Litli Bergþór - 01.12.1994, Blaðsíða 16
FJALLFERÐ 1994 frh
er ekið í Árbúðir en þar sofa þeir aðra nótt.
Við Sandá. Kœfuklettur til hægri.
Fjalar ríðandi en Gísli „frændi“ og
hundurinn Kolur koma hlaupandi.
Og nú hófst næstsíðasti dagur fjallferðar og
smala menn sem leið liggur alveg framyfir Sandá.
Þar var brúnni lokað yfir nóttina og fer því fé sjaldan
til baka yfir ána. Þegar sofið er í Sandárskálanum
hefur sú venja orðið að nokkrir fjallmenn fara heim
um nóttina. Þannig hefur fjallkóngurinn yfirgefið
okkur í mörg ár og Brynjar á Heiði farið með honum.
Loftur og Vilborg fara líka.
Ólafur og Magnús raka sig í skálanum
við Sandá kvöldið áður en þeirfara til
byggða.
En það hefur líka orðið oftar en ekki að næsta
dag bætist við hópinn ungt fólk sem hjálpar okkur
að smala síðasta daginn og koma sumir alveg innað
Sandá. Þær Sæunn á Heiði og Elva í Miklaholti
komu núna og voru með okkur allan síðasta daginn.
Síðan bætist auðvitað við fólk upp við afréttar-
girðingu og eins við Gýgjarhól en þar er alltaf
stoppað dálítinn tíma og féð hvílt.
Komið var tiltölulega seint í réttirnar en ekkert
virtist liggja á enda veðrið enn alveg dýrlegt og
mikið af fólki ungu og öldnu sem vildi gera sér
glaðan dag og njóta samverunnar á síðasta
smaladeginum.
Á miðvikudeginum voru réttir eins og venja er
og enn var veðrið slík dásemd að allir nutu lífsins og
gleði ríkti allsstaðar. Og óvænt nutum við þeirrar
uppákomu að rússneskur stúlknakór heimsótti okkur
Fénu saj'nað saman við hliðið hjá
Kjarnholtum, á leið í réttirnar.
í réttirnar og söng. Og það var ekki af verri
endanum söngurinn sá. Þessar stúlkur voru í þeim
gæðaflokki sem best gerist í heiminum og þarna
ómökuðu þær sig við að syngja fyrir okkur frítt á
yndislegum degi í réttunum.
En kjötsúpa beið í öllum pottum í sveitinni og
var ánægjulegt eins og alltaf að fá heimboð í
Feilskot á leið okkar með féð heim á Torfastaði.
Þar ræður ríkjum höfðingskapur og notalegheit,
söngur glens og gaman. D.K.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Jens Petur Johannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
LAUGARÁSI, BISKUPSTUNGUM
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki um
öll leyfi fyrir heimtaug að sumarhúsum og
lagningu raflagna.
Heimasími 98-68845
Verkstæði sími 98-68984
Bílasími 985-37101
Litli - Bergþór 16