Litli Bergþór - 01.12.1989, Side 16
Vikivaki í Haukadal.
Eins og flestum hér í sveit mun
kunnugt var nú í haust tekin
upp sjónvarpsóperan Vikivaki
eftir Atla Heimi Sveinsson við
óperutexta Thors Vilhjálms-
sonar, sem byggist á sam-
nefndri sögu Gunnars Gunnars-
sonar. Upptökur fóru að lang-
mestu leyti fram á hótelinu að
Geysi svo og í nágrenninu.
Þegarfréttamaðurogljósmynd-
ari Litla-Bergþórs fóru að líta á
Vikivaka íHaukadal, rigningar-
dag einn í októberbyrjun, voru
upptökurífullumgangi. Envel
rættist þó úr okkar vonum því
hlé var gert á upptökum í bili og
við náðum íþá Gunnlaug Jónas-
son upptökustjóra og Helga
Skúlason leikara, en hann leikur
einmitt aðalhlutverk myndar-
innar, Jaka Sonarson. Þeir
gátu því fylgt okkur um staðinn
og spjallað við okkur góða
stund.
Þeir sögðu allt hafa gengið
samkvæmt áætlun. Byrjuðu
tökur um miðjan september hér
í Haukadal og þeim lauk núna
8. október.
Aðspurður um það hvort
handritið að kvikmyndinni væri
frábrugðið sögunni sagði Helgi
það ekki veraen myndinni væri
þjappað sarnan í tíma, látin
gerast að mestu leyti á nýársnótt,
í stað margra mánaða.
Talaður texti er enginn, ein-
göngu söngur. Upptökur á
óperusöngnum fóru fram í vor í
Kaupmannahöfn, eins og fyrr
var frá skýrt hér í L.B.
Þar eru söngvarar aðrir en
leikarar í öllum tilvikum nema
einu. Draugastelpuna Ásdísi
bæði leikur og syngur ung
Reykjavíkurmær, Eygló Gróa
Magnúsdóttir. Hlutverk Jaka
syngur Kristinn Sigmundsson.
Það var danska sinfóníu-
hljómsveitin sem lék undir þar
í Köben.
Þetta verkefni er fyrsta sam-
vinna Nordvision af þessu tagi
og töldu þeir, Gunnlaugur og
Helgi, að framhald yrði þar á,
því þetta samstarf hefði gengið
mjög vel.
Förðun og búninga sjá Norð-
menn um og tæknilið allt er
finnskt svo og leikstjórinn
Hannu Heikenheimo. Hannu
rétt gaf sér tíma til að kasta á
okkur kveðju, en svo var hann
rokinn, þurfti að kanna vett-
vanginn fyrirkvikmyndun uppi
á Kjóastöðum þar sem sauða-
þjófarnir Nikulás og Friðbjörg
(leikin af Pétri Einarssyni og
BríetHéðinsdótturjflýjaundan
Jaka með fé það sem þeim tókst
að hafa á brott með sér frá
Höfuð Grettis.
Foksstöðum. Aðrirhelstu leik-
arar eru Róbert Arnfinnsson,
sem leikur séra Sigvalda,
Margrét Ákadóttir sem hin
skörulega Þorgerður húsfreyja
og Borgar Garðarsson leikur
höfuðGrettis. Einnigkomaþar
við sögu þau María Ellingsen,
Guðjón Petersen og margir
fleiri.
Alls störfuðu um 40 manns við
upptökur í Haukadal. Óhætt er
að segja að hótelið hafi verið
undirlagt vegna þessa og varla
var þverfótað fyrir snúrum,
tjöldum, leikmunum, búningum
og upptökutækjum.
Þessi magnaða draugasaga,
sagan um Jaka Sonarson, er að
mínu mati ákaflega skemmtileg
en einnig talsvert strembin.
Aðstæður þær sem Jaki lendir í
eru oft á tíðum broslegar, en
jafnframt mjögóraunverulegar.
Það er ekki á hverjum degi sem
maður vekur (óvart) upp heilan
Litli - Bergþór 16