Litli Bergþór - 01.04.1990, Page 7

Litli Bergþór - 01.04.1990, Page 7
Frá Búnaðarfélaainu O Hvenær fæ ég Afrekshornið? Á árinu hefur félagið gengist fyrir nokkrum fundum. í janúar komu ráðunautar Búnaðarsambandsins á fund til kynningar á virðisaukaskattinum og nýju bændabókhaldi. í febrúar var haldinn umræðufundur (málþing) um landbúnaðarmál hér á okkar heimaslóðum. Fundurinn bar yfirskriftina “Landbúnaðurinn í dag, hver er okkar staða og hverjir eru okkar möguleikar?” Aðalfrummælandi átti að vera Gunnlaugur Júlíusson hagfræðingur Stéttarsambands bænda, en hann komst ekki sökum ófærðar. Aðrir málshefjendur voru Þorfinnur Þórarinsson, Ingólfur Guðnason, Eiríkur Jónsson og Sveinn Sæland. Eftir framsögur urðu talsverðar umræður og tóku margir þátt í þeim. Fundurinn þótti takast ágætlega og mætti huga meira að slíku. Um miðjan febrúarvar haldinn fundur um heyverkun og einkum tekin fyrirverkun í rúlluböggum. Nú í mars hélt Búnaðarfélagið rafsuðunámskeið í samvinnu við Farskóla Suðurlands. Það var 15 klst. námskeið, bæði bóklegt og verklegt. Nú þegar þetta er ritað hafa ekki verið haldnir fleiri fundir, en ýmislegt er fyrirhugað. Gunnar Sverrisson Nefnd Afrekshomsins ákvað að árið 1989 fengi það Skúli Magnússon, Hveratúni, sem viðurkenningu fyrir árangursríka og farsæla uppbyggingu ylræktar í Biskupstungum. Störf Skúla og hans fjölskyldu að ræktunarmálum þekkja margir og vita að hann er vel að þessari viðurkenningu kominn. Skúla var afhent homið í desember sl. G.S. Skúli og Guðný í Hveratúni. Haokvæm lausn Mar nánari upplýsingar og pantanir f í síma 98-66750. J LÍMTRÉ HF FLÚÐUM, HRUNAMANNAHREPPI 801 SELFOSS • SÍMI 98-66750 Litli - Bergþór 7

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.