Prentarinn - 01.01.1966, Síða 10
Aðalstræti 50. Þar var fyrst prentað á Akureyri.
Jóni Jónssyni alþingismanni frá Munka-
þverá.
En þótt hafizt væri handa af áhuga og
bjartsýni, gekk margt miður en skyldi, en
mest bagaði fjárskortur, og var hann trúr
fylginautur prentsmiðjunnar þau 27 ár, eða
til 1879, sem hún var rekin sem sjálfseign-
arstofnun. Að loknu fyrsta árinu var tekið
að leigja prentsmiðjuna. Fyrsti leigjandi var
Sveinn Skúlason, og varð hann einnig rit-
stjóri og útgefandi Norðra, og liélzt svo til
1862, þá tók Björn Jónsson við leigunni og
hóf útgáfu Norðanfara, stóð svo til 1875,
að Skafti Jósefsson tók prentsmiðjuna á
leigu og tók að gefa út Norðling til 1879.
Engum leigutakanum varð prentsmiðjan að
féþúfu, en þó mun hún hafa gengið einna
bezt í höndum Björns. Yfirprentarar á þess-
um árum voru: Hclgi Helgason til 1862,
Baldvin M. Stephánsson til 1867 og 1871 til
1879, og Jónas Sveinsson 1869 til 1871. Eins
og fyrr getur, gekk reksturinn illa. Sveinn
Skúlason skildi við hana félaus með öllu, og
Iitlu bctur vegnaði Skafta. Þótti mörgum
ómaklegt, þegar prentsmiðjan var tekin af
Birni og leigð Skafta, en stjórnin hugði, að
hann, sem þá var ungur maður, mundi reka
hana af meiri dugnaði. En er Skafti skilaði
af sér, gafst stjórnin upp á rekstrinum, og
seldi áhöldin Birni Jónssyni yngra, sem síð-
ar getur.
í upphafi mun hafa verið vel til prent-
smiðjunnar vandað, og eru bækur hennar
fyrstu árin eigi ósnotrar eftir því sem þá
gerðist hér. En sífelld fjárþröng tálmaði
eðlilegu viðhaldi tækjanna, og á ýmsu mun
hafa gengið um handlang prentaranna, þótt
yfirprentararnir væru færir menn.
Uppistaðan í því, sem prentað var voru
blöðin, fyrst Norðri, síðan Norðanfari og
síðast Norðlingur. Nokkuð var prentað af
bókum, en einna kunnastar urðu Felsenborg-
arsögur, meira þó að endemum en ágætum.
Þá voru prentaðar nokkrar íslendinga sög-
ur, rit Jótis Mýrdals: Mannamunur og Grýla,
svo eitthvað sé nefnt. Mörg Akureyrarkver
frá þessum árum eru nú harðla fágæt og
metfé söfnurum, svo sem Töfralist Ingi-
mundar Ingimundarsonar.
NORÐANFARA-PRENTSMIÐJAN.
Þegar Björn eldri missti prentsmiðjuna úr
sínum höndum, réðst hann í að kaupa aðra
nýja, og nefndi hana Prentsmiðju Norðan-
fara. Rak hann hana og gaf út Norðanfara
til dauðadags 1886. Yfirprentarar voru: Jón-
as Sveinsson 1875—1879, Baldvin M. Step-
hánsson 1879-1880, og 1881-1883, Guð-
mundur Guðmundsson 1880—1881, og síð-
ast um skeið Grímur Guðmundsson og
Björn St. Thorarensen, sem hvorugur mun
þó hafa verið fulllærður prentari. Af prent-
urum þessi árin má nefna Ólaf S. Thorgeirs-
son, sem síðar kom mjög við prcntverk og
bókagerð vestan hafs.
Auk Norðanfara voru prentaðar þar ýms-
ar bækur svo sem Aðalsteinn sr. Páls Sig-
urðssonar, Skin og Skuggi, fyrsta rit Páls
J. Árdal, Ljóðmæli Jóiis Ámasonar, vmis
kver Simonar Dalaskálds. Var frágangur
þeirra sýnu betri en á því sem kom frá
gömlu prentsmiðjunni um þær mundir.
PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR.
Björn Jónsson keypti eins og fvrr segir
gömlu Akureyrarprentsmiðjuna, 1879 og
flutti hana úr Aðalstræti og í steinhús við
Norðurgötu á Oddeyri. Við andlát eldra
Björns kevpti hann Norðanfaraprentsmiðju
6
PRENTARINN