Freyr - 01.05.2000, Side 31
var Strútur, sem er sonur
Mola 93-986, samanrekin
holdakind og ákaflega vel
gerður. Mestur á velli
Fljótshlíðarhrútanna var
samt Dreki á Kirkjulæk,
feikilega sterklegur og
öflugur hrútur, gríðarlega
bollangur, en aðeins ullar-
gallaður og ekki alveg eins
vöðvaþykkur og toppamir
í sveitinni. Rétt er að nefna
einn ákaflega athyglis-
verðan hrút enn frá sýning-
unni í Fljótshlíð, sem er
Skakkur á Eystri-Torfa-
stöðum. Þessi hrútur hafði
orðið fyrir áfalli í uppeldi
og var því þroskah'till og
sýndi ekki sitt rétta gervi,
en vöðvafylling hjá þess-
um hrút er með ólíkindum.
Hér fer enn einn toppur
undan Bút 93-982.
*
I Rangárvallahreppi
komu nokkrir athyglis-
verðir hrútar. f hinni litlu
hjörð Magnúsar í Norður-
bæ voru tveir topphrútar,
hálfbræðurnir Óðinn og
Týr. Týr er fádæma kind
að vænleika og þroska en
Óðinn allur fágaðri og
ræktarlegri kind. Þessir
hrútar eru sonarsynir
Djákna 93-983. Á Selalæk
var skoðaður mjög vel
gerður og prúður kollóttur
hrútur, sem Mjaidur heitir,
en hann er einstaklega
ullargóður. í Næfurholti
voru tveir ágætir vet-
urgamlir hrútar, Skarði frá
Skarði í Landsveit, sonur
Kletts, sem verið hefur
mikill kynbótahrútur þar
og Kubbur, heimaalinn
undan Mola 93-986. Á
Kaldbak voru tveir ágætir
hrútar, Bylur sonur Mola
93-986 og Stefán, sonur
Fóla þar heima.
Hrútahópurinn í Skarði í
Landsveit hlýtur að verða
ógleymanlegur þeim sem
Keli, Grímsstöðum í V-Landeyjum.
Dreki, Kirkjulcek í Fljótshlíð.
Salvar, Skarði.
hann sáu haustið 1999.
Þama komu fjórir af þeim
hrútum sem röðuðu sér
meðal tíu bestu hrúta í
héraðinu. Við stigun
skipaðist efstur Spænir,
sem um leið skipaði annað
sæti í sýslunni. Þetta er
sonur Mjaldurs 93-985,
fádæma vöðvaþykkur og
hlaðinn vöðvum í
afturhluta og auk þess með
hvíta og góða ull. Smali er
heimaalinn, sonur Glúms,
sem verið hefur einn aðal-
kynbótahrútur búsins síð-
ustu ár. Þetta er vænn, bol-
langur, mjög vel gerður og
öflugur holdahrútur. Jafn-
vel enn glæsilegri kind á
velli og að þroska er Safír
sonur Glamranda, en hann
hafði vart eins mikil læra-
hold og hinir toppanna í
Skarði. Salvar, sem er son-
ur Pela 94-810, er mjög
jafnvaxinn og vel gerður
hrútur, bakþykkur, en vart
með eins gott vöðvalag og
sumir hinna hrútanna. Að
síðustu skal nefna Sand
sem er sonur Mola 93-986.
Þessi hrútur er vasaútgáfa
af hinum Skarðshrútunum
að stærð, því að hann er
ótrúlega lágfættur (104
mm), en samtímis hefur
þessi hrútur ótrúlega mikil
lærahold.
1 Ásahreppi voru ágætir
hrútar; Svanur í Kálfholti
sonur Skrepps 92-991,
Veggur á sama bæ og
Hringur í Kastalabrekku,-
sonur Garps 92-808.
FREYR 4-5/2000 - 31