Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1993, Síða 27

Freyr - 01.09.1993, Síða 27
17.’93 FREYR 603 Hafbeitarstöðin Silfurlax hf. í Hraunsfirði á Snœfellsnesi er stœrsta hafbeitar- stöð landsins og sleppir um þremur milljónum gönguseiða árlega. (Ljósm. R.H.). beit á laxi bæði til slátrunar og stangaveiði. Nauðsynlegt er að leggja áherslu á að allar þessar atvinnugreinar eru nýsköpun innan landbúnaðar, þar sem eldis- og hafbeitarmögu- leikar eru háðir náttúrulegum skil- yrðum til sveita, þó að við sjávar- síðu sé og þar að auki í forsjá landbúnaðarráðuneytis. Sjóðir landbúnaðarins verða að styðja rannsókna- og þróunarstarfsemi í stórfelldri laxahafbeit til jafns við aðra nýsköpun í fiskeldi, þar sem slík starfsemi er aðeins stækkuð mynd af því ræktunarstarfi sem verið hefur og er stundað í smáum og stórum stíl í veiðiám allt í kring- um landið. Öll þessi starfsemi hef- ur sameiginlegra hagsmuna að gæta varðandi tæknilega þróun og ýmis önnur mikilvæg mál, svo sem eftirlit með ólöglegum laxveiðum í sjó og eru því stjórnunar- og þró- unarleg heild. Auk þess að vera tilltölulega umhverfisvæn, getur stórfelld hafbeit skapað fjölmörg atvinnutækifæri í dreifbýli, þó að þau séu ekki bundin við einstök lögbýli. Eg mun nú víkja nokkrum orð- um að nýsköpunartækifærum inn- an flokks veiðimála og nefna þar um dæmi. Hafbeit með lax Hafbeit er það nefnt, þegar gönguseiðum er sleppt í sjó og þau endurheimt í gildru eða á stöng, þegar þau snúa aftur sem kyn- þroska laxar eftir 1-2 ár í sjó. Haf- beit hér á landi byggir á banni við laxveiðum í sjó frá 1932 og hefur verið stunduð sem tilraunastarf- semi í Laxeldisstöð ríkisins í Kolla- firði í 30 ár. Pær tilraunaniðurstöð- ur, ásamt þeirri sannfæringu að bann við laxveiðum í sjó væri virt, eru grundvöllur undir stórfelldri fjárfestingu einkafyrirtækja á þessu sviði undanfarin 10 ár. Stærsta fyrirtækið í hafbeit hér á landi er Silfurlax hf, sem hóf rekst- ur upp úr 1986. Það rekur hafbeit- arstöð í Hraunsfirði á Snæfellsnesi og eldisstöðvar á Núpum í Ölfusi og í Landmannahreppi. Fyrirtækið er að minnihluta í eign erlendra aðila sem hafa komið með um það bil 1 milljarð króna inn í landið í formi hlutafjár og áhættufjár- magns. Fyrirtækið selur lax aðallega til Evrópu og fær mun hærra verð fyrir laxinn heldur en fæst fyrir hefðbundinn eldislax. Vegna óhagstæðra sjávarskilyrða hafa heimtur verið ófullnægjandi und- anfarin þrjú ár en hafa batnað á þessu ári, auk þess sem meðal- þyngd á laxi jókst. Fyrirtækið áætl- ar að framleidd heildarverðmæti verði nær tvöföld á þessu ári miðað við fyrra ár. Ljóst er að fyrirtækið skilar ekki hagnaði og eigendur líta enn á það sem þróunarfyrirtæki. Mikilvægt er að þessari starfsemi verði haldið áfram, þar sem vitað er, að haf- beitarbúskapur með lax er háður sömu sveiflum í vistkerfi sjávar eins og loðnu- og þorskveiðar ís- lendinga. Nauðsynlegt er að hags- munaaðilar í dreifbýli styðji af full- um krafti við frekari þróun og rannsóknir á þessu sviði. Fullvíst er að, ef þessi starfsemi leggst af vegna áhugaleysis eða skorts á stuðningi, er ljóst að þráðurinn verður ekki aftur upp tekinn næstu 10 árin. Er þá verr af stað farið en heima setið í ljósi þeirra áhættu- fjármuna, sem þegar hafa verið lagðir fram. Islendingar hafa algjöra sér- stöðu í hafbeit, þar sem við einir þjóða höfum bannað laxveiði í sjó. Pví má reikna með að við yrðum nær einráðir á nærliggjandi mörk- uðum með hafbeitarlax næstu árin. Aðrar þjóðir, svo sem Norðmenn og írar, eru að hugleiða hafbeitar- aðferðina en hafa nær óyfirstígan- leg vandamál heima fyrir vegna löglegra og ólöglegra sjávarveiða á laxi. Einnig má benda á að í hafbeit erum við að stíga skref frá hefð- bundnum veiðum og nýtingu hlunninda inn í ræktun á hafinu. Hér þurfa því sérfræðingar á sviði haffræði, fiskifræði, og ræktunar að sameina krafta sína og má þar benda á viðamikið verkefni í kyn- bótum á hafbeitarlaxi í Laxeldis- stöð ríkisins og hjá Stofnfiski hf. Til marks um umsvif þessa búskap- ar hér á landi má benda á, að um

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.