Skólablaðið - 01.04.1966, Qupperneq 42
190 -
mínir, að menn eigi að rasa út, meðan
þeir eru ungir og enginn tekur nokkuð
mark a þvx’, sem þeir gera. Það á að
nota þennan æskutíma til að skemmta
ser og taka líifinu síban með ró á full-
orðinsarum. Hugsið ykkur t. d. , að
virðulegir menn, sem iðka bindindi á
æskuárum sinum, komist svo allt 1 einu,
sem virðulegir og ráðsettir borgarar, i
kast við áfengið, og þá kemur i ljós, að
þeir eru óðir með víni. já, piltar, það
væri ömurlegt.
- Hvað viltu nú segja okkur, sem
gamall stjórnmálaskörungur i Mennta-
skólanum um álit þitt á stjórnmálum á
íslandi, t. d. hvað um Alþingi?
- Það er margsannað mál, að á
þeirri virðulegu samkundu eiga nú ekki
aðrir sæti en ómerkilegir meðalmenn.
Eitt sáðasta stórmennið á Alþingi var
ólafur Thors, enda var hann frændi
minn. Alþingi Islands nú er ekkert ann-
að en eins konar saumaklúbbur, kjafta-
samkunda, þar sem öll mál hafa verið
til lykta leidd, áður en þau eru tekin til
umræðu. Svo ræður flokkatogstreitan
þar öllu; nefndasetur eru einungis bitl-
ingaembætti, og er þvú varla við góðu að
búast frá hendi nefndanna og þeim, sem
þar sitja.
- Kemst þá yfirleitt nokkur áfram,
sem ekki hefur látið ánetjast einhverjum
voldugum stjórnmálaflokki ?
- Nei, eiginlega ekki, sá, sem ekki
vill selja sál sína dýrt, á yfir ákaflega
torfæran veg að sækja. Litlausir menn
skrimta sæmilega af. Þeir fljóta áfram,
litlausir smáborgarar, allt sitt líf. Ég
er þvi algjörlega meðfylgjandi, að alls
staðar verði tekin upp einmenningskjör-
dæmi, þá myndu menn ekki geta flotið
áfram i stjórnmálum út á einhverja
flokksvel, sem malar fyrir þá. T. d. hór
i Reykjavík - Reykvíkingar vilja ef til
vill fá á þing efsta mann á listum flokk-
anna, en ég efast stórlega um, að nokk-
ur hafi áhuga á mörgum hinna, sem
skipa önnur sæti listans. Þar eru mest
hæfileikasnauðar lufsur, sem fæstum eru
til gagns.
- En hvað viltu þá segja um snobbið
á Islandi? segjum við og horfum i átt
til alnafnanna á móti okkur. - Yfir þann
eldri hefur færzt ró og kyrrð, en i hin-
um yngri ólgar ennþá glóð umbótamanns-
ins, sem öllu vill bylta við.
- Snobb er mjög gott. Það á að ýta
undir snobb eins og unnt er, - snobb
hefur orðið og er íslenzkri menningu til
ómetanlegs gagns. Islenzkum málurun-
um i dag, er t. d. haldið uppi af bíla-
sölum og heildsölum. Og ef litið er aft-
ur til sögunnar. Dróttkvæðaskáldunum
var haldið uppi af snobbi Noregskonunga.
Konungar 1 Noregi hafa ekkert frekar þá
en nú haft hundsvit á skáldskap. Það á
að ýta undir, að ríkt fólk sé snobbað.
Það hefur yfirleitt lítið vit á listum, ja,
það mætti skjóta þvl hér inn, að ég tel
vafasamt að rikt fólk á Islandi hafi
nokkuð vit, og á meðan það er snobbað,
fer menningin varla á vonarvöl á Is-
landi. Það snobb, sem ég er mótfall-
inn, er snobb niður á við, bíítlar og
káboj-della o. sl.
- Lestu mikið Jón?
- Eiginlega má segja, að ég sé alltaf
sílesandi.
- Uppáhaldshöfundar ?
Jón lítur nú yfir þéttsetnar bókahill-
ur sínar, og telur upp nokkur nöfn af
handahófi.
- Ja, annars þýðir þetta ekki neitt,
þetta yrði bara upptalning, slepptu þessu
alveg með uppáhaldshöfundana.
Við rekum nú augun i litla mynd af
Jesúbarninuijötunni - i ramma myndar-
innar af Jóni Sívertsen, forseta.
- Ertu trúaður?
- Það er i sjálfu sér eitt, hvort Guð
er til, og annað að trúa.á hann. Ég hef
þetta eins og Egill. En ef Guð er til,
vil ég hafa gott samband við hann. Ég
er t. d. fermdur eins og allir kristilegir
unglingar hér i landi. En það var ein-
ungis vegna gjafanna. En aftur á móti
er ég geysilega hjátrúarfullur, geng
aldrei undir stiga eða þar sem ég sé
svartan kött framundan. Svo er ég
mjög berdreyminn. Mig dreymir yfir-
leitt fyrir öllum óþægilegum atburðum
og bý mig súðan undir að taka þvf, sem
að höndum ber.
- En hvað með drauga og huldar
vættir ?
- Mér þykir leitt, að það er verið að
reyna að útrýma draugatrú. Hún er
Frh. á bls. 203.