Litli Bergþór - 01.04.1990, Page 17
Menntó
Menntaskólinn að Laugar-
vatni var stofnaður 1953 og er
þar af leiðandi orðinn rótgróinn,
kannski gamaldags, t.d. er hér
bekkjakerfi sem er að leggjast
niður í flestum öðrum fram-
haldsskólum. Þettaereingöngu
bóknámsskóli og aðeins þrjár
deildir: mála-, eðlisfræði- og
náttúrufræðideild. Fyrstavetur-
inn læra allir almennt bóknám.
Á öðru ári er skipt í mála- og
stærðfræðideild en á þriðja ári
skiptist stærðfræðideildin í
eðlis-ognáttúrufræðideild. I 3.
og 4. bekk eru svo ýmis valfög.
Hér hafa skapast ýmsar
hefðir til að lífga upp á skóla-
starfið. T.d. var gengið á Hest-
fjallíhaust. Söngsalurerþegar
allir koma saman fyrir framan
kennarastofunaog syngjaíeina
kennslustund, einnig er venja
að nemendur bjóði kennurum í
göngufrí og kaffitíma í hverju
fagi einu sinni á önn. I kaffi-
tímumer helstrættumallt annað
en námsefnið.
Eitt af sérkennum skólans er
heimavistin sem hefur bæði
kosti og galla. Kostimir eru að
hér þekkja allir alla og sam-
skiptin verða heimilisleg og náin
sem skapar ríka samkennd
meðal Laugvetninga. Til að ná
árangri í náminu þarf sjálfsaga
því við eru sjálfra okkar herrar
og alltaf er hægt að gera eitthvað
skemmtilegra. Það vill því
stundum henda að félagslífið
taki of mikinn tíma.
Nemendafélagið heitir
Mímir og innan þess eru ýmsar
nefndir og klúbbar sem eru
reyndar misvirk, s.s. íþrótta-
nefnd, árshátíðarnefnd og lista-
nefnd og innan hennar eru dans-
klúbbur og myndbandaklúbbur
Jórunn.
ogfl.
Böllin hafa verið haldin um
svokallaðar stuttar helgar, þ.e.
kennt er á laugardögum en nú á
að leggja þá skipan niður til
reynslu. Hætta er á að félagslífið
dofni ef flestir geta farið heim
um hveija helgi.
Á Laugarvatni er Iþrótta-
miðstöð íslands og ÍKÍ og að
sjálfsögðu eflir það íþróttalífið
að aðstaðan er mjög góð. Geta
menn verið á fullu allan daginn
því leikfimi er skylda og svo er
frjálsíþróttaval fyrir sérstaka
“sportista”. Á kvöldin leigir
Mímir einnig salinn fyrir blak,
körfu-, hand- og fótbolta.
Jórunn Svavarsdóttir.
LfXJFRÆÐIÞJÓNUSTA
Öll almenn lögfræðiþjónusta.
Viðtalstímar í Aratungu síðasta föstudag í hverium mánuði kl. 1 - 3 .
Ólafur Björnsson lögfr. frá Úthlíð.
Símar 98-68810 og 91 -21560.
Litli - Bergþór 17