Litli Bergþór - 01.12.1989, Side 26
Frá umhverfismálanefnd.
Birkikjarr, melur, börð og Tungnamenn íRótarmannagili.
14. júlí á liðnu sumri í
blíðskaparveðri lagði upp til
fjalla fríður hópur úr
Biskupstungum, tæplega 100
manns. Mislitur hópur, ungir
og gamlir, konur sem karlar,
burtfluttiroginnfluttirTungna-
menn svo og Tungnamenn.
Leiðin lá inn á Biskups-
tungnaafrétt að Rótarmanna-
torfum en hreppsnefnd
Biskupstungna hafði heimilað
umhverfismálanefnd að friða
þessa gróðurvin. Til þessa
verkefnis hafði umhverfismála-
nefnd fengið frjáls félaga-
samtök í sveitinni til liðs við
sig.
Þegar hópurinn kom að
Rótarmannatorfumvarþarfyrir
hópur frá girðingadeild Land-
græðslu ríkisins undir stjórn
Greips Sigurðssonar. Land-
græðslan lagði til girðingarefni
auk þess sem Greipur stjórnaði
verklegum framkvæmdum.
Óhætt er að fullyrða að hendur
hafi staðið fram úr ermum hjá
því fólki er þarna var rnætt til
starfa. Girt var rúmlega 4 km
löng girðing, stungin niður
rofabörð, sáð í sárin og lúbína
gróðursett, áburði og fræi sáð í
örfoka land, nesti snætt og aftur
girt, sáð og stungið.
Þegar degi tók að halla hélt
hópurinn inn í Fremstaver þar
sem búið var að hella á könnuna,
hita súpu og kakó. Að lokinni
hressingu brá fólk á leik og tók
lagið áður en haldið var aftur til
byggða.
Tungnamenn burtfluttir sem
innfluttir svo og Tungnamenn
látum ekki deigan síga í
landgræðslumálum Biskups-
tungna. Framundan er það
verkefni að fylla þes sa girðingu
gróðri á næstu árum og færa út
kvíarnar ef vel tekst til með
þessa tilraun.
Fengist hefur vilyrði fyrir tölu-
verðu magni af birkiplöntum úr
“landgræðsluátaki 1990” til
þessa verkefnis.
Okkur hefur tekist að snúa vörn
í sókn á síðustu árum á þessu
sviði. Umræðan í dag er okkur
íhagoggefurbyríseglin. Það
væri ófyrirgefanlegt að nýta
ekki þann byr.
Litli - Bergþór 26