Freyr - 01.05.2000, Page 59
Tignarlegir hrútar af Merino kyni. Takið eftir fellingunum á hálsi og bringu.
heimsmarkaði á kjöti. Ríkjandi hefð
í sölu á lambakjöti var sala á heilum,
frystum skrokkum sem aðallega
vom sendir til Bretlandseyja. Á
seinni ámm hefur þetta verið að
breytast og aukin áhersla er lögð á að
selja kjötið stykkjað og unnið að ein-
hveiju leyti, bæði frosið og einnig
kælt í lofttæmdum umbúðum. Mark-
aðssókn hefur átt sér stað á megin-
landi Evrópu og í Bandarrkjunum og
menn telja sölumöguleika þar mikla
vegna þess hve neysla á lambakjöti
er lítil. I Bandankjunum hefur verið
lögð áhersla á kjöt til grillsteikingar
með góðum árangri, að öðm leyti en
því að sauðljárbændur þar í landi em
lítt hrifnir og reyna að koma á við-
skiptahömlum á innflutning á nýsjá-
lensku lambakjöti. Umræða um ein-
hvers konar gæðastjómun og upp-
mnamerkingar á ull og kjöti er einn-
ig áberandi og hluti ullarframleiðsl-
unnar er kominn inn í slíkt kerfr þar
sem ákveðnar reglur em um öll stig
framleiðslunnar allt frá bónda til full-
unnar vöm.
Aukinn vöðvi og minni fita er líka
áherslumál sem unnið er að á ýmsum
vígstöðvum. Notkun hrúta af hold-
miklum kynjum fer vaxandi, yfirleitt
eingöngu til framleiðslu á slátur-
lömbum. Texelfé var flutt til lands-
ins fyrir allmörgum ámm m.a. í
þessu skyni. Notkun Texel hrúta
hefur þó ekki náð vemlegri út-
breiðslu enn sem komið er og al-
gengara að menn noti hrúta af bresk-
um „down“ kynjum. Mikill áhugi er
á rannsóknum á vöðvasöfhunareig-
inleikum í Dorset fé þar sem fundist
hafa ættir með stærri bakvöðva en al-
mennt gerist. Þetta em sennilega
áhrif af stökum erfðavísi sem hefur
verið kallaður Carwell-genið og
líkur era á því að hann sé í sama sæti
og svokallað Callipyge-gen sem
fannst í bandarísku Dorset fé og hef-
ur verið mikið rannsakað þar. Car-
well genið hefur fyrst og fremst áhrif
á stærð bakvöðva eftir því sem best
er vitað og rannsóknir standa nú yfir
á hugsanlegum öðmm áhrifum
erfðavísisins, m.a. hvort munur sé á
kjötgæðum. Sömuleiðis er unnið að
umfangsmiklum rannsóknum á erfð-
um vefjahlutfalla í kjöti og tengslum
við aðra eiginleika þar sem nýttar em
úrvalslínur sem valdar hafa verið
annars vegar fyrir mikilli síðufitu og
hins vegar gegn síðufitu. Markmiðið
er meðal annars að finna merkigen
sem tengjast vöðvasöfnunareigin-
leikum og nota DNA próf til að finna
einstaklinga með æskilega arfgerð.
í þessum rannsóknum er notað
sneiðmyndatæki, eitt af fáum í heim-
inum sem notuð em til rannsókna á
búfé. Með þessu tæki er unnt að
mæla vefjahlutföll mjög nákvæm-
lega í lifandi skepnum. Tækið er
einnig notað til þess að þjóna rækt-
unarbúum sem rækta holdmikið fé.
Þá er valið fyrst eftir ómsjármæling-
um en bestu hrútamir síðan sendir í
sneiðmyndamælingu og endanlega
valið eftir þeim.
Líffænn sauðfjárbúskapur er ekki
útbreiddur á Nýja Sjálandi enn sem
komið er en nokkur áhugi er á slík-
um búskap, fyrst og fremst í tengsl-
um við mögulega markaðssetningu á
lífrænu kjöti í Evrópu. Nýlega kom
út skýrsla um markaðsmöguleika
fyrir lífrænt lambakjöt í Evrópu, þar
sem tahð er að markaðurinn muni
vaxa mjög hratt í framtíðinni og
mælt með því að Nýsjálendingar
stefni að sölu á lífrænu kjöti. í fljótu
bragði má ætla að möguleikar á líf-
rænni ffamleiðslu séu allgóðir, sér-
staklega vegna mikillar smárarækt-
unar. Það helsta sem kemur til með
að auka kosmað em vamir gegn ill-
gresi og sníkjudýmm þar sem lyfja-
notkun er veruleg í hefðbundinni
framleiðslu.
Lokaorð
Hér að framan hefur verið stiklað
á stóm um það helsta sem fyrir augu
bar í dvöl minni á Nýja Sjálandi og
von mín er að lesendur séu einhverju
fróðari eftir. Nýsjálendingar em
víða í fararbroddi í búfjárrækt og
ástæða til að ætla að þeir muni halda
áfram að sækja fram og því er
áhugavert að fylgjast með þróun
landbúnaðar þar.
Hægt er að nálgast upplýsingar um
nýsjálenskan landbúnað og tengt efni
á intemetinu og em nokkrar slóðir til
dæmis: www.agresearch.cri.nz
(AgResearch rannsóknastofnunin
sem greinarhöfundur dvaldist við),
www.nzmeat.co.nz (New Zealand
Meat Board - markaðsmál varðandi
kjöt o.m.fl.), www.woolnet.co.nz
(sölukerfi fyrir ullarviðskipti, með
tengingum við ýmsar upplýsinga-
veitur um ull og ullarffamleiðslu).
FREYR 4-5/2000 - 59