Skólablaðið - 01.10.1947, Síða 20
r
Að þessu sinni hefir ritnefnd orð-
ið'að grípa til þess örþrifaráðs að
hækka áskriftargjald hlaðsins um 5°$
vegna verulegrar verðhækkunar á fjöl-
ritunarpappír» Við vonum þó, að lesend-
ur taki þessu með umburðarlyndi, þar
sem þetta er óumflýjanleg ráðstöfun, en
ella hlytist tilfinnanleg-ur tekjuhalli
af.
L almennum skólafundi, er haldinn
var í byrjun skólaársins, var nemendum
skýrt frá úrslitum í inspectors scholae-
kosningunni. í framboði voru Steingrí.m-
ur Hermannsson fyrir hönd stærðfræði-
deildar og Daði Hjörvar f.h. minni-
hluta (eiginlega minnsta hluta) mála-
deildar þ.e.a.s, mikill meiri hluti
máladeildar vildi ekkert framboð af
hálfu deildarinnar, með því að hann
studdi kosningu Steingríms. Hins vegar
þótti sumum húmanistunum nokkuð smanar—
legt að bjóða engan fram og fengu því
til leiðar komið, að Daði var eftir
mikið þjark og málþóf viðurkendur.
Töldu þó margir það fullmikla
áhættu, Frá því er skemmst að segja
að Steingrímur var kjörinn með stór-
kostlegri meiri hluta en nolckur annar
inspector til þessa, enda er hann vel
vandanum vaxinn og kunnur af ósórplægni
sinni og eljusemi í þagu fela-gslífsins.
Það var eins um þennan skólafund
og aðra síðustu 2-5 árin, að ógern-
ingur reyndist þrátt fyrir sæmilega
istjórn a.ð halda uppi þeim fundarbrag, er
sæmandi geti talizt siðmenntuðu fólki,
Annars hefur inargt verið rætt um það
ófremdarástand, sem ríkt hefur síðastlið-
in ár í þessum efnum, en fátt af nokkru
viti. í fyrra vetur var kosin nefnd er
skyldi endurskoða lögin, en frá henni
hefur lítið eða ekkert heyrzt.
Hefði þó ekki verið vanþörf á, að
'úr hefði verið búið að bæta, því að
jal-lt kosningafyrirkomulagið er gersam-
llega ófullnægjandi, eins og því nú er
íháttað. Þá vil óg leyfa mór að benda á
jannað atriði í þessu sambandi, sem vert
:væri að taka til alvarlegrar athugunar.
1 það var' einu sinni drepið' h'r í
.Skólablaðinu (4.t.bl. 19. árg.), hversu
jbagalegt það værir fyrir 6. bekkinga, sem
jvenjulega eru kosnir í hin meiri háttar
jembætti, að vera störfum hlaðnir fram í
jmitt upplestrar-frí. Einnig var þar bent
já skipulag, er útrýmt gæti þessum galla,
iþ.e. með því að embættismenn væru kosnir
|um nýár til jafnlengdar næsta ár. Jafnvel
jþótt þessi tilhögun kæmist ekki á, væri
!stórum betra, að kosningar færu fram að
vori, eða um Dimission. Þá væru nýjir
nemendur orðnir kunnugri mönnum 0g mál-
efnum 0g gætu kosið af eigin reynd, en ekl
:eitthvað út í bláinn, eins og svo oft
íhefur brugðið við í haustkosningunum.
Svipað fyrirkomulag mun tíðkazt í
;Menntaskólanum á Akureyri. - nóg um það.
Þess er ekki kostur að birta hór hin
einstöku kosningaúrslit, enda mun kosning-
framh. á bls.21.