Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1993, Side 21

Freyr - 01.09.1993, Side 21
17.’93 FREYR 597 7. mynd. Svœði þar sem lokið er við að kortleggja jarðvegseyðingu í mœlikvarðanum 1:100.000 1965, Siddoway 1988) og „The Universal Soil Loss Equation" (Wishmeier og Smith 1978). Flest reiknilíkön af þessu tagi mæla tap jarðvegs beint, oftast í tonnum sem tapast af hverjum hektara á ári (tonn/ha/ári). Þessi líkön hafa reynst mjög vel og hafa verið notuð í einhverri mynd víða um heim. Við aðrar aðstæður, eða þar sem miðað er við rofmyndir frekar en einstök ferli, kunna slíkar viðmið- unartölur að vera óhagkvæmar og stundum beinlínis villandi. Á Nýja-Sjálandi eru beitilönd útbreidd og við kortlagningu á rofi hafa Nýsjálendingar flokkað rof- myndir en ekki rofferli. Nýsjálend- ingar miða við hlutdeild ógróins lands við mat á rofi (fyrir vindrof, vatnsrof og grjóturðir), en svipuð- um aðferðum er beitt víðar, m.a. fyrir beitilönd í Bandaríkjum. Á 2. töflu er sýnt mat Nýjsjálendinga á vindrofi, vatnsrof og grjóturðum til frekari skýringar. Islendingar hafa sín á milli yfir- leitt talað um jarðvegseyðingu sem tap á grónu landi. Þannig er metið hve mikil gróðurhula hefur tapast frá því að landið byggðist (t.d. Ingvi Þorsteinsson 1971) og hug- leiðingar Sturlu Friðrikssonar (1988) í tengslum við mælingar á rofhraða hafa slíka viðmiðun. Að miða við tap gróðurlendis endur- speglar að hluta grundvallar mis- mun á viðhorfum til jarðvegs frá því sem þekkist víða annars staðar. Þar sem menn yrkja jörðina horfa þeir fyrst og fremst til jarðvegsins sem auðlindar. Hérlendis er oftar litið til gróðursins á yfirborðinu. Ef gróðurhulan er rofin tapast nær öll dýrmætasta moldin en eftir situr rýr jarðvegur á auðnum. Því er þessi viðmiðun að mörgu leyti eðli- leg, en hún gengur þó ekki ein og sér við mat á rofi eins og síðar verður vikið að. Hin hefðbundna íslenska aðferð að nota tap á grónu landi sem viðmiðun verður sérstaklega hæp- in þar sem land er illa gróið. Tök- um sem dæmi land sem er lítið gróið og er á lokastigi eyðingar (6. mynd). Tap sem nemur aðeins nokkrum tugum fermetra á slíku landi þýðir samt að það tapast um- talsverður hluti gróðurlendisins. Þá ber einnig að hafa í huga að ef lítið gengur á gróður á illa grónu landi myndi rofið teljast lítið ef aðeins er miðað við tap á grónu landi. Með því er verið að gefa í skyn að ógróna landið umhverfis börðin sé talið eðlilegt ástand þar sem lítið rof á sér stað. Við flokkun rofmynda var aftur á móti gengið út frá því að rof eigi sér stað á ógrónu landi. Við gerð kvarðans fyrir rof var ákveðið að nota mismunandi við- miðun fyrir hverja rofmynd fyrir sig. Þar sem eru greinileg rofsár sem skilja að gróið og ógróið land, er höfð hliðsjón af hve mikið tapast af grónu landi (tap í hekturum á hvern ferkílómeter á ári; ha/km:/ ári). Einnig er metið tapið í ha/knr gróins lands á ári, sem gefur til kynna hve stór hlutdeild gróður- lendis tapast á hverju ári. Þessar viðmiðanir standa ekki einar og sér, því að einnig er rétt að taka tillit til taps á jarðvegi af ógrónu landi, t.d. með vatni og vindum. Ennfremur er tekið tillit til þess að ógróið land er á mörgum stöðum ekki eðlilegt ástand lands. í upphafi var ákveðið að hafa 5 einkunnir fyrir jarðvegseyðingu og var Mývatnssvæðið kortlagt með slíkum rofkvarða. Síðar kom í ljós að einn flokk vantaði til þess að lýsa landi sem er á mörkum nokk- urs rofs og mikils rofs. Rofkvarð- inn sem nú er notaður er sýndur í 3. töflu. Þessi kvarði er að mörgu leyti svipaður þeim sem notaðir eru víða erlendis, m.a. á Nýja- Sjálandi (Eyles 1985). Með kvarð- anum er lagður óbeinn mælikvarði á rof sem á sér stað. Sú nálgun er kannski óalgengari en að meta rof- hættu (sjá t.d. Morgan 1986), rofgirni jarðvegsins (t.d. Manrique 1988, Morgan 1986) eða rof með tölfræðilíkönum á borð við „vindrofsjöfnuna”. I töflunni eru einnig tíundaðar tillögur er varða beit á úthaga í samræmi við hverja rofeinkunn. Lokaorð Hér að framan var leitast við að skýra þá vinnu sem verkefnishópur um jarðvegsvernd stendur að. Frh. á bls. 607.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.