Skólablaðið - 01.04.1966, Page 44
- 192 -
BLEKSLETTUR, frh.
ÞAÐ vorar vel þessa dagana og vafa-
líítið er kominn vorhugur í alla. Minn
vorhugur er þannig, að ég vil helzt að
prófunum sé lokið ( með sæmilegum
arangri ). Ég held að flestir séu mér
sammala, að vorveðráttan sé sízt lækn-
andi fyrir hinn svonefnda námsleiða, sem
hrjáir marga hér 1 skéla að meira eða
minna leyti. Það er andlega niðurdrep-
andi að vera t. d. að lesa fyrir prof 1
solskini og blíðskaparveðri, eins og er
svo oft hér á vorin og í byrjun sumars.
Gott vor og sumarveður hefur þau áhrif
á mig, að ég vil helzt vera frjáls eins
og fuglinn fljugandi og fá að ganga um
í hinni fallegu íslenzku náttúru, skoð-
andi landslagið. Mér finnst ekkert fall-
egra heldur en fsland 1 góðviðri.
En þott það vori nú vel á Tslandi og
ef til vill einnig 1 hugum okkar, þá vor-
ar illa hjá friðarvon mannkyns. Og
meðal helztu vorhreta þar er strúðið 1
Vietnam. Blöðin bera okkur fréttir það-
an og ekki er hægt að komast hjá að
finna, að fréttaflutningur þeirra 1 þessu
máli er mjög hlutdrægur. Það er aug-
ljost, að þau vilja láta menn taka af-
stöðu með öðrum hvorum styrjaldar-
aðilanum.
Þegar ég tek afstöðu til einhverra
mála, þá hafa áður leitað á mig spurn-
ingar, hvaða afstaða geti verið réttust.
Blöðin stilla obeint upp fyrir okkur
spurningu., . sem gæti verið eitthvað á
þessa leið : Ertu hlynntur Bandarikja-
mönnum 1 Vietnam eða kommúnistum?
Og þau svara sjálf, t. d. vertu hlynnt-
ur Bandarúkjamönnum x Vietnam, af þvú
að þeir berjast gegn kommúnistum eða
vertu hlynntur kommúnistum vegna þess
að þeir eru þjóðin. Slikar spurningar
og svör gera hins vegar einfalt mál flók-
ið.
Svar mitt við spurningunni, finnst þér
strfð réttlætanlegt, verður : strúð er
aldrei réttlætanlegt, að minnsta kosti
ekki frá siðfræðilegu sjónarmiði. Þetta
svar hefur þar af leiðandi losað mig
undan að svara með hvorum styrjaldar-
aðilanum ég haldi, vegna þess að það
felur 1 sér, að ég er á móti striði og
öllu, sem því viðkemur.
Frá upphafi veraldar sögunnar hafa
öll stórveldi, held ég ég megi fullyrða,
orsakað styrjaldir. Og vegna þess, að
ég hef andstyggð á styrjöldum, þá hef
ég líka andstyggð á stórveldum, t. d.eins
og Bandaríkjunum, Alþýðulýðveldinu Kína
og Ráðstjórnarríkjunum og mörgum,
mörgum fleirum, sem of langt mál væri
að telja upp.
Ef til vill er öllum ekki ljóst, hvers
vegna strúð eru óæskileg. En það er
vegna þess, að 1 þeim eru brotin öll
helztu siðaboð siðmenntaðs mannfélags,
svo sem sést af þvú, að manndráp
( morð ) eru stunduð 1 þeim 1 stórum
stfl, ennfremur verður eignaeyðilegging
of gífurleg og ýmiss önnur ósvinna.
Strúð leiða þess vegna af sér viður-
styggilegt siðleysi. Það yrði of langt
mál að lýsa þessu styrjaldarsiðleysi hér,
enda vona ég, að þetta geri mönnum
ljóst, hvað styrjaldir eru, ef þeim hefur
ekki verið það ljóst áður.
Úr þvi ég er farinn að ræða um það,
sem viðkemur styrjöldum, þá væri ekki
úr vegi að minnast örlítið á bandariska
hermannasjónvarpið hér á landi, 1
hverju margir háskalegir hlutir og at-
burðir eru sýndir. Ég er einn þeirra
lánsömu, að áliti sjónvarpsunnenda, af
þvi að ég hef horft dálítið á sjónvarpið,
en það sýnir vikulega nokkrar striðs-
myndir ásamt öðrum morðþáttum.
Sérstaklega þótti mér athyglisvert, að
strí’ðsmyndirnar eða öllu heldur ætti að
kalla þær strfðsæsingamyndir, innihéldu
áróður, sem réttlætti og dásamaði styrj-
aldir og þá vitaskuld siðleysi þeirra.
Slíkur áróður er viðbjóðslegur 1 augm
allra friðelskandi manna. Auk þess sem
1 þessu sjónvarpi úir og grúir af þátt-
um með lélegum bandarúskum humor.
Það eru ekki aðrir en börn og andlega
sljóir fullorðnir menn, sem ekki fá á
skömmum tíma leið á dátasjónvarpinu.
Bágt eigum við fslendingar, að yfir
tíú þúsund andlega sljó manntetur skuli
vera í Reykjavík og nágrenni.
Að lokum vildi ég láta í ljósi þá ósk,
að hið væntanlega íslenzka sjónvarp
verði miklu betra en dátasjónvarpið og
fslenzkri menningu til framdráttar.
JÓn Stefán Rafnsson.