Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1993, Qupperneq 30

Freyr - 01.09.1993, Qupperneq 30
606 FREYR 17.’93 Endurreisn íslensks skinnaiðnaðar og gœruverð Valdimar Einarsson íslendingar hafa um langt árabil búið við lífsskjör sem eru með því besta sem gerist í heiminum. Það kemur því illa við þjóðina þegar samdráttur á sér stað og atvinnuleysi eykst. Atvinnuleysi er eitt stœrsta vandamálið sem nútímaþjóðfélög verða að berjast gegn, enda veldur það hvað mestri óvissu meðal þegnanna. Hnignun íslensks sklnnalðnaðar. íslenskur skinnaiðnaður á að baki sér langan og glæsilegan feril. Mikið og gott starf hefur verið unnið við vinnslu og vöruþróun. Markaðsetning á íslenskum mokkaskinnum og skinnavörum hefur leitt til þess að gæði íslenskra gæra eru alþekkt víða um heim og um er að ræða eftirsótt hráefni til skinnaiðnaðar. Gjaldþrot íslensks skinnaiðnað- ar hf. á Akureyri þarf samt ekki að koma neinum á óvart. Samdráttur í sauðfjárframleiðslu hefur leitt til þessa að frá 1980 hefur gærum fækkað úr um 900.000 á ári í um 600.000 á síðasta ári. Sérstaklega hefur þessi samdráttur aukist síð- ustu árin. Heildaratvinna við frumfram- Valdimar Einarsson. leiðslu í landbúnaði fyrir árið 1991 var áætluð rúmlega 5000 ársverk. Sá samdráttur sem hefur átt sér stað í framleiðslu síðan 1991 hefur leitt til aukins atvinnuleysis í sveit- um. Ekki er óraunhæft að áætla að á síðustu tveimur árum hafi árs- verkum við frumframleiðslu fækk- að um 10-15%. Áhrif aukins at- vinnuleysis í sveitum kemur hins vegar ekki fram í skráðu atvinnu- leysi nema að óverulegu leyti þar sem um flatan niðurskurð á fram- leiðslurétti er að ræða. Reikna má með svipaðri þróun fram að alda- mótum. Samdráttur í landbúnaði hefur fram að þessu haft óveruleg áhrif á atvinnuástand í öðrum greinum. Krafa um aukna framleiðni mun leiða til þess að um 25-30% árs- verka, sem tengjast landbúnaði beint eða óbeint, hverfa fyrir lok aldarinnar. Þessar tölur gera að sjálfsögðu ráð fyrir að alþjóðasamningar um fríverslun með landbúnaðarvörur Tafla 1. Verð á gœrum á Bretlandsmarkaði (tll sláturleyflshafa). Mánuður 1987/88 1988/89 1989/90 1990/1991 1991/92 1992/93 Nóvember........................... 6,40 4,30 6,20 1,44 2,54 2,14 Desember........................... 6,43 5,00 6,20 1,46 2,88 2,54 Janúar............................. 6,50 4,50 6,01 1,86 3,18 3,21 Febrúar............................ 5,90 5,40 5,89 1,96 3,32 3,12 Mars............................... 7,00 5,10 5,39 1,76 3,47 3,50 Apríl.............................. 6,60 6,00 5,60 1,86 3,66 3,66 Meðaltal (pund)...................... 6,47 5,05 5,88 1,72 3,18 3,03 Meðalgengi (kr/p)................... 66,64 83,30 98,16 106,08 103,97 97,09 *VerðíBretlandi ...................... 431 421 577 183 330 294 *Verð á íslandi....................... 237 209 236 205 205 205 Mismunur%............................. 82% 101% 145% -11% 61% 43% * Verð á gærum miðast við óverkaðar gærur í Bretlandi, en saltaðar á íslandi.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.