Prentarinn - 01.01.1966, Blaðsíða 23
Séð yfir Pressmen's Home. — Hótelið ofctrlegti til vinstri, eti skrifstofubyggingin og prentskólimt til hægri.
Norður-Ameríku, gerður af miklum van-
efnum; nemendur fáir og kennar fáir. í dag
er hann mjög vel búinn og má sem dæmi
þar um nefna, að þar er að finna 8 prent-
vélar (þar af 2 tveggja lita) og 14 offset-
prentvélar (þar af 2 tveggja lita), auk liinna
fjölbreyttustu tækja af öðrum gerðum.
Nemendur sækja skólann í 12 vikur, en
hann starfar allt árið. Láta mun nærri að
kostnaður við nám og uppihald í 12 vikur
sé um 16 þúsund krónur.
Skólastjórinn, Howard W. Sulliwan, kvað
offsetprentun aukast mjög og væri því meg-
ináherzla lögð á að kenna prenturum off-
setprentun á þessum 12 vikum og hefði það
gefið góða raun. Að sjálfsögðu teldust þeir
ekki fullnuma í iðninni eftir þessa kennslu,
en þeir væru færir um að hefja störf af full-
um krafti.
Aljög er lagt upp úr einstaklingnum við
kennsluna og er í flestum tilfellum 1 kenn-
ari með hverja 2 nemendur. Allir nemendur
í Pressmen’s Home eru fullnuma sveinar. —
Skólinn semur einnig öll sveinspróf í iðn-
PRENTARINN
19