Prentarinn - 01.01.1966, Side 36
Frá aðalfundi HÍP
Aðalfundur Hins íslenzka prentarafélags var hald-
inn sunnudaginn 17. apríl 1966 kl. 13.15 í Iðnó,
uppi.
Tveir fulltrúar frá Akureyri sátu fundinn, þeir
Ivári Sigurjónsson og Svavar Ottesen.
Reikningar félagsins fyrir árið 1965 voru fyrst
teknir til úrskurðar. Lágu þeir fyrir endurskoðað-
ir og gerði gjaldkeri, Jón Már Þorvaldsson, grein
fyrir þeim. Voru rcikningarnir samþyklttir um-
ræðulaust.
Skýrslur fráfarandi stjórnar og nefnda voru að
venju annað mál dagskrárinnar. Undir þeim lið
lagði stjórn og laganefnd fram tvær tillögur. Sú
fyrri fól það í sér að stjórninni væri falið að
kynna sér hvort tímabært væri að fá hvers lconar
afsteypu af sátri (sterótype) viðurkennda sem
iðngrein innan prentverksins. Hin tillagan fól í sér
heimild fyrir stjórn félagsins að ganga til sam-
starfs um stofnun sambands milli Hins íslcnzka
prentarafélags, Bókbindarafélags íslands, Offset-
prentarafélags Islands og Prentmyndasmiðafélags
Islands.
Svavar Ottesen tók til niáls og flutti fundinum
kveðju Akureyrarprentara. Þakkaði hann gott sam-
starf stjórnar félagsins og norðanmanna og ræddi
ýmsar nýjungar í prentverkinu.
Ritari, Stefán Ogmundsson, hafði unnið að samn-
ingu reglugerðar fyrir bókasafn félagsins. Var
hún lögð fram undir þessum lið og kom til af-
grciðslu á framhaldsaðalfundi.
I'astcignancfnd félagsins hafði unnið að rcglu-
gerð um lóðir o. fl. í sumarbústaðalandi H.I.P. í
Miðdal í Laugardal. Formáður nefndarinnar, Guð-
björn Guðmundsson, skýrði reglugerðina og ræddi
ýmis atriði varðandi fasteignir félagsins. Var reglu-
gerðinni vísað til frckari athugunar stjórnar og
laganefndar og kom til afgreiðslu á framhaldsaðal-
fundi.
l'illaga kom fram urn athugun á lækkun vaxta af
svokölluðum skyndilánum til félagsmanna. Hlaut
hún samþykki fundarins.
Allmiklar umræður urðu um skýrslu stjórnar
og ncfnda og tóku margir til máls.
Því næst var lýst stjórnarkjöri. Aðeins cin tillaga
cða listi hafði komið fram um menn í stjórn. Er
stjórnin nú þannig skipuð:
Formaður: Jón Ágústsson.
Varaformaður: Oðinn Rögnvaldsson.
Ritari: Stefán Ogmundsson.
Gjaldkeri: Pétur Stcfánsson.
1. mcðstjórnandi: Pálmi A. Arason.
2. meðstjórnandi: Ragnar Magnússon.
Formaður kvennadeildar: Guðrún Þórðardóttir.
Auk varaformanns, sent á sæti í aðalstjórn, er
varastjórn þannig skipuð: Ritari Baldur Aspar,
gjaldkeri Jón Már Þorvaldsson, 1. meðstjórnandi
Þorsteinn Marelsson, 2. meðstjórnandi Sverrir
Kjæmested.
Endurskoðendur voru cndurkjörnir: Helgi Hós-
easson og Olafur Hannesson. Og til vara: Birgir
Sigurðsson og Olafur H. Olafsson.
Ritstjórar Prentarans voru endurkjörnir þeir
Guðmundur K. Eiríksson og Guðjón Sveinbjörns-
son.
I Fasteignanefnd var cndurkjörinn Guðbjörn
Guðmundsson. Aðrir nefndarmenn þar cru Sigurð-
ur Guðgeirsson og Pálnii A. Arason, sem nú er
formaður nefndarinnar.
I Bókasafnsnefnd var kjörinn Stefán Ogmunds-
son. Aðrir nefndarmenn eru þeir Lúther Jónsson
og Sigurdór Sigurdórsson.
í Orlofsheimilisnefnd voru endurkjörnir Kjartan
Ólafsson og Jón Ágústsson. Pálmi A. Arason er
þriðji maður í þeirri nefnd, skipaður af Fasteigna-
nefnd.
Fulltrúi í stjórn Byggingafélagsins Miðdalur var
endurkjörinn Pétur Stefánsson.
I Skcmmtinefnd voru kjörnir: Sæmundur Árna-
son, Agúst Björnsson, Óðinn Gcirsson, Valgeir
Emilsson og Guðmundur Óli Ólason. Þar sem í
ljós kom að Valgeir Emilsson gat ekki gegnt störf-
um í ncfndinni hefur Jón Otti Jónsson komið í
hans stað.
Lagabrcytingar var næsti liður dagskrárinnar.
Þar lá fyrir breyting við 42. grein félagslaganna,
sem fór í þá átt að gera félagssjóði einum að greiða
allan reksturskostnað. Hefur honum áður verið
skipt á liina ýmsu sjóði félagsins. Hlaut þessi
brcyting samþykki fundarins.
Sem sérstakur dagskrárliður lá fyrir tillaga um
hækkun félagsgjalda úr 50 kr. á viku í 70 kr. og
32
PRENTARINN