Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.11.1943, Side 21

Sameiningin - 01.11.1943, Side 21
115 þeirra hjóna, prestshjónin frá Selkirk, séra Sigurð Ólafsson og frú Ingibjörgu. Ásamt með þeim séra Sigurði og frú Ingibjörgu, og með ýmsu fólki úr sókninni þar var eg svo í kvöldverðarboði á heimili prestshjónanna íslenzku og lútersku.Séra G. P. Jonsson var þó ekki heima þá, en Mrs. Jonsson veitti á okkur af mikilli rausn og myndarskap. Skemtu sér þar allir vel, en söknuðu þess mikið að presturinn var fjarverandi. Að kveldi þess sama dags var eg á fundi með all-mörgu fólki lúterska safnaðarins. Var þar samtal og ræðuhöld. Töluðum við um kirkjulegt starf þar, og um ýmislegt er snerti hag og heill safnaðarins. Eftir þetta samtal voru framreiddar veitingar, að íslenzkum sið. Rómuðu margir dugnað prestshjónanna er þarna starfa, og trúmensku þeirra við starfið. Er eg mjög þakklátur forseta hins lúterska safnaðar í Blaine, og mörgu fólki safnaðarins fyrir það vin- gjarnlega tækifæri er mér var þannig veitt til að kynnast þessum söfnuði og staðháttum og ástæðum þar. Áður var eg þar mjög' lítið kunnur. í seinustu ferð minni til Blaine kom eg aftur á heimili Mr. og Mrs. H. Johnson og naut þar aftur góðgjörða. Hitti eg þar líka aftur prestshjónin frá Selkirk. En líka heimsótti eg þá gamla kunningja, Mr. og Mrs. Halldór Halldórsson er hingað komu frá Leslie, Sask., en eru upprunnin frá Norður Dakota. Var ánægjulegt að vera með þeim þessa stund og endurnýja gamlan kunningsskap, og njóta góðgjörða hjá þeim. Seinni hluta dags keyrðu þau mig á stöðina, og hvarf eg þá aftur til Seattle. Eg fór líka nokkrar ferðir með mági mínum, L. H. Thorlakson til Point Roberts, því síðari hluta þessarar viku dvaldi kona hans ásamt með ungum syni þeirra í sumar- bústað þar á “tanganum”. Þó viðdvöl væri oftast stutt af því hann var bundinn störfum sínum í Vancouver, kyntist eg þar sumu íslenzka fólkinu. Og um helgina 18. júlí keyrð- um við þangað er messu var lokið í Vancouver. Þar flutti eg prédikun við guðsþjónustu, sem Rev. Neff stýrði. Er Rev. Neff nú að þjóna þessum söfnuði oklcar — Þrenningarsöfn- uði í Point Roberts. — Messar hann þar svo sem einu sinni í mánuði og stundum oftar. Annars er aðal starf hans að þjóna Redeemer-söfnuðinum í Vancouver, sem tilheyrir Pacific sýnódunni í U. L. C. A. Mun séra S. O. Thorloksson hafa fengið hann til að veita söfnuði okkar þessa hjálp þegar söfnuðurinn hafði enga þjónustu. Eftir guðsþjónust- una talaði eg stundarkorn við fulltrúa safnaðarins og' Rev.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.