlutanum. Mörg erlend kerfi, sem meta hversu alvarlegt rof er, nota hlut- fall ógróins lands í heildarþekjunni sem viðmiðun. Samkvæmt slíkum kerfum (t.d. Eyles 1985) er land sem er er nær ógróið talið í versta flokki eyðingar, þ.e. gífurleg eyð- ing (extreme erosion). Pess ber að geta að sumar af auðnum landsins eru ógrónar af náttúrulegum or- sökum, t.d. eftir jökulhlaup eða gjóskufall. Líklega telja margir hin fjöl- mörgu ógrónu svæði landsins vera eðlilegan hluta íslenskrar náttúru. Margir ættu því bágt með að sætta sig við að slíkt land færi í versta flokk eyðingar, þar sem krafist væri tafarlausrar friðunar. Oft á tíðum eru samt melarnir óeðlilegt ástand landsins eins og áður sagði, afleiðing margra alda nýtingar. En vert er að taka fram að beit á ógrónu landi á borð við mela kem- ur í veg fyrir eða seinkar verulega að gróður nái fótfestu. Slík land- nýting er því ekki sjálfbær, hún er skaðleg. En við teljum ekki rétt að flokka slíkt land svo sem það væri á hæsta stigi eyðingar, heldur förum milliveg og reynum að meta rof fyrir hvern undirflokk auðna. Ef- laust er rétt að fara að huga að því hve hlutdeild auðna á samfelldu beitarsvæði má vera mikil án þess að krafist sé friðunar, því að nýting auðna er hvorki skynsamleg né sjálfbær. Ekki verður hjá því komist að skilgreina rof á sandsvæðum, en mörgum kann að finnast vafasamt að kalla það rof jarðvegseyðingu. Hér er einkum verið að kanna rof og rofmyndir og orðið jarð- vegseyðing var notað sem samheiti rofs í ummræðum um aðrar rof- myndir en auðnir. Það er nauðsyn- legt að sandsvæði komi fram á kortum sem ætlað er að sýna jarð- vegseyðingu, enda má segja að slík kort sýni fyrst og fremst rof. Viðhorf gagnvart auðnum og nýtingu þeirra eiga eftir að breyt- ast þegar fram líða stundir og þekkingu fleygir fram. Enda þótt mikil eyðing eigi sér stað á auðnum landsins er ekki þar með sagt að þau svæði fari framalega í for- gangsröð landgræðsluverkefna, sérstaklega auðnir á hálendi. En nýting lands sem einkennist af auðnum, hvort sem er á láglendi eða hálendi, er eigi að síður mjög

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.