Prentarinn - 01.01.1966, Qupperneq 41
- Faðir 8 stunda vinnudagsins á Islandi
(Framhald af blaðsíðu 1).
allt) uppkast að samningi fyrir árið 1920.
Er þar helzt að geta aðalbreytingarinnar
og þeirrar, er samningatilraunir að lokum
strönduðu á, 8 tíma vinnudagsins. — Langt
var síðan raddir höfðu komið fram innan
félagsins um þessa kröfu og því verið hreyft
við prentsmiðjuforráðamenn. T. d. leitað
fyrir sér um það, að 9. vinnustundin yrði
smástytt á einhverju tilteknu tímabili, þar
til er komið væri niður í 8. En það sem nú
gaf kröfu þessari byr undir báða vængi,
var það, að í bréfi dags. 7. okt. 1919 býður
Oddur Björnsson, prentsmiðjueigandi á Ak-
ureyri, Prentarafélaginu samninga við sig og
skýrir jafnframt frá því, að hann hafi þegar
að nokkru, og frá næsta nýári að fullu, telc-
ið upp 8 stunda vinnudag í prentsmiðju
sinni, þrátt fyrir ýmsa örðugleika er hann
ætti við að stríða, fram yfir iðnrekendur í
Reykjavík.
Fram hjá þessu boði varð ekki gengið og
þótti þá einsætt, að félagið gerði iðnrekend-
um í Reykjavík sömu kostina og því btiðust
annarsstaðar.“
Það liðu áratugir, unz samið var við aðr-
ar stéttir um 8 stunda vinnudaginn. En um
það verður ekki deilt að frumkvæði Odds
ruddi brautina og færði íslenzkri prentara-
stétt þessa réttarbót miklu fyrr en ella hefði
orðið.
Nýja Ludlow-vélin.
Endurbætt Ludlow-vél
Ludlow Typograph Company í Chicago hefur ný-
lega endurbætt letursteypuvélar sínar. Helztu breyt-
ingarnar frá eldri gerðinni eru þessar:
Blýpotturinn er stærri. Hann tekur nú 7 kg
meira af blýi en áður. Ymsar breytingar aðrar hafa
verið gerðar á pottinum og blýrásinni fram í
munnstykkið, sem miða að betri og þéttari lctur-
steypu. Bullan gengur mýkra og þrýstir blýinu
jafnar fram í munnstykkið og mcð meira krafti.
Lccsingcirnar ofan á borði vélarinnar hafa verið
styrktar. Hitaelementin í munnstykkinu eru lengri
í þessari nýju gerð og hitna jafnar en þau gömlu.
Hitastillingarnar á potti og munnstykki eru ná-
kvæmari en áður. Kælingin hefur verið endurbætt.
Þessi nýja gerð Ludlow-véla er 30% afkastameiri
en eldri vélarnar — skilar 9 línum á mínútu í hríð-
steypingu.
PRF.NTARINN
37