Litli Bergþór - 01.12.1989, Side 19
Fréttir
- Skipulagsmál
Undanfarið hefur verið unnið
að aðalskipulagi í Laugarási,
Skálholti og Reykholti.
Skipulagsvinnu má skipta í
tvennt. Það er aðalskipulag og
deiliskipulag. Aðalskipulag
segir til um hvernig landið
verður notað og hvaða starfsemi
verður á hverju svæði, t.d.
íbúðarhúsalóðir, götur og
óbyggð svæði. Deiliskipulag
er nákvæmari útfærsla, stærð
lóða og lóðamörk og h var lagnir
eiga að vera.
í Laugarási er skipulagsvinnan
komin lengst, en þar eru helstu
nýmælin þau að miðbæjartorg
með opinberum byggingum og
þjónustustofnunum verði við
beygjuna á veginum norður af
núverandi byggð, þar sem
byrjaraðsjástaðSkálholti. Þá
er gert ráð fyrir sumar-
húsabyggð við Hvítá vestur af
sláturhúsinu. Skógræktarsvæði
er formað við mörkin að Höfða
pg Skálholti.
í Skálholti er mesta breytingin
sú að veginn á að færa suður
fyrir staðinn. Verður þálagður
nýr vegur frá Laugarásmýrinni
og langleiðina að Spóastöðum.
Að öðru leyti er ekki um miklar
breytingar að ræða, en fram-
tíðarbyggingasvæði á að vera
frá skólanum og norður að
núverandi býli.
Reykholtshverfi er skipulagt í
samvinnu við eigendur
Brautarhóls. Tekiðerfyrirstórt
svæði umhverfis Reykholts-
hverfí. Þetta skipulag er stutt á
veg komið en fram hafa komið
tillögur um íbúðarbyggð suður
af Bergholti og götu með
íbúðarhúsum Brautarhóls
megin við íþróttavöllinn.
Iðnaðar- og garðyrkjulóðir við
Dalbrún. Þá er hugmynd um 9
holu golfvöll suður af
Bjarnabúð. Gert erráð fyrir að
þjónustustofnanir verði við
veginn heim að Aratungu og
við Aratunguhlaðið. Einnig er
gert ráð fyrir þeim möguleika
að hafa íbúðabyggð uppi á
Reykholtinu sjálfu.
Þ. Þ.
BISKUPSTUNGNAMENN!
Hjá okkur fáið þið jólagjöfina í ár.
Heimilistæki - Ijós - perur
rakvélar - hárblásarar
útvörp - saumavélar.
Verslið við fagmanninn,
það tryggir gæði og þjónustu.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól og farsælt nýtt ár.
EYRAVEGI 29 - SELFOSSI
SÍMAR 21160 - 22171
RAFLAGNIR OG RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
Litli - Bergþór I9