Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.2000, Qupperneq 14

Freyr - 01.09.2000, Qupperneq 14
Sauðfjárveikivamir leyfðu það ekki. Eg vildi ekki fé úr Þistilfirði því að þar eru svo mikil landgæði en ég bý við landþrengsli, einkum vegna hrossanna hér á svæðinu. Ég sótti því um að fá fé frá Snæfells- nesinu, því að þar þekkti ég landið. Ég vildi gjaman kaupa fé frá Hjarð- arfelli en ég ráðfærði mig við Leif- ur Jóhannesson, fyrmm ráðunaut Snæfellinga, hvar best væri að kaupa lömb og ráðlagði hann mér að kaupa fé á Hofsstöðum í Staðar- sveit, því að þar væri mikið af fé ættuðu frá Hesti. Égkaupi um 120 lömb, helming frá hvomm bæ, og þar að auki fimm hrúta á Hjarðar- felli og einn á Hofsstöðum. Ég hleypti til gemlinganna og notaði Hofsstaðahrútinn Frey á Hjarðarfellslömbin en hann var sæðingalamb undan Krák frá Hesti. Hann varð gersemi, bæði sem einstaklingur og sem kynbóta- gripur, og hér byrjar glópalánið aft- ur því að ég hafði aldrei reiknað með að ná aftur upp jafngóðu féð og ég átti fyrir fjárskipti en annað er nú komið í ljós, þetta fé sem er hér núna er síst lakara en það sem var fyrir og ég á það fyrst og fremst að þakka því að hafa fengið lömb frá miklum ræktunarmönnum og þenn- an frábæra einstakling sem Freyr var. Næsta haust setti ég allar gimbr- amar á en lógaði hrútlömbunum. Þau lögðu sig með 21 kg í meðal- Freyr Kráksson frá Hofsstöðum. þunga en það fóm 60% í C-flokk, sem var mesti fituflokkurinn, örfá í A-flokk en hin í B-flokk. En þessi fáu A- og B-lömb vom undan Frey. Arið eftir kom strax í ljós að gemlingamir undan Frey mjólkuðu vel og tvævetlumar vom úrvals af- urðaær. Núna, átta ámm síðar, em nánast allar hrútsmæður hér undan eða út af Frey. Við byrjuðum strax haustið 1993 að fá sæði í æmar á öðmm vetri og síðan höfum við alltaf sætt 30 - 40 ær ef þess er kostur og næstum allt frá Hesti eða af þeim ættum. Eitt haustið setti ég á fjóra lambhrúta undan Hörva frá Hesti, þeir vom all mismunandi að gerð en allir gáfu þeir litla fitu og sonarsonur hans, Nagli, er besti hrútur búsins núna. Þetta fé þolir mjög vel bötun á káli án þess að fitna um of en hreinrækt- aða féð frá Hjarðarfelli þolir það illa en æmar þaðan voru góðar mæður, frjósamar og mjólkurlagn- ar. Hvernig hagar þú haustbeitinni ? Það er venjulega farið hér í fyrstu göngur viku af september og þá fá- um við hátt í 70% af fénu. Það er komið hingað um 10. september og er þá allt vigtað og þuklað í vigtinni og flokkað úr henni. Þetta em oft um 250 lömb og þá em tekin strax úr til slátmnar um 60-70 lömb eftir holdafari og lógað 2-3 dögum seinna. Mikið af því em gimbrar og einlembingar og nokkur lamb- gimbrarlömb, eða allt það fé sem er það holdmikið á bak að það hefur ekkert með kál að gera. En úr þess- um hópi eru þau fáu lömb sem við fáum í fituflokk 5, en þau koma ekki af kálinu. Svo er líka teknar frá nokkrar lífgimbrar sem fá að vera með mæðmnum í úthaga um haustið. Öll önnur lömb eru tekin frá mæðmnum og sett á kál. Svo tíni ég inn á kálið önnur lömb jafnóðum og þau skila sér heim, mest eftir næstu göngur sem eru viku seinna. Lömbin em á káli í kringum fjórar vikur, helst ekki styttra. Fyrsta vik- an fer nánast í lítið. Lömbin em að venjast kálinu og við að reka þau í það og með hafa þau tún, hluta áborin en mest óáborin, um 20 ha en nánast engan úthaga. Vandi okk- ar er sá að 10-15% af lömbunum eru að heimtast alveg fram undir það að sláturtíð lýkur og er það bölvað tap. Hefur þessi beit þá ekki lent fram í snjóa? Jú, við höfum lent í því, fyrir tveimur ámm fór að snjóa um miðj- an október eða um lok beitartímans, þá varð allt haglaust, féð svo fram- barið að það varð að taka það allt inn. Það tók tvo sólarhringa að þíða úr því snjóinn áður en ég gat sett lömbin í sláturhús. Það hefur snjó- að oftar en ekki til stórra vand- ræða, og þetta eru undantekningar. Það kál sem lömbin nýta ekki hafa kálfar og æmar fengið. Hvað hefurðu mikið land undir káli? Ég hef þetta 1,5-2,0 hektara og það þarf að skipta um land á fárra ára fresti. Það sækir arfi í kálið en það má tefja mikið fyrir honum með því að plægja. Svo þegar landinu er lokað þarf að sprauta gegn arfa svo að grasið nái yfir- höndinni. Þegar ég stækkaði túnin um helming árið 1974 og ræktaði 20 hektara, þá sáði ég Engmo-vallar- 14 - FREYR 8/2000

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.