Skólablaðið - 01.04.1966, Qupperneq 50
- 198 -
llwranótt 1966
7. marz síðastliðinn frumflutti leik -
nefnd "The Importance of Being Earnest"
eftir Oscar Wilde hér á landi.
Ætlunin er að ræða lítið eitt téða kvöld-
stund í Þjéðleikhúsinu 1 þeirri von, að
enginn skilji meira en efni standa til.
Su ákvörðun aðstandenda að flytja
Herranótt 1 Þjóðleikhúsinu, olli býsna
miklum úlfaþyt meðal ýmissa bæjarbúa,
þeirra er telja sig bera hag íslenzkrar
leikstarfsemi fyrir brjósti. Helztu rök
þeirra, sem andvigir voru nýbreytninni,
virtust þau, að æðstu bækistöðvum Thalíú
á íslandi væri líítilsvirðing sýnd með
uppfærslu skólanemenda á viðfangsefni,
sem væri þeim með öllu ofviða.
Leiknefnd og leikendur tóku gagnrýn-
inni með þögn og þolinmæði og biðu sfns
tíma. Raunin varð og sú, að frá og
með 7. marz þögnuðu kverúlantarnir með
öllu, enda nefnd röksemdafærsla hvort eð
er oltin um sjálfa sig með sýningum
Þjóðleikhússins á "Mutter Courage".
Oscar Wilde er að jafnaði álitinn
vörumerki bókmenntasmekks seinni hluta
nítjándu aldar. Friðurinn á Viktoríú-
timabilinu gaf gamanleikjum af enskum
toga byr undir báða vængi, skörp þjóð-
félagsádeila, líkt og seinna varð, var
ekki í tizku. Þá urðu til mýmargir dag-
stofugamanleikir, sem velflestir eru
gleymdir 1 dag. Lífseigja leikrits Wildes,
"The Importance of Being Earnest", er
þess vegna athyglisverð í hæsta máta.
Að öllum líkindum ræður orðsnilldin þar
mestu um, fremur en söguþráðurinn,
sem laus við afburðagóða umgjörð höf-
undarins yrði vafalaust nauða ómerkileg-
ur. Umræður um ósköp hversdagslega
hluti g.æðir Wilde þvílíkri kímni að
áhorfendur veltast um af hlátri, sbr.
orðaskipti Lanes og Algernons 1 fyrsta
þætti ( : ".......
Algernon : Good heavens ! Is .
marriage so demoralising as that ?
Lane : I believe it is a pleasant
state, sir. I have had very little ex-
perience of it myself up to the present.
I have only been married once. That
was in consequence of a misunderstand-
ing between myself and a young person.