Freyr - 01.05.2000, Page 12
% fleirlembna 1998
Mynd 3. Hlutfall af marglembum í fjárrœktarfélögunum vorið 1998 flokkað
eftir héruðum.
Dilkakjöt eftir hverja á 1998
Mynd 4. Reiknað magn dilkakjöts eftir hverja fullorðna á á skýrslu haustið
1998.
Á mynd 3 er sýnt hvert hlutfall
var af fleirlembum í einstökum hér-
uðum vorið 1998 en eins og áður
hefur komið fram var þetta hlutfall
öllu lægra þá en árið áður. Eins og
vænta má sýnir þessi mynd talsvert
sterka fylgni við meðalfrjósemina
sem sýnd er á mynd 2. Þetta hlutfall
er hæst í Suður-Þingeyjarsýslu þar
sem það er 6,4%, en í Vestur-Húna-
vatnssýslu og Eyjafirði er það
5,9%.
Vænleiki lamba var ívíð meiri
haustið 1998 en árið áður en sá
munur var það lítill að hann nær
ekki að vinna upp áðumefndan
mun í frjósemi ánna þannig að eft-
ir hverja á verður örlítið minni
framleiðsla en haustið áður.
Reiknað kjötmagn eftir hverja tví-
lembu var 30,8 kg (30,6), hjá ein-
lembunni reyndist það 17,3 kg
(17,3). Eftir hverja á sem skilar
lambi að hausti er magn af dilka-
kjöti 27,7 kg (27,6) og eftir hverja
á sem lifandi var í sauðburðar-
byrjun fengust 26,0 kg (26,1). Rétt
er að taka fram að þessar tölur eru
miðaðar við blautvigt til að hafa
réttan samanburð við fyrri ár.
Afurðamest fé
á Ströndum
Mynd 4 sýnir dilkakjötsfram-
leiðslu í einstökum hémðum og þar
má sjá að eins og svo oft áður em
afurðimar eftir hverja á mestar í
Strandasýslu. Þar skilar tvflemban
33.2 kg að meðaltali, einlemban
18,8 kg, eftir á sem skilar lambi fást
30.2 kg og eftir hverja á 29,1 kg.
Yfirburðir þeirra í framleiðslu-
magni em meiri en oft hefur verið.
í Barðastrandarsýslum fást að jafn-
aði 28,0 kg eftir ána, hjá Vestur-
Húnvetningum er þessi framleiðsla
27,7 kg og hjá Eyfirðingum 27,4
kg-
Heldur færri félög en árið áður ná
30 kg markinu í meðalafurðum, eða
11 samtals að þessu sinni, og em
þau öll á Vestfjörðum, Norðurlandi
eða Austurlandi. Mestu meðalaf-
urðir em í félögum þar sem aðeins
eitt bú er með skýrsluhald, mestar í
Sf. Mjóafjarðar þar sem eru 35,5 kg
eftir hverja á, í Sf. Vallahrepps 35,1
kg, Sf. Norðfjarðar 33,2 kg og Sf.
Hrafnagilshrepps 32,9 kg. Þetta er
að sjálfsögðu frábær árangur þó að
ærfjöldi sé takmarkaður. Eins og
svo oft áður er samt í þessum hópi
félaga einnig að finna félög með
mjög margt skýrslufært fé og eins
og mörg undanfarin ár em þama
bæði Sf. Kirkjuhvammshrepps og
Sf. Kirkjubólshrepps.
í töflu 2 er gefið yfirlit um þá
fimm skýrsluhaldara sem em með
mestar reiknaðar afurðir eftir hveija
skýrslufærða á en þetta em eins og
oft áður litlar hjarði sem em að fá
um eða yfir 40 kg af dilkakjöti eftir
Taffla 2. Bú með mest kjötmaqn eftir skýrslufærða á haustið 1998
Nafn Heimili Félag Tala áa Lömb til nytja Kg pr. á
l. Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir Svertingsstöðum Öngulsstaðahrepps 11 236 43,2
: 2. Helgi Kristjánsson Sandholti 7 Búi 11 190 .41,1
3. Eiríkur Helgason Ytra-Gili Hrafnagilshrepps 12 200 39,8
4. Láms G. Birgisson Miðdal Skutulsfjarðar 14 221 39,2
5. Sigmar Jóhannsson Sólheimum Staðarhrepps 17 181 38,5
12 - FREYR 4-5/2000