Freyr - 01.11.2002, Síða 18
Afkastageta búvélanna -
afkastaþörf og kostnaður
Með hækkandi tæknistigi
kúabúanna hefur meðal-
kostnaður þeirra af vélum farið
vaxandi. Greining á niðurstöð-
um búreikninga sýnir að oftast
er fasti kostnaðurinn meiri
hluti útgjalda vegna véla og
tæknibúnaðar búanna. I bar-
áttunni við búvélakostnaðinn
er því að öðru jöfnu mest að
vinna með rannsókn á fasta
kostnaðinum - vöxtum, af-
skriftum og öðrum útgjaldalið-
um sem eru óháðir árlegri
notkun vélanna. Tvö atriði
skipta meira máli en önnur
þegar kemur að fasta kostnað-
inum:
* augnablikið þegar vélakaupin
eru ákveðin, og
* verkin sem vinna á með vél-
inni, þ.e. magn (eða tími).
Kaupaugnablikið
- HVER ER VÉLARÞÖRFIN?
Þegar vélarkaupin eru ákveðin
er að miklu leyti lagður grunnur
að því hvert hið árlega afgjald af
vélinni verður. Seint verða því
kaupin of vel ígrunduð og undir-
búin. Einföld fíngraregla segir
okkur að kaupverð vélarinnar
megi margfalda með stærð í nám-
unda við 0,15-0,18 til þess að
fínna hinn árlega fasta kostnað.
Tökum dæmi: Sláttuvél kostar
650 þúsund krónur; veljum lægri
margföldunartöluna: 650.000 x
0,15 = 97.500 kr. má ætla að far-
ið geti í vexti, afskriftir, geymslu-
kostnað og fleira á hverju ári.
Setjum svo að árlega eigi að slá
60 hektara með vélinni; koma þá
1625 kr. á hvem þeirra. Það svar-
ar til tæplega 40 lítra af díselolíu
(til samanburðar: Við þurfúm
1. mynd: Vél er valin á grundvelli greiningar á verkþörfínni: Hve mikið verk
bíóur vélarinnar og hve mikið getur verkið greitt fyrir þessa notkun?
eftir
Bjarna Guðmundsson,
Landbúnaðar-
háskólanum
á Hvanneyri.
mun minna af olíu til þess að slá
einn hektara!).
Vissulega getur hver og einn
reiknað fasta kostnaðinn ná-
kvæmar út samkvæmt eigin for-
sendum. Skattaleg sjónarmið
kunna að skipta máli. Áætluð
ending vélarinnar og meðferð
hennar ráða líka miklu um hinn
raunverulega fastakostnað hvers
árs.
Ákvörðun um vélarkaup bygg-
ist á því að þörfín fyrir vélina
hafí verið greind sem nákvæmast.
Þörfín kann að vera samsett úr
fleiri þáttum, svo sem
- þörf fyrir meiri vinnuafköst
- þörf fyrir betri vinnubrögð
- þörf fyrir öruggara/traustara
vinnutæki eða vinnuumhverfi
- þörf fyrir skemmtilegri vél! ...
o.s.ffv.
Það er gerlegt að meta hvem
þessara þátta til verðs. Reynist
summa ábatans af þeim öllum,
miðuð við árið, vera hærri en
áætlaður árskostnaður við rekstur
vélarinnar (fastur + breytilegur)
em kaupin fysilegur kostur - ella
ekki. Nánari lýsing á þessari mats-
aðferð er í greininni Val dráttar-
véla - hentug stærð og hag-
| 18-Freyr 9/2002