Skólablaðið - 01.04.1966, Page 56
MYNDLISTARSÝNING,
frh. af bls. 181.
204 -
hvern þroska þetta fólk hefur þegar tek-
ið út. Sumir eiga e.t.v. fyrir sér
mikla framtíð við listsköpun. Þeir munu
þá líta á þessi verk sín sem heiðarleg
byrjendaverk, sem jafnvel eru mörg mjög
góð sem slík. Aðrir munu e.t.v. snúa
alveg við blaðinu, hætta afskiptum af
krít og litum, svo engum verður nokkurn
tíma ljóst, hverju þroskastigi þeir myndu
ná. Enn aðrir gera nu þegar sinar
beztu myndir.
Nærri lætur, að meðal hóps, sem
telur 1000 manns, hljóti að finnast all
nokkrir, sem láta ginnast af litum og
lerefti og háfa jafnvel öðlast nokkra þá
gáfu, sem talin er nauðsynleg slíkum
ginningarfí’flum. Myndlistardeild Lista-
fólagsins er þessa fólks. Myndlistar-
deild er það segulstál, sem ætlað er að
draga fram úr skúmaskotum þá, sem að
jafnaði eyða hluta tómstunda sinna í
sysl með áhöld til teikninga og málningar.
Þetta virðist deildinni hafa tekizt allvel.
Heiður á háan skilinn Sverrir Haralds-
son, svo og aðstandendur deildar og
sýningar.
Þökk só þeim fyrir prýðisgóða sýn-
ingu !
Kristín Hannesdóttir.
HEIMUR VERSNANDI FER ?
frh. af bls. 185.
lýsingu á því, hvernig það er að takast
á hendur ferð yfir djúpið mikla, ef það
er þá djúp.
Manntegundir. Sumir menn vilja gera
margt og ætla að gera meira, en verða
svo ekkert, þegar til framkvæmdanna
kemur. Þessir menn eiga gott með að
tala um hlutina og eru nauðsynlegir til
að fylla upp þann skara af ráðum og
nefndum, sem þjá þjóðfólag okkar.
Aðrir eru þeir, sem leggja ekkert til
málanna, standa hjá, kinka kolli, brosa,
eru sáttir við allt og alla. Þessir
menn eru eins nauðsynlegir og þeir
fyrrnefndu. Yfir hverjum ættu mælsku-
mennirnir að þruma, ef ekki þessum
áhugalausu litlukörlum.
Þá eru það þeir, er vilja framkvæmdir,
nýjungar og breytingar. Það er ser-'
kennilegt við þessa menn, að þeir virð-
ast aldrei vera þar, sem þeir ættu að
vera í þjóðfólaginu.
t rauninni ættu þeir að sitja í hinum
fjölmörgu nefndum og rát'um. En það
gerist sjaldan. Þessir menn lenda. oft
á óheppilegustu stöðum og eru þess
vegna ranglega kallaðir uppreisnarmenn,
æsingamenn, byltingasinnar eða stjórn-
leysingjar.
Metnaður. Flestir eru gæddir ein-
hverri metnaðarkennd. Metnaður er
nauðsynlegur. "Ég verð að komast ofar,
verða meira en ég er". Metnaðarleys-
ingjar eiga heima í ræsinu, og þar eru
þeir. En svo er annað, sem er jafn-
slæmt og metnaðarleysi og í rauninni
öllu verra, en það er að vera háður
metnaðarj[irnd. Menn, sem þjást af of-
metnaði í einhverri mynd, eiga bágt á
sálinni. Þeir eru ekki í rónni, fyrr
en þeir geta sannfært sjálfa sig. "Ég
er hæstur, óg er beztur". Vegi þessara
manna lýkur með þvú, að þeir gína yfir
of miklu, og það verður þeim að falli.
Björn Baldursson.
TILKYNNING
Skömmu eftir áramótin efndu Listafó-
lagið og Skólablaðið í sameiningu til leik-
rita- og smásagnakeppni meðal nemenda
skólans. Verðlaun voru geysihá: 1. 2500kr.
2. 1500 kr. , 3. 1000 kr. Skiláfrestur
rann út 15. marz. U. þ. b. tíú titlar bár-
ust, hvar með voru tveir leikþættir.
Lokadómnefnd skipuðu Baldvin Hall-
dórsson, leikstjóri, Jón Sigurðsson, dimitt-
endus og Þóxarinn Eldjárn, 3. békk.
Var einróma samþykkt að“ veita ólafi H.
Torfasyni, 4. b. , efsta sætið, þ. e. 2.verð =
laun. (Ekki þótti nein saga fullnægja skil-
yrðum fyrir veitingu 1. verðl. ) Ernir Snorra
son, 6. b. , og Ijtgvar B. Friðleifsson, 6. y,
deildu með sór 3. verðlaunum.