Freyr - 01.05.2000, Blaðsíða 51
segir, að þetta er uppsóp lakasta
hluta afkvæma þeirra.
Þær upplýsingar sem hér verða
kynntar og ég held að mest megi lesa
úr eru þær sem kynntar em í töflu 4.
Þama er búið að draga saman niður-
stöður fyrir þá stöðvarhrúta síðustu
ára sem áttu 10 syni eða fleiri sem
höfðu fengið reiknaða einkunn um
matið í fjárræktarfélögunum á gmnni
10 lamba eða fleiri. Þetta er gert með
því að reikna beint meðaltal af eink-
unnum þessara hrúta.
Fyrir þá sem þekkja ekki nægjan-
lega uppgjör fjárræktarfélaganna er
nauðsynlegt að fram komi að hér er
um að ræða einkunnir fyrir hvom
þátt kjötmatsins um sig sem reikn-
aðar em innan hvers bús í uppgjöri
félaganna. Þama er því aðeins um
innbyrðis samanburð innan bús að
ræða. Þegar þessir hrútar hins veg-
ar, eins og er raunin, dreifast um
allt land við ólíkustu aðstæður og
lenda því í innbyrðis samanburði
ætti þama að fást marktækur dóm-
ur. Þama koma heldur ekki til þau
úrvalsáhrif sem fyrir hendi em hjá
sæðislömbunum sjálfum og rædd
em hér að framan.
Úr þessari töflu getur vafalítið
hver og einn lesandi lesið margvís-
legan fróðleik. Ég ætla að benda á
nokkur atriði sem mér sýnast for-
vitnileg. Umfang þessara gagna er
feikimikið því að samtals eru upp-
lýsingar um afkvæmi um 2600
hrúta sem eiga stöðvarhrút sem
föður. Að meðaltali fá þessir hrútar
101 í einkunn um gerð en eru ná-
kvæmlega á meðaltali um fitu.
Þama blasir nokkuð skýrt við sá al-
menni munur sem ég hef áður nefnt
á hymdu og kollóttu hrútunum. Að
jafnaði koma kollóttu hrútamir lak-
ar út í mati um gerð en þeir hymdu
en fyrir fituna snýst þetta við.
Þama em synir Bjöms 89-933 og
Flekks 89-965 frekast undantekn-
ing en þeir em báðir með jákvæð
meðaltöl um báða þætti. Þá er yfir-
leitt alltof algengt að saman fari
neikvætt samhengi þátta, þ.e. ann-
að hvort góð gerð og of mikil fita
eða lítil fita og gerð í slakari kant-
Tafla 4. Meðaleinkunnir hálfbræðrahópa undan
stöðvarhrútum sem áttu fleiri en 10 syni með eink-
unnir byggðar á 10 sláturlömbum eða fleiri haustið
1998.
Svnir stöðvarhrúta haust 1998
Föðurfaðir Númer Synir Lömb Gerð Fita
Oðinn 83904 12 414 91 93
Lopi 84917 12 645 79 97
Kokkur 85870 71 2958 96 100
Broddi 85892 19 643 95 102
Oddi 85922 16 648 88 98
Sveppur 85941 12 395 92 99
Álfur 87910 11 411 102 88
Krákur 87920 20 713 116 99
Djarfur 87946 11 448 92 103
Móri 87947 38 868 99 103
Fóli 88911 77 3064 104 98
Glói 88927 15 498 95 88
Fannar 88935 20 621 93 107
Nökkvi 88942 30 1139 105 94
Goði 89928 119 4147 102 93
Klettur 89930 132 3922 96 98
Bjöm 89933 16 612 104 106
Raggi 89949 11 344 95 98
Búi 89950 10 426 109 95
Flekkur 89965 12 366 107 102
Valur 90934 49 1571 95 98
Tumi 90936 30 1355 90 104
Vaskur 90937 32 1161 87 109
Fóstri 90943 55 2014 111 91
Deli 90944 27 1069 104 102
Álfur 90973 44 1460 100 100
Blævar 90974 31 1063 109 92
Hnykill 90976 26 663 91 102
Þéttir 91931 23 696 106 98
Gosi 91945 155 5701 106 99
Hnykkur 91958 158 4553 107 100
Gnýr 91967 86 2464 100 102
Stikill 91970 21 663 106 99
Dropi 91975 80 2166 107 97
Garpur 92808 10 337 115 104
Svanur 92966 18 668 98 106
Skjanni 92968 83 2920 96 107
Fenrir 92971 55 1839 103 99
Hörvi 92972 132 4671 97 108
Melur 92978 11 376 101 96
Njörður 92994 28 770 91 98
Galsi 93963 95 2677 105 101
Sólon 93977 76 2112 101 100
Bútur 93982 78 2444 114 95
Djákni 93983 45 1138 100 99
Glampi 93984 79 2316 95 103
Mjaldur 93985 34 1017 103 97
FREYR 4-5/2000 - 51