Freyr - 01.09.2000, Blaðsíða 21
Tafla 7. Meðalþungi og þyngdarbreytingar lembdra og geldra gemlinga, kg.
Þungi, kg. Þyngdarbreytingar, kg
Lembdir Tala 23/9 18/10 7/12 11/1 11/2 25/3 27/4 23/9- 18/10 18/10 7/12 7/12 11/1 11/1- 11/2 11/2- 25/3 25/3- 27/4 23/9- 27/4
Valdir, Heststofti 57 39,4 42,6 43,1 46,1 49,6 55,2 63,2 3,2 0,5 3,0 3,5 5,6 8,0 23,8
Dætrahópar, Hestst 46 37,2 39,6 40,3 43,7 46,5 51,7 59,3 2,4 0,7 3,4 2,8 5,2 7,6 22,1
Reykhólastofti 9 37,6 40,6 40,6 42,3 46,3 51,6 58,1 3,0 0,0 1,7 4,0 5,3 6,5 20,5
Lemdir samt. 112 38,0 40,9 41,3 44,1 47,5 52,8 60,2 2,9 0,4 2,8 3,4 5,3 7,4 22,2
Geldir 16 38,1 41,6 42,0 44,5 46,8 49,3 53,3 3,5 0,4 2,5 2,3 2,5 4,0 15,2
Samtals 129 38,4 41,3 41,9 45,0 48,0 53,1 60,4 2,9 0,6 3,1 3,0 5,1 7,3 22,0
voru á húsi og eins eftir að þeir
komu út, ásamt 200 g af hápró.tein-
blöndu. Heildar fóðurnotkunn á
gemling yfir gjafartímann var 223,4
FE sem er 18,4 FE meira en sl.
vetur.
Tafla 7 sýnir meðalþunga og
þyngdarbreytingar gemlinganna. I
septemberlok var meðalþungi
ásetningsgimbranna 37,9 kg sem
er nákvæmlega sami þungi og
haustið áður. Á haustbeitinni
þyngdust gimbrarlömbin um 2,9
kg til jafnaðar en stóðu í stað að
heita má eftir að þeir komu í hús
og til desemberbyrjunar. Yfir
fengitímann þyngdust gimbrarnar
um 3,1 kg, og frá fengitímalokum
til marsvigtunar þyngdust þær um
8,1 kg til jafnaðar. Síðustu 6 - 8
vikurnar fyrir burðinn nam meðal-
þynging allra lambanna 7,3 kg.
Lembdir gemlingar þyngdust þá
um 7,4 kg en þeir geldu um 4,0
kg.
Yfir veturinn þyngdust geml-
ingarnir um 22,0 kg til jafnaðar
sem er 2,7 kg meiri þynging en sl.
vetur. Lembdir gemlingar þyngd-
ust um 22,2 kg og er það 1,7 kg
meiri þynging en sl. vetur, en þeir
geldu um 15,2 kg og er það 1,5 kg
meiri þynging en sl. vetur. Þessi
þynging gemlinganna er með því
mesta, sem átt hefur sér stað á bú-
inu hingað til. Á linuriti 2 er
sýndur vaxtarferill lembdra og
geldra gemlinga yfir veturinn.
Hleypt var til allra gimbranna.
Alls festu fang 113 gemlingar af
þeim 129, sem lifandi voru við
vorvigtun, eða 87,6%. Af völdu
gemsunum urðu 15 tvílembdir, 42
einlembdir og 11 geldir og í
dætrahópunum urðu 5 tvflembdir,
41 einlembdur og 5 geldir. Af
Reykhólastofninum urðu 5
tvflembdir og 4 einlembdir. Alls
Tafla 8. Fæðingarþungi gemlingslamba, kg
Lömb 1999 1998 1997 1996 1995 1994
21 tvíl. hrútar 2,56 2,79 2,94 2,59 2,58 2,67
26 tvfl. gimbrar 2,78 2,70 2,64 2,75 2,59 2,78
43 einl. hrútar 3,81 3,84 3,75 3,62 3,69 3,78
44 einl. gimbrar 3,52 3,74 3,72 3,48 3,65 3,55
fæddust því 135 lömb eða 1,22
lamb á gemling sem bar (einn lét
tveimur fóstrum og einn drapst
með einu fóstri), en 1,05 lamb á
hvern gemling, sem hleypt var til.
Af 135 lömbum misfórust alls 28
lömb eða 20,7%. Dauðfædd lömb
voru 3, þar af einn löngu dauður
og morkinn tvflembingur og því
ekki kyngreindur, og 5 fórust í
fæðingu. 14 lömb fundust dauð
fyrir fjallrekstur í fyrstu viku júlí
og á heimtur vantaði 6 lömb. Und-
ir ær voru vanin 5 gemlingslömb
og kom þau ekki til uppgjörs á
vaxtarhraða og afurðum gemlings-
lambanna.
Meðalfæðingarþungi gemlings-
lambanna er sýndur í töflu 8 ásamt
fæðingarþunga þeirra sl. 6 vor til
samanburðar.
Meðalfæðingarþungi allra lamba
var 3,32 kg og er það 0,2 kg minni
þungi en sl. vor.
FREYR 8/2000 - 21