Skólablaðið - 01.04.1966, Side 18
- 166 -
Skóiaflnþir
HÉR verður rætt nokkuð um skóla-
fundi, fyrirkomulag þeirra og undirbún-
ing.
Fyrst ber að nefna, að skólafundir
eru auglýstir á algjörlega ófullnægjandi
hátt. Er það gert með vélrituðum
snepli, sem settur er í glerkassa Skóla-
felagsins ásamt erlendum sendibréfum,
tapað-fundið tilkynningum og öðru glingri.
Þarf þvi að grýna 1 kassann hátt og lágt
á hverjum degi til þess að hafa spurnir
af væntanlegum skólafundum. Ég held,
að forráðamenn Skólafélagsins gætu
margt lært af auglýsingaaðferðum Fram-
tíðarinnar, en þær eru til fyrirmyndar.
Sem kunnugt er, eru skólafundir
haldnir a Sal, 1 húsakynnum, sem taka
með sæmilegu móti 1/4 hluta nemenda.
Auk þess er lögun salarins fremur ó-
þægileg til slúkra fundahalda. Skólafund-
ir eru haldnir fyrir hádegi, á tíma, sem
haganlegastur er fyrir eldribekkinga.
Telja verður mjög erfitt fyrir 3. bekk
og 4. bekk stærðfræðideildar að sækja
skólafundi á umræddum tíma, nema lær-
dómur fari mjög í handaskolum.
Er 3. bekkin^ar setjast hér í skóla á
haustin, öllum okunnugir og utan gátta,
þá hlýtur það að vera æskilegt, að þeir
kynnist þegar skóla og skóla -
lííi, til þess að þeir geti sem fyrst tek-
ið þátt í félagsstörfum innan skólans.
Skólafundir hafa æðsta úrskurðarvald í
öllum málum nemenda. Það er þvf
æskilegt, að 3. bekkingar kynnist skóla-
fundum sem fyrst. En nú er það svo,
sem fyrr er sagt, að skólafundir eru
haldnir á morgnana, þegar 3. bekkingar
eru að læra. Menn, sem fara í 4. bekk
stæ. úr 3. bekk, geta staðið eins og dá-
leiddar hænur, þegar komið er í 5. bekk,
og sagt sem svo, þegar gefið er frú
vegna skólafundar - "Skólafundur, hvað
er nú það ? Ætlar rektor að tala? 11 -
Og það er annar ókostur við að hafa
skólafundi á morgnana. Þeir geta
aldrei staðið lengur en 45-50 mínútur,
þar eð þeir eru háðir tímatakmörkunum
rektors. Og svo eru menn að tala um
að vera sem minnst háðir rektor og
kennurum! Yfirleitt er það svo, að
menn þurfa ákveðinn aðlögunartíma til
þess að komast í hið: rétta fundarskap.
Án þessarrar stemningar verða fundir
sundurlausir og leiðinlegir, lítið um
fjörugar umræður. Þessari stemningu
er yfirleitt ekki náð fyrr en 1 lok skóla-
funda, en þá má ekki halda áfram,
skyldan kallar. Einnig er það svo, að
menn, sem langar til að leggja orð í
belg, verða að hafa einhvern umhugs-
unartíma, áður en þeir fara upp í pontu
að ausa af sínumvizkubrunni. Þessi
þrjú kortér eru þvf algjörlega ófullnægj-
andi. Þeir, sem hefðu ef til vill komið
upp og talað, ef fundurinn hefði verið
aðeins lengri, gera það ekki, og menn
minnast þess eins eftir fundinn, að
hann var hundleiðinlegur. Afleiðinga
þessa þrönga stakks, sem skólafundum
er skorinn, er ekki langt að leita.
Aðsóknarlágmark nemenda að skólafund-
um, svo löglegir séu, er lækkað niður í
aðeins 10%, og samt dugir það ekki til.
Nemendur sækja ekki skólafundi og þeir
verða ólöglegir.
Heyrzt hafa raddir manna, er segja
sem svo, að þetta sé allt í lagi, þar eð
áhugi sé mjög líítill meðal nemenda á
skólafundum, og einkum eigi þetta við
siðdegisbekki. Við þessa menn vildi ég
segja þetta: Meðan skólafundir eru
ekki auglýstir á viðunandi hátt ; meðan
skólafundir eru haldnir á loftlausum og
þröngum Sal; meðan skólafundum eru
skammtaðar 45-50 mín. eins og skítur
úr hnefa; meðan skólafundir eru haldn-
ir um og fyrir hádegi, á aðalheima-
námstima helmings nemenda; meðan
Frh. á bls. 193.