Sameiningin - 01.11.1943, Síða 22
116
Neff. Var að heyra að fulltrúar safnaðarins væru mjög ánægð
ir með þá þjónustu, sem þessum presti var unt að veita
þeim. En presturinn var aftur á móti ekki viss um að sér
yrði mögulegt að halda áfram þessari þjónustu, vegna þess
að starf sitt í Vancouver væri að aukast og verða víðtækara.
Mun hann þó enn, er þetta er ritað, þjóna þar á svipaðan
hátt og þá var, og við góðan orðstír. Það var líka ánægja
að kynnast söfnuði þessum og fólkinu þar. Þangað hafði
eg aldrei komið fyrr, og var víst engum þar áður kunnur.
En vinsamlega var tekið á móti mér af fólkinu. Og staðurinn
er fagur og aðlaðandi á margann hátt.
Offur
Nú eru margir af söfnuðum okkar að leggja fram offur
og gjafir í starfsmálasjóð kirkjunnar. Er vel að sinna því á
þessari árstíð og oftar. Þó öll okkar tillög til trúboðs og
annara starfsmála kirkjunnar séu frjáls, og enginn sé þvíng-
aður til að leggja fram neina ákveðna upphæð, þá er þörfin
brýn að styðja þau mál vel og örlátlega. Þörfin er altaf
mikil, og möguleikar safnaðanna að rétta fram örláta hönd
til stuðnings málefnum og fyrirtækjum utan sinna eigin
vébanda eru nú meiri en oft áður. Þakklæti okkar til Drott-
ins fyrir hans mörgu og góðu gjafir, verður ekki á einn
hátt betur framborið, en þann að veita örláta aðstoð og
þjónustu þar sem þess gjörist þörf.
Á það vil eg ennfremur minnast nú, að síðasta kirkju-
þing okkar ákvað með tillögu, sem var samþykt mótmæla-
laust, að allir söfnuðir kirkjufélagsins skyldu beðnir að gefa
eitt offur á þessu hausti til “Lutheran World Action”, en
það er eins og kunnugt mun vera, velgjörðafyrirtæki sem
stutt er af velflestum lúterskum kirkjufélögum í Canada og
Bandaríkjunum.
Minniál Betei í erfóaskrám yðar