Skátablaðið - 01.12.1972, Page 21
KfOUHSE®!
★
★ ★
W JiLFJ JU U 'J
®jaBHKB® 11®?
VORMÓT HRAUNBÚA
Hraunbúar í Hafnarfirði héldu 33.
vormót sitt helgina 2.-4. júní, í Krísu-
vík. Mótsstjóri var ÞórSur Guðlaugs-
son. Þátttakendur voru um 400 frá
Hafnarfirði og Reykjavík. Rigning var
allt mótið, en þó ekki kalt. Rammi
mótsins var FRIÐUR. Ylfingar og ljós-
álfar komu í heimsókn á sunnudag. (Sjá
myndaopnu í 2. tbl. Skátablaðsins þetta
ár).
TÍ MAMÓTAMOT
Skátasamband Reykjavíkur gekkst
fyrir afmælismóti við Úlfljótsvatn,
helgina 6.-9. júlí, til að minnast 50 ára
starfs kvenskáta og 60 ára starfs
drengjaskáta. Mótsstjóri var Sigrún
Sigurgestsdóttir. Þátttakendur voru frá
Reykjavíkurfélögunum, Kópum, Kópa-
vogi og Vífli, Garðahreppi, og voru
þeir alls um 600. Rigning var svo til
allan tímann, en frekar hlýtt. Þá voru
um fjörutíu tjöld í fjölskyldubúðum.
Rammi mótsins var TfMINN, og voru
verðlaunagripir og gjafir til félaga í
samræmi við það, eða klukkur. Þá má
geta þess að veglegur mótsbæklingur
var gefinn út, og gaf prentsmiðjan Seg-
berg alla vinnu við hann. Ylfingar og
ljósálfar komu í heimsókn á mótið.
D RÓT TSKÁTAMÓT
Hamrabúar í Reykjavík voru búnir
að auglýsa og undirbúa mót fyrir eldri
skáta, og átti að halda það í Mardal um
18. ágúst, en því var aflýst vegna veð-
urs.
BOTNS DALSMÓT
Skátafélag Akraness gekkst fyrir
skátamóti í Botnsdal um Jónsmessuna.
Mótsstjóri var Guðbjartur Hannesson.
Þátttaka var víða af landinu. Voru um
700 þegar flest var, og er það fjöl-
mennasta mót, sem haldið hefur verið
á þessum stað. Má segja að veður hafi
verið gott, þó rigndi talsvert aðfara-
nótt laugardags og fram eftir deginum.
A laugardag var heimsóknardagur, og
kom þá fjöldi gesta, meðal þeirra var
forseti fslands, Dr. Kristján Eldjárn.
Rammi mótsins var NYTT, NYTT,
NYTT. Ylfingar og ljósálfar voru eina
nótt á mótinu.
LANDNEMAMÓT
Skátafélagið Landnemar héldu sitt
árlega skátamót í Viðey, og er það í
annað sinn, sem skátamót þeirra er
haldið þar. Mótsstjórar voru Þórður
Adolfsson og Haukur Haraldsson. Þátt-
takendur voru frá Reykjavík, Garða-
hreppi, Kópavogi, Njarðvíkum, Hafn-
arfirði, Keflavík, Akranesi og Vest-
mannaeyjum, og voru þeir um sex
hundruð. Mótsstjórn taldi eftir á, að
veður hefði verið gott, þó ekki sól, en
frekar lítil rigning.
SKÁTAMÓT
VARNARLIÐSINS
Skátar, búsettir á Keflavíkurflug-
velli, héldu sitt skátamót um verzlun-
armannahelgina, innan girðingar Kefla-
víkurflugvallarins. Ekki hefur blaðið
fregnað frekar af því, en vonandi verð-
ur hægt að segja eitthvað frá mótinu í
næsta tbl.
2 1
SKATABLAÐIÐ