Litli Bergþór - 10.12.1987, Blaðsíða 9

Litli Bergþór - 10.12.1987, Blaðsíða 9
8 Næsti bóndi i Haukadal sem sögur greina frá var Hallur hinn mildi Þórarinsson. Hann stofnsetti hér skóla á síöari hluta 11. aldar Ekki mun mikió vitaó um námsefni þar, en gera má ráó fyrir aó mikil áhersla hafi verið lögö á latínu og kirkju- leg fræöi. Verk þekktasta nemanda þessa skóla, Ara fróða Þorgilssonar benda þó til aó þar hafi islensk fræöi ekki verió vanrækt. Þar hafi ómi erlendrar menningar verió blandaó saman vió nió islenskrar sögu. Fóstursonur Halls, Teitur ísleifsson varö ættfaöir Haukdæla, þeirra er fyrstir voru svo nefndir og voru valdamiklir um tima. Einn af þeim þekktustu af þeirri ætt var Gissur Þorvaldsson i Hruna. Löngum hefur þáttur hans i aö veita hér liösinni erlendu valdi verió gagnrýndur. Skal hér sist dregió úr þvi að enginn is- lendingur ætti aó stuóla aö pólitisku valdi erlendra aóila hér á landi. En ef til vill hefur þetta verió sú eina lausn sem þeirra tióar menn höfóu á vandamálum islenskrar þjóóar. NÚ er auövelt aó fara fljótt yfir sögu næstu alda, þvi i Haukadal gerö- ist þá ekki margt sem vakió hefur sér- staka athygli. Þar hafa kynslóöirnar háö sitt lifsstrið hver á eftir ann- arri, hart eóa milt eftir atvikum og aóstæðum. Þar lifóu þær, dóu og hvildu aö lifi loknu vió árnió og klukknahljóm, þvi kirkja mun hafa verió i Haukadal allt frá upphafi kristni i landinu. Þá er rétt aö fara aó nálgast nú- timann. Er þar fyrst til að taka að nokkru fyrir aldamótin 1800 kom aö Haukadal sveinn aö nafni Páll Guó- mundsson og var hann tekinn i fóstur af barnlausum hjónum sem þar bjuggu. Er hann ættfaóir þess fólks sem nú á timum er nefnt Haukdælir og búiö hefur hér sióan og býr enn. Ættmóðir þeirra i sama lió var Jóhanna, dóttir Gamla eöa Gamaliels bónda i Arnar- holti. Hún var aldrei kona Páls, en var vinnukona hjá honum og Guórúnu Eyvindsdóttur konu hans um það leyti er Siguröur sonur þeirra varó til. Svona fór ástin ekki alltaf eftir reglum samfélagsins þá frekar en nú og viróist oft vera til kynbóta. Þaö fer ekki á milli mála aö mér er hugstæóastur þessara Haukdæla, sa er fsddur var þar sem nú er hóll af gömlum bæjarrústum i Haukadal siósum- ars 1897. Þaó var Sigurður sonur Greips, sem var sonarsonur Páls og Jóhönnu er ég gat um áöan. MÓóir hans var Katrin Guómundsdóttir frá Stóra- Fljóti. Þegar hann haföi aldur til, aflaói hann sér menntunar bæói hér- lendis og erlendis til aó geta stofn- sett skóla á bernskustöðvum sinum. Þaó var i vetrarbyrjun 1927 aó skólinr hóf starfsemi sina i nýbyggóu húsi á sama staó og vió erum nú stödd. Var þessi staóur af nágrönnum nefndur á Söndunum. Þennan skóla rak Sigurð- i rúm 40 ár ásamt konu sinni, Sig- rúnu Bjarnadóttur frá Bóli. Skólinn nefndist íþróttaskólinn i Haukadal, og ég held aö segja megi aó megin- markmiö skólastarfsins hafi verió aö fá menn til aö ganga upprétta bæöi i likamlegum og andlegum skil- ningi. íþróttaskólinn i Haukadal Fyrri tvo áratugina sem skólinn starfaöi jók Sigurður nokkuó stöóugt vió húsakost hans og byggói siöast steinsteypt hús sem i var m.a. all- stór iþróttasalur. Hótelbyggingin sem vió erum stödd i er byggó i og utan um þetta hús. Þegar fariö var aó huga aó enduruppbyggingu hér fyrir nokkrum árum, sem nú er komin svo myndarlega af staó, kom i ljós aö á gamla húsinu voru mjög traustir steinveggir, og varö aó ráói aó láta þá bera uppi hótelbygginguna. Eru þaó þykku veggirnir sem skilja aö hlióarsali og miösvæói veitinga- salarins. Ekki ber mikið á þessum veggjum hér og ekki auóséó aö þeir eru fjögurra áratuga gamlir, né heldur liggur i augum uppi hvernig þeir mynda burðarvirki i nýju húsi. Ég held aö i okkur, nemendum íþrótta- skólands i Haukadal, megi ef grannt er skoðaó finna hlióstætt buröarvirki sem reist var á þeim tima sem vió vorum hér. Sigrún Bjarnadóttir Sigurður Greipsson

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.