Freyr - 01.05.2000, Side 52
Tafla 4, frh.
Föðurfaðir Númer Synir Lömb Gerð Fita
Moli 93986 19 452 107 103
Penni 93989 11 224 101 99
Spónn 94993 17 470 98 110
Frami 94996 65 1532 109 96
Kúnni 94997 29 742 109 97
Svaði 94998 41 1019 108 106
inum. Hrútarnir, sem sameina
þetta, verða því gullmolarnir í
ræktunarstarfinu á næstu árum öll-
um örðum framar.
Þama em það kollamir sem sýna
yfirburði í fitumati. Synir Spóns 94-
993 frá Smáhömmm sýna þama
bestu niðurstöðuna eða 110 að jafn-
aði í einkunn um þennan þátt. Þeim
er fylgt fast eftir af sonum Grafar-
hrútanna Vasks 90-937 og Skjanna
92-968. Hjá sonum Hörva 92-972
koma skýrt fram löngu þekktir eigin-
leikar hans til skertrar fitusöfnunar,
en fyrir gerð gefa þessir hrútar nokk-
uð slakari útkomu en margir aðrir
hymdu hrútanna. Hjá sonum Svaða
94-998 hefúr aftur á móti tekist að
sameina gerð og litla fitu, sem hlýtur
að vera það eftirsóknarverðasta.
Þegar litið er á flokkun með tilliti
til vöðvafyllingar koma synir Kráks
87-920 með besta útkomu. Hér er
aðeins um að ræða nokkuð fullorðna
hrúta sem ættu að vera orðnir tals-
vert valdir með tilliti til fyrri
reynslu, en þessir hrútar em löngu
þekktir af því að skila miklum kjöt-
gæðum. Þá er einnig feikilega góð
útkoma hjá sonum Garps 92-808 og
Búts 93-982, sem er alveg í sam-
ræmi við flokkun lamba undan þeim
sjálfum og áður er nefnt. Þeir synir
Garps, sem þama um ræðir, em að
vísu allir tilkomnir við notkun hans
áður en hann kom á stöð vegna þess
að fyrstu afkvæmi hans eftir
sæðingar vom lömb haustið 1998.
Þegar litið er til hymdu hrútanna
þá má greina vissa hópa á meðal
þeirra. Langsamlega stærstur er þar
hrútahópurinn frá Hesti. Þegar nið-
urstöður þeirra em skoðaðar má
fullyrða að hér fáist enn ein stað-
festing á yfirburðum hjá þessu fé í
kjötgæðum, þó að ekki séu þær nið-
urstöður jafn afdráttalausar og fyrir
ómsjármælingar síðustu árin. Flest-
ir þessir hrútar em að skila hrútum
sem bæta flokkun með tilliti til
vöðvafyllingar, gagnvart fitu em
þeir aðeins breytilegir en fáir hrútar
sem gefa til vansa feitt. Nokkur
hópur hrúta hefur verið í notkun af
Snæfellsnesi. Synir margra þeirra
eru að skila sláturlömbum með
mjög góða gerð, en margir þeirra
gefa hins vegar of mikla fitu hjá af-
kvæmum sínum. Nokkrir hrútar frá
Oddgeirshólum eiga þarna stóra
sonahópa og þeir hrútar em að
reynast nokkuð breytilegir, synir
bæði Glóa 88-927 og Goða 89-928
virðast skila of fitusæknum dilkum.
Að síðustu er rétt að benda á að
þegar litið er yfir töfluna sést glöggt
að yngri hrútamir em að skila
vemlega betri niðurstöðu en gömlu
hrútamir. Þetta gerist þrátt fyrir það
að synir gamlingjanna ættu nánast
upp til hópa að vera valinn hópur á
gmndvelli fyrri reynslu. Þetta er því
aðeins enn ein bending um það að
val í stofninum síðustu ár með tilliti
til aukinna kjötgæða sé að skila sér í
vemlegum framfömm. Eins og ég
hef verið að benda á verða bændur
að vera vel á verði með að vera ekki
að halda alltof lengi í hrúta sem ungir
vom sæmilegar kindur en em þegar
þeir reskjast löngu orðnir úreldir.
Flokkun fyrir gerð hjá sláturlömbum úr fjárrœktarfélögunum og utan félag-
anna haustið 1998.)
Kjötmat 1998
15
10
5
0
■ Félög ■ Utan
Fituflokkun ífjárrœktarfélögunum og utan félaganna haustið 1998.
52 - FREYR 4-5/2000