Freyr - 01.05.2000, Page 13
Tafla 3. Bú með mest kjötmagn eftir skýrslufærða á haustið 1998, þar sem 100
eða fleiri ær voru skýrslufærðar
Nafn Heimili Félag Tala áa Lömb til nytja Kg pr. á
1. Indriði og Lóa Skjaldfönn Blævur 206 185 31,4
2. Amar og Kjartan (H) Brimnesi Árskógshrepps 109 195 36,4
3. Félagsbúið Lundi Vallahrepps 255 187 35,1
4. Hjálmar og Guðlaug Bergsstöðum Kirkjuhvammshrepps 277 195 34,8
5. Heimir Ágústsson Sauðadalsá Kirkjuhvammshrepps 289 193 34,1
6. Félagsbúið Sauðá Kirkj uhvammshrepps 303 194 33,9
7. Ragnheiður Jónsdóttir Gestsstöðum Kirkjubólshrepps 104 183 33,7
8. Reynir og Ólöf Hafnardal Blævur 245 180 33,6
9. Helgi Steinsson Syðri-Bægisá Neisti 105 187 33,6
10. Bjöm og Guðbrandur Smáhömmm Kirkjubólshrepps 252 181 33,4
11. Ásgeir Sveinsson Innri-Múla Barðastrandarhrepps 165 173 33,2
12. Karl Kristjánsson Kambi Gils 163 186 32,9
13. Bragi Guðbrandsson Heydalsá Kirkjubólshrepps 142 189 32,9
14. Guðjón Jónsson Gestsstöðum Kirkjubólshrepps 117 189 32,8
15. Guðbrandur Sverrisson Bassastöðum Kaldrananeshrepps 219 182 32,5
hverja á. Samtals voru það 149 að-
ilar sem náðu 30 kg markinu haust-
ið 1998.
Tafla 3 sýnir yfirlit um hæstu bú-
in úr hópi alvörubúanna, þ.e. bú
þar sem voru 100 eða fleiri
skýrslufærðar ær. Þarna toppar
eins og árið áður búið á Skjaldfönn
hjá Indriða og Lóu, en þar voru
206 ær, sem skiluðu að jafnaði
1,85 lambi til nytja og er reiknað
magn af dilkakjöti eftir hverja á
37,4 kg. Þetta er ótrúlegur árangur
en samt eru lömbin ívíð léttari en
árið áður vegna þess að þá var
meðaltalið 38,9 kg með nánast
sömu frjósemi ánna. I annað sætið
kemur að þessu sinni bú sem oft
hefur verið ofarlega á lista en
aldrei þó náð sama árangri og
1998, en það eru hyrndu æmar hjá
þeim bræðrum Amari og Kjartani í
Brimnesi á Arskógsströnd, en þær
eru 109 og skila 36,4 kg að
meðaltali. Þá kemur búið í Lundi á
Völlum sem mörg undanfarin ár
hefur verið í röð efstu búa, en þar
vom meðalafurðir eins og áður
hefur komið fram 35,1 kg eftir
ána. Búið hjá Hjálmari og Guð-
laugu á Bergsstöðum á Vatnsnesi
hefur þokað um eitt sæti í fjórða
sætið og fá þau að jafnaði 34,8 kg
eftir ána, en á hæla þeim fylgja
sveitungar þeirra á Sauðadalsá og
Sauðá. Þessi árangur búanna á
Vatnsnesi er frábær, en fjárbúskap-
ur þar er löngu þekktur sem einn sá
öflugasti hér á landi hvort sem litið
er til fóðrunar, meðferðar fjárins
eða ræktunar.
Árangri, eins og þeim sem að
framan er rakinn, ná engir nema
þeir sem standa að búskap af fyllstu
fagmennsku og natni. Með breytt-
um framleiðsluaðstæðum er full-
ljóst að alls ekki er sama ástæða og
áður að líta fyrst og fremst á jafn
einfaldan mælikvarða um búrekst-
urinn eins og afurðir eftir hverja á
eru. í framtíðinni er ástæða til að
geta metið árangurinn fremur á
grunni framleiðsluverðmæta eftir
hveija á. Ljóst er að með sumar-
slátrun er ekki mögulegt að ná jafn
miklum árangri, mælt í magni
kjöts, og ef öllum lömbum er slátr-
að á hefðbundnum tíma. Verðmæt-
ari framleiðsla getur hins vegar
skilað bóndanum meiri fram-
leiðsluverðmætum á þann hátt eftir
hverja á og þannig gert búrekstur
hagkvæmari og skilað verðmætari
vöru á markað.
Breytt kjötmat árið 1998
Kjötmatinu var árið 1998 breytt í
meginatriðum. Þess vegna er um-
fjöllun um niðurstöður úr kjötmat-
inu í annarri grein hér í blaðinu.
Því miður verða þær upplýsing-
ar, sem fást um ullarmagn ánna,
sífellt fátæklegri. Að þessu sinni
eru aðeins skráðar upplýsingar um
ullarþunga hjá 589 ám í félögunum
eða innan við 0,4% ánna. Hann er
2,64 kg að jafnaði. Þetta ótrúlega
litla umfang á þessari skráningu
stingur óneitanlega mjög í stúf við
talsverða umræðu sumra fjár-
bænda um það að ullarræktun sé of
lítill sómi sýndur í ræktunarstarf-
inu. Það sama gildir um þennan
eiginleika og aðra að grunnur þess
að geta unnið með hann til árang-
urs í ræktuninni er að fyrir hendi
sé skipuleg skráning upplýsinga.
Eins og fram hefur komið eru
veturgömlu æmar fleiri á skýrslu nú
en nokkru sinni áður eða samtals
35.840. Nær allir skýrsluhaldarar
skila orðið skýrslum um vetur-
gömlu ærnar. Vænleiki þeirra
ásetningshaustið er nánast sá sami
og árið áður eða 40,8 kg (40,9), en
eins og hjá fullorðnu ánum er þyng-
ing yfir veturinn ívíð minni en vet-
urinn áður eða 7,4 kg að meðaltali
(11,1).
Eftir hvern gemling á fóðrun,
sem lifandi er í sauðburðarbyrjun,
fæðist einu lambi færra en árið áð-
FREYR 4-5/2000 - 13