Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2000, Blaðsíða 27

Freyr - 01.09.2000, Blaðsíða 27
Eignarréttur „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 vill benda á virðingarleysi ríkisstjómar og Al- þingis fyrir eignarétti bænda og bendir í því sambandi á kröfur full- trúa ríkisins í eignarlönd í krafti þjóðlendulaga og samþykktar breytingar á vegalögum, sem tóku gildi 1. júní árið 2000, sem færa ráðherrum og vegamálastjóra mun víðtækari heimildir til eignamáms á landi en áður var. Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda mót- mælir harðlega þeim yfirgangi og valdníðslu sem í þessum aðgerðum felst.“ Samræmt kjötmat „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 leggur áherslu á að kjötmat sé ávallt samræmt á landsvísu og að snyrting fyrir inn- vigtun sé það einnig. Jafnframt er því beint til Yfirkjötmats að sjá til þess að reglugerð um slátmn og snyrtingu í sláturhúsum verði hald- in. Þá leggur fundurinn áherslu á að auðveldað verði að fá yfirmat án teljandi kostnaðar fyrir bændur telji aðilar að misbrestur sé á mati.“ Viöskiptakjör sauðfjárbænda „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 skorar á stjóm LS að hún sjái til þess að afurða- stöðvar gefi upp verð og viðskipta- kjör til sauðfjárbænda eigi síðar en 15. ágúst ár hvert og verði þær upp- lýsingar birtar í Bændablaðinu.“ Útflutningsprósenta „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 leggur til að útflutningshlutfall í september og október 2000 verði 20 %. Jafnframt er lagt til að útflutnings- skylda næsta árs taki ekki gildi fyrr enn 20. ágúst og sé felld niður eftir 5. nóvember.“ Slátrun í ágúst, nóvember og desember „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 leggur til að skoðað verði hvað selst af fersku kjöti af dilkum sem slátrað er í ágúst, nóvember og desember. Einnig að séð verði til þess að það aukna kjötmagn sem verður til vegna uppkaupa í haust komi ekki til með að hækka útflutningspró- sentu árið 2001.“ Vatnsrýrnun „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 beinir því til stjómar LS og kjötmatsformanns að endurmetnar verði reglur um vatnsrýrnun kjöts í slátrun en breyttar vinnslulínur í sláturhúsum kalla á slíka endurskoðun.“ Viðskipti með kindakjöt milli sláturleyfishafa „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 beinir því til stjómar LS að hún kanni hvort verðlagning á kindakjöti hindri eðlileg viðskipti milli sláturleyfis- hafa og leitist við að koma í veg fyrir að svo verði ef um þetta er að ræða.“ Gæruviðskipti „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 lýsir megnustu óánægju yfir því hvemig afurða- stöðvamar hafa markaðssett gæmr og felur stjóm að beita sér fyrir því að þær verði markaðssettar þar sem hæsta mögulegt verð fæst, hvort sem það verður innanlands eða utan.“ Hækkun viðmiðunar- verðs umfram vísitölu „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 beinir því til stjórnar að á næsta ári verði viðmiðunarverð hækkað umfram vísitölu.“ Kjötflokkur R3 hækki „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 samþykkir að á næsta hausti verði R3 hækkað um- fram aðra flokka í viðmiðunarverð- skrá LS.“ Afurðir seldar heima „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 beinir því til stjómar að þrýsta á að lögum og reglugerðum verði breytt þannig að bændur geti selt afurðir heima á sínum lögbýlum án þess að til komi óheyrilegur stofn- og eftirlits- kostnaður.“ Kynning meðal barna í grunn- og leikskólum „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 beinir því til stjómar samtakanna að tryggja að framhald og aukning verði á kynn- ingu í leik- og gmnnskólum í þétt- býli á framleiðsluferli á sauðfjárbú- um. Þessi kynning verði bæði gerð með heimsóknum bama á sveitabæi og heimsóknum bænda í skólana.“ Lambaorðan „Aðalfundur Landssamtaka sauð- Qárbænda árið 2000 telur veitingu „Lambaorðunnar“ gott framtak og líklegt til að auka metnað kjötiðn- aðarmanna til vömþróunar lamba- kjöts. Ef hægt er að gera þetta að föstum viðburði ásamt viðurkenn- ingu til þeirra sem sýna frumkvæði í vinnslu og sölu lambakjöts, er það líklegt til að virka sem hvati í sölu afurða.“ Félagaskrá „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 samþykkir eft- irfarandi viðbót við 4. grein sam- þykkta samtakanna: Fyrir aðalfund hvers árs skal ávallt liggja fyrir fullnægjandi fé- lagaskrá samkvæmt ákvæðum í 4. greinar samþykkta Bændasamtaka íslands.“ Jöfnunargreiðslur „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda árið 2000 beinir því til Framkvæmdanefndar búvömsamn- inga að kanna hvort framkvæman- legt sé að bændur, sem ráðstafað hafa framleiðslu sinni á annan hátt en í sláturhús, geti sótt um jöfnun- argreiðslu vegna þessa.“ FREYR 8/2000 - 27

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.