Freyr - 01.11.2002, Qupperneq 24
Tafla 3. Vergar þáttatekjur á sérhæfðum kúabúum 2000
og 2001 samkvæmt uppgjöri búreikninga (í þúsundum króna
á verðlagi hvers árs).
2000 2001
Hagnaður fyrir laun eiganda 1.928 1.989
Laun og launatengd gjöld 465 516
Afskriftir 2.334 2.543
Fjármagnsliðir 808 1.003
Alls 5.535 6.051
Grundvallarregla viö gerð rekstraruppgjöra er að jafna gjöldum á móti tekjum
sem aflað er á tilteknu tímabili. í flestum tilvikum er slík samjöfnun tiltölulega
auðveld en með suma gjaldaliði gegnir öðru máli og þá einkum þær tegundir
gjalda sem erfitt er að úthluta á tímabili. Dæmi um slíkt eru afskriftir
fastafjármuna. I samræmi við reglurnar um að jafna beri gjöldum á móti
tekjum ætti að dreifa afskriftum á þau tímabil sem viðkomandi eign aflar
tekna. En Ijóst má vera aö erfiðleikum kann aö vera bundið að segja til um
þaö af nákvæmni hversu lengi fjármunir muni duga viö tekjuöflun og raunar
einnig hversu mikið þeir rýrna viö notkun á hverju uppgjörstímabili. Af þessu
má ráða aö afskriftir eru ávallt háðar mati semjanda reikningsskilanna (í
þessu tilviki bóndans). I annan stað má geta þess að fjárfestingar taka
gjarnan mið af langtimamarkmiöum. Ársuppgjör lýsir hins vegar skammtima-
stöðu þar sem afskriftir geta haft veruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu. Þaö er
meðal annars af ofangreindum ástæðum sem erfitt getur reynst að sjá með
beinum hætti hver sé raunverulega afkoma i rekstraryfirliti og skýrir
ástæöuna fyrir því að sýna hana einnig samkvæmt vergum þáttatekjum. Til
skýringar má geta þess, að vergar þáttatekjur eru einkum notaöar þegar
fjallað er um tekjuskiptingu í þjóðhagsreikningum og til að greina hvaö er til
skiptanna á milli launþega og fyrirtækjanna. Orðið "vergur" er fornt og er
notaö hér sem þýöing á "brúttó". Vergar þáttatekjur reiknast sem samtala
hagnaðar fyrir laun eiganda, greiddra launa og launatengdra gjalda, afskrifta
og fjármagnsliða og nýtist hér sem mælikvarði á hvaö er til skiptanna á milli
vinnuafls og fjármagns.
milljónir króna, eða 12%. Mest
munar um hærri tekjur vegna
aukins mjólkurinnleggs, auk þess
sem kaup á auknu greiðslumarki
[á árinu 2000] skilar hlutfallslega
hærri tekjum á árinu 2001.
Hærri búgreinatekjur ná þannig
að vinna á móti 11,3% hækkun
breytilegs kostnaðar. Framlegðar-
stigið hækkar þar af leiðandi um
1% á milli ára eða úr 63% í 64%.
Svipuð hækkun kemur einnig
fram í hálfföstum kostnaði eða
9%, sem skýrist einkum af aukn-
Tafla 4. Rekstrarþættir sem hlutfall af heildartekjum2 á sérhæfðum kúabúum 2000 og 2001 samkvæmt uppgjöri búreikninga, í %.
2000 2001
Viðmiðun: Heildartekjur (í þús. kr.) 10.372 11.393
Búgreinatekjur 91 93
Breytilegur kostnaður 33 34
Framlegð 58 59
Hálffastur kostnaður 18 18
Afskriftir 23 22
Fjármagnsliðir 8 9
Aðrar tekjur 9 7
Hagnaður fyrir laun eiganda 19 17
2 Heildartekjur= búgreinatekjur alls + aörar tekjur.
um framkvæmdum við útihús.
Afskriftir lækka á milli ára þótt
niðurfærsla greiðslumarks auk-
ist. Það endurspeglar minni fjár-
festingar á árinu 2001, en þær
lækka um nær 600 þúsund krónur
ffá árinu á undan. Um 42% heild-
arfjárfestinga 2001 er vegna
kaupa á greiðslumarki samanbor-
ið við 32% árið á undan. Hlut-
fallsleg hækkun fjárfestinga í
greiðslumarki er þannig veruleg á
milli ára.
Töluverð skuldaaukning er á
milli ára eða 3 milljónir króna
(23,4%). Á hinn bóginn er ljóst
að aukin umsvif búanna kalla á
auknar fjárfestingar [í frarn-
leiðsluþáttunum] sem koma til
með að skila auknum tekjum, til
lengri tíma litið.
Að teknu tilliti til vaxtatekna
og verðbreytingarfærslu nemur
hækkun fjármagnsliða nær 24% á
milli ára, en hrein hækkun vaxta-
gjalda nemur hins vegar 826
þúsund krónum eða 71%.
Hagnaður fyrir laun eiganda
hækkar lítillega á milli ára eða úr
rúmlega 1,9 milljónum króna í
tæpar 2,0 milljónir króna (3,2%),
launagreiðslugeta hækkar um tæp
5% og vergar þáttatekjur hækka
um 500 þúsund krónur (9,3%) í
6,0 milljónir króna. Á móti rým-
ar höfuðstóll um 9,3% og eigin-
fjárhlutfall um 5%.
Rekstrar- og efnahagsyfírlit
ársins 2001 eru til marks um að
sérhæfð kúabú ná að skila
viðunandi afkomu á árinu 2001
(samanborið við árið á undan).
Hvom tveggja kemur til, kaup á
greiðslumarki og bætt nýting
sem skilar sér aukinni framleiðs-
lu og aukinni framleiðni. I ljósi
umtalsverðra kaupa á greiðs-
lumarki á árinu er ekki óeðlilegt
að eiginQárstaða falli
tímabundið.
Þótt heildarfjárfestingar falli á
milli ára í krónutölu em þær um-
| 24 - Freyr 9/2002