Skátablaðið - 01.12.1960, Síða 26
Einn af kennurunum, Eirikur Jóhannesson.
undir umsjón kennara. Þá eru kennd
ýmis skátafræði, verkleg og skrifleg, einn-
ig fá nemendur verkefni til úrlausnar.
3. áfangi er fólginn í því, að stjórna sveit
í fjóra mánuði eftir áður gerðri dagskrá
og halda dagbók um það.
Nú í sumar var haldið 2. Gilwell-nám-
skeiðið hérlendis á vegum B.Í.S. Leiðbein-
andi námskeiðsins var framkvæmdastjóri
norska Gilwell-skólans, Odd Hopp, en
skólastjóri var Björgvin Magnússon. Alls
sóttu námskeiðið 22 skátaforingjar frá 9
stöðum á landinu.
Dagarnir voru fljótir að líða þessa viku
á Úlfljótsvatni Dagurinn var tekinn snemma
og eftir morgunverð og stranga tjaldskoð-
un, hófst kennsla, ýmist inni eða úti, verk-
leg eða skrifleg. Eftir miðdegisverð voru
tvær kennslustundir og um kvöldið kvöld-
vaka. Okkur fannst öllum að í sólarhringn-
um mættu vera 28 stundir, svo við hefðum
tíma til að skrifa hjá okkur það markverð-
asta, sem gerzt hafði um daginn.
Við komumst að raun urn að skátahreyf-
ingin er frekar á undan tímanum, því eitt
kvöldið lentu geimskip þarna og kom til
„blóðugra" átaka með geislabyssum (vasa-
ljós). Einnig áttum við að fara yfir geisla-
virkt fljót á vindubrú. Svona rnætti lengi
halda áfram, en það var ekki allt leikur,
því einnig var rætt um efni alvarlegs eðlis,
svo sem trúarbrögð.
Það, sem bar hæst, var „Hike“-ferðin,
en hún tók 25 tíma, og báru menn allan
farangurinn og matarskammtinn í bakpok-
um. Vegalengdin, sem farin var, var yfir-
leitt 25—30 km, og var leiðin ekki valin á
auðveldustu stöðum.
f ferðinni bar margt á góma. f einum
iiokknum svaf einn uppi á ísskáp um nótt-
ina og hann fullyrti daginn eftir, að hinn
fíni titringur frá mótornum hefði valdið
því, að hann var ekki með harðsperrur þeg-
ar hann vaknaði.
í öðrum flokki ætluðu meðlimirnir að
nota tækifærið, er bóndinn hóf mjaltir, og
færa dagbækur sínar. Settust þeir á smá-
skemla á gangstétt við flórinn, en áttu brátt
fótum fjör að launa, þegar beljugreyin tóku
að tæma skóhlífar sínar. Þar sannaðist mál-
tækið: „þegar ein belja......þá .... allar
hinar líka.“
Ég vil að lokum þakka skólastjóra og
kennurum fyrir ágæta kennslu og ánægju-
lega samveru, um leið og ég beini þeim
tilmælum til þeirra skátaforingja, sem vett-
lingi geta valdið, að fara á Gilwell, því
„Austur á Úlfljótsvatni er skátaháskólinn."
82
SKÁTABLAÐIÐ