Skátablaðið - 01.12.1972, Side 5
Skátahreyfingin á íslandi stendur nú á tímamótum, sem vert er aS
minnast með sóma, og hefur ýmislegt þar aS lútandi verið gert, t. d.
Tímamótamót Reykjavíkurskáta í sumar, og verður eflaust fleira gert á
þeirra vegum til aS minnast þessara tímamóta. Þetta eintak er helgaS 60
ára starfi íslenzkra skáta aS nokkru, m. a. annáll 60 ára starfs skáta á
Tslandi, nokkrir foringjar, bæSi af yngri kynslóSinni, svo og hinni eldri,
segja skoSun sína á málum hreyfingarinnar, efnt er til verSlaunagetraunar
og birtar margar rnyndir, bæSi gamlar og nýjar.
Þá er ekki úr vegi aS minnast á þann þátt, sem B.í. S. á í aS minnast
þessara tímamóta, en þaS er útgáfa veglegrar bókar um skátamál og ferSa-
lög almennt. Hvort ætlunin hefur veriS f upphafi aS bókin kæmi út á þessu
ári erum viS ekki vissir um, en alla vega er hún merkur áfangi í starfi
skátahreyfingarinnar.
Annar liSur í blaSinu, sem vert er aS minnast á, er sérstakur blaSa-
auki, og er þar greint frá helztu skátamótum, sem haldin voru á fslandi í
sumar, bæSi í myndum og máli.
Askriftafjöldi blaSsins jókst verulega í sumar, eSa nálægt 110%, sem
vissulega er góSur árangur, en betur má ef duga skal, því þrátt fyrir svo
mikla aukningu hlutfallslega, eru áskrifendur enn allt of fáir. Nú höfum viS
fengiS umboSsmenn í mörgum félögum landsins, og birtist skrá yfir þá
annars staSar í blaSinu. Skorum viS á einhverja aSila í þeim félögum, sem
enn vantar umboSsmenn í, aS gefa sig fram og leggja okkur liS meS því
starfi, sem umboSsstarf krefst. f seinasta tbl. auglýstum viS eftir um-
boSsmönnum, og buSum umboSslaun. ÞaS boS stendur enn, og meira aS
segja hafa þau veriS hækkuS all verulega.
Næsta tbl. sem koma á út í desember, verSur aS mestu helgaS jólun-
um, og vonumst viS til aS heyra frá ykkur tillögur aS efni í þaS blaS, eSa
jafnvel fá efni frá ykkur, hvort heldur sem eru frásögur, leikir eSa annaS,
sem hægt væri aS birta.
AS lokum sendum viS íslenzkum skátum, hvar sem er á landinu, beztu
hamingjuóskir í tilefni af 60 ára starfi drengjaskáta og 50 ára starfi kven-
skáta, og óskum hreyfingunni alls hins bezta á komandi árum.
MeS skátakveSju.
Ritstjórn.
SKATABLAÐIÐ
5