Freyr - 01.11.2002, Qupperneq 2
Nautgriparæktartöflur
Bændasamtök íslands gefa árlega út margháttaðar töflur varðandi ræktun
nautgripa, auk þeirra taflna og upplýsinga sem birtar eru í Frey. Þessar
töflur, nefndar Nautgriparæktartöflur, eru til sölu hjá BÍ.
Nautgriparæktartöflur yfir ræktunarstarfið árið 2001 komu út á sl. sumri og
kosta kr. 1.200, en kr. 1443 að viðbættum sendingarkostnaði.
Unnt er að panta ritlinginn með því að hringja til Bændasamtakanna, senda
meðfylgjandi pöntunarseðil útfylltan í pósti eða senda tölvupóst.
Ég óska eftir að kaupa Nautgriparæktartöflur fyrir árið 2001.
Nafn _____________________________________ Kennitala _____________________
Heimili___________________________________________________________________
Póstnúmer Póstumdæmi
Sími: 563 0300
Bréfsími: 562 3058
Netfang: sth@bondi.is
Viðtakandi:
Bændasamtök íslands
Bændahöllinni v/Hagatorg
107 Reykjavík
Molar
ÓSAMKOMULAG UM
GREIÐSLU KOSTNAÐAR
VEGNA VARNA GEGN
SALMÓNELLUSÝKINGUM
í ESB
Aöildarlönd ESB hafa ekki náð
samkomulagi um það hvernig
standa skuli straum af kostnaði
vegna varna gegn salmónellu-
sýkingum innan sambandsins.
Hins vegar er nánast einhugur
um að auka þurfi þetta eftirlit í
flestum löndum sambandsins, en
um 160 þúsund manns smitast
þar af veikinni árlega. Deilan
stendur um það hvort hvert land
skuli kosta sitt eftirlit sjálft eða
hvort greiða skuli það úr sameig-
inlegum sjóðum ESB.
(Bondebladet nr. 43/2002).
VÍNANDI ÚR SVÍNASKÍT
Förgum svínaskits er við-
kvæmt mál í Danmörku, enda
svínarækt þar mjög umfangsmik-
il, en um 23 milljónir grísa eru
aldir þar upp á ári.
Skíturinn veidur lyktarmengun
en einnig mengar hann ár og
vötn og síðan hafið í kring ef
hann berst þangað. Skíturinn
eykur vöxt þörunga í vatni sem
eyðir súrefni þess og í framhaldi
af því geta fiskar og önnur dýr
drepist.
Danir hafa nú hafið könnun á
því hvort unnt sé að framleiða
vínanda úr svínaskít á hag-
kvæman hátt, en vínandi má
m.a. nota sem orkugjafa fyrir vél-
ar. Tilraunir á rannsóknarstofu
hafa leitt I Ijós að unnt sé að
framleiða vínanda úr svínaskít
en enn er ekki komið í Ijós hvort
aðferðin standi undir sér í verk-
smiðjurekstri.
(Bondevennen nr. 41/2002)
\ 2-Freyr9/2002