Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1993, Síða 26

Freyr - 01.09.1993, Síða 26
602 FREYR 17.’93 Verðmœtasköpun í veiðimálum Árni ísaksson, veiðimálastjóri Inngangur. Nú ganga yfir íslenska þjóð einhverjir erfiðustu tímar, sem hún hefurþurft við að glíma í nœrfellt 25 ár. Verulegur samdráttur hefur orðið í þjóðartekjum vegna samdráttar í fiskafla. Slíkar sveiflur eru mjög tíðar í þjóðfélögum, sem byggja á fiskveiðum, og ein ástœða þess er að finna þarf fleiri stoðir fyrir þjóðarbúskapinn. Þótt samdrátturinn komi við alla landsmenn virðist ljóst, að hann komi sérlega illa niður á dreifbýli, bæði til sjávar og sveita. Því er sérstaklega mikilvægt að hyggja að nýsköpun í atvinnulífi, sem tengist náttúrulegum aðstæðum til sveita eða við sjávarsíðuna. Innan málaflokks veiðimála eru mörg slík tækifæri, sem þegar eru í þróun, auk hefðbundinna hlunn- inda, þ.e. veiði í ám og vötnum. Af nýsköpunartækifærum ber hæst margvíslegan veiðiskap í tengslum við ferðaþjónustu og hafbeit á laxi, sem er að verða veruleg atvinnu- grein á Vestur- og Suðurlandi, bæði sem framleiðsla á laxi til út- flutnings og í þeim tilgangi að veiða endurheimtan lax á stöng. Mun ég nú víkja nokkuð að verðmætasköpun í veiðimálum, fyrst í tengslum við hefðbundinn veiðiskap en síðan þá nýsköpun sem er að eiga sér stað innan grein- arinnar. Loks mun ég ræða rann- sókna- og þróunarhlutverk Veiði- málastofnunar innan þessa mála- flokks. Hefðbundin hlunnindi Ljóst er að stangaveiði hér á landi veltir verulegum fjármunum, einkum í stærri laxveiðiám. Eitt- hvað hefur orðið vart samdráttar á þessu sviði sem öðrum, einkum í dýrari ánum. Þrátt fyrir það má áætla að hver stangveiddur lax gefi af sér um 15-20 þúsund krónur og er þá eingöngu miðað við tekjur viðkomandi veiðifélaga af veiðián- um. Heildartekjur bænda af hefð- Arni Isaksson. bundinni stangveiði eru því um kr. 500 milljónir og þar vegur laxveið- in þyngst. Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart, þar sem myndar- legustu bændabýlin eru iðulega á bökkum laxveiðiánna og víða væri öðruvísi umhorfs í sveitum lands- ins, ef þessara hlunninda hefði ekki notið við. Þessar tölur gefa þó engan veg- inn viðhlítandi upplýsingar um heildarverðmætasköpun í tengsl- um við stangveiði. Margar úttektir hafa verið gerðar á verðmætum stangaveiði erlendis og má reikna með að heildarvelta í þjónustu og verslun, sem tengist veiðiskap, sé fimmföld miðað við verð veiðileyf- anna. Því má telja líklegt að heild- arvelta þessa málaflokks sé nálega 2,5 milljarðar kr. á núverandi verðlagi. Þessu til stuðnings má benda á að á árinu 1978 var áætlað að erlendir veiðimenn einir hefðu eytt hér gjaldeyri fyrir nálega kr. 250 milljónir á verðlagi ársins 1990 (Björn S. Guðbrandsson 1990). Ekki þarf að fjölyrða um skatt- tekjur íslenska ríkisins af þeirri veltu og ljóst er að veiðiréttareig- endur hafa greitt ríflega helming tekna sinna í ýmis opinber gjöld, sem ætti að tryggja verulegan stuðning hins opinbera við þessa atvinnustarfsemi. Nýsköpun í atvinnulífi Netaveiðar á silungi hafa verið auknar verulega í nokkrum vötn- um hér á landi eftir margra ára hlé. Þessi starfsemi hefur að mestu ver- ið unnin með stuðningi Fram- leiðnisjóðs af Vatnafangi hf. í sam- vinnu við Veiðimálastofnun. Einnig hafa verið unnin sérstök silungsveiðiverkefni á Austurlandi með stuðningi norrænna sjóða. Nokkur árangur hefur verið af þessu starfi, þó að markaðsstaða villibleikju sé óljós á erlendum mörkuðum vegna óstöðugs fram- boðs miðað við eldisbleikju. Verulegar tilraunir hafa verið gerðar til nýsköpunar á sviði fisk- eldis og fiskræktar á undanförum árum, þó að oft hafi verið farið meira af kappi en forsjá og þess ekki gætt að styrkja nægilega vel við rannsóknarstarfsemi á viðkom- andi sviði áður en til framkvæmda kom. Helstu tækifærin hafa verið á sviði lax- og bleikjueldis ásamt haf-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.