Litli Bergþór - 01.07.1997, Síða 5

Litli Bergþór - 01.07.1997, Síða 5
Hvað segirðu til? Hér verður tíundað það helsta, sem telst frásagnar- vert úr sveitinni frá miðjum vetri fram yfir sólstöður. Tíðarfar var fremur gott í vetur, lítill snjór og ekki frosthörkur seinn hluta vetrar. Vetur og sumar frusu saman en fremur hlýtt var í byrjun sumars en síðan kalt fyrri hluta maí. Bjartviðri og logn gaf þó heita daga en oftast fraus um nætur fram um miðjan mánuðinn. Þá gerði hlýindi með vætu og kom grasgróður og lauf á tré á skömmum tíma. I byrjun júní voru fyrst heitir dagar og komst þá hiti vel yfir 20 stig en síðan komu nokkrir kaldir sólarhringar rok og frost sumar nætur og endaði með slyddu viku af júní. Víða mun hafa mátt finna jarðklaka fram í júní svo blautt var um þegar verulega vætti. Töluvert kal er sumstaðar í túnum, þar sem ís lá lengi. Voru það einkum leifamar frá byljum í október, sem skaða ollu. Menningarviðburðir hafa helstir verið á sviði sönglistar. Rökkurkór í Skagafirði og Karlakór Selfoss héldu söngskemmtanir í Aratungu og Vörðukórinn og Skálholtskórinn saman. Bamakór Biskupstungna hefur sungið við ýmis tækifæri. Þess var minnst í Skálholti í sumarbyrjun að 300 ár voru liðin frá dauða Þórðar biskups Þorlákssonar. Hátíðamessa var í kirkjunni og á eftir var 17. aldar matur á borðum í Skálholtsskóla. Eitt var vansagt en annað ofsagt í frásögn í síðasta fréttaþætti af kvöldvöku Búnaðarfélagsins á Hótel Geysi í nóvember. Þar vom tveir jafgildir ræðumenn, Þór Vigfússon, sem sagði frá Kampholtsmóra, og Guðrún Þórðardóttir úr Hveragerði, en hún greindi frá ferð sinni til Kína og sýndi m. a. myndir af því, sem þar bar fyrir augu. Afrekshorn Búnaðarfélagsins fékk Sigríður Vilhjálmsdóttir, hótelhaldari, ein, en umhverfisverðlaun Ungmennafélags íslands og Pokasjóðs verslunarinnar fékk hún ásamt manni sínum, Má Sigurðssyni. Stöðugt er unnið að endurbyggingu Hlíðavegar og mælt hefur verið meira fyrir væntanlegri endurnýjun Biskupstunguanbrautar frá Fellsrana og upp fyrir Heiði. Snotm rauðu hælamir, sem prýtt hafa vegkanta þar í vetur, em nú horfnir, en aðrir ómálaðir komnir í staðinn. Stórt gróðurhús er verið að byggja í Gufuhlíð og hafin er bygging fjóss í Hjarðarlandi. Hjá Yleiningu liggja nú fyrir mikil verkefni, og hefur verið unnið þar á þremur vöktum frá því í byrjun maí. I vor hefur verið unnið að því að leiða í hús heitt vatn úr borholu í Kjamholtum, sem boruð var í fyrra. Landgræðslufélag Biskupstungna er um þessar mundir að semja við Landgræðslu ríkisins og landeigendur (Biskupstungnahrepp og Bræðratungukirkju) um uppgræðslu á nær 3.000 ha. svæði á Tunguheiði og í Hólahögum. Svæðið frá mörkum við Brattholt og Hólanýgræði inn undir Sandá verður girt af og sáð í það og plantað lúpínu. Traðir fyrir fé til að renna niður í Hólahaga verða spölkom vestan við Kjalveginn. Landgræðslan mun kosta girðinguna, en uppgræðslan er hluti af verkefni ríkisins til að binda koltvísýring og verður greidd með fjármunum sem til þess eru ætlaðir. Þetta hefur því ekki áhrif á önnur uppgræðsluverkefni á afréttinum. í sumar er gert ráð fyrir að sá og planta lúpínu í um 400 ha., en áformað er að ljúka við sáningu og plöntun í allt svæði aldmótaárið. Síðar meir er gert ráð fyrir að þetta land verði notað til sauðfjárbeitar. Uppgræðslustarfið hófst daginn fyrir Jónsmessu er sex bændur dreifðu um 38 tonnum af áburði og fræi með Ungir nemendur syngja á opnum degi í Reykholtsskóla. Nú er komið að mér!!! (Komst ekki í Sunnlensl dráttarvélum. Reykholtsskóla var slitið í maílok. Skólastarfinu lauk með þemaviku, og var þá m. a. starfrækt útvarpsstöð í skólanum og sýnd ýmiskonar vinna nemenda. I Sunnlenska fréttablaðinu var greint frá því í vor að Gísli Einarsson, oddviti, hafi tilkynnt á fundi héraðsnefndar að hann hafi ákveðið að gefa ekki kost á sér til starfa að sveitarstjómarmálum næsta kjörtímabil. Ný heilsugæslustöð í Laugarási var tekin í notkun með pomp og pragt um sólstöðumar. Ingvar Ragnar Ingvarsson frá Hvítárbakka, sem átt hefur heima í Bergholti síðustu ár, andaðist í mars. Hann var jarðsettur í Bræðratungu. Helga Tómasdóttir á Gýgjarhóli andaðist í maí. Utför hennar fór fram í Haukadalskirkju og var hún jarðsett þar. Halldóra Jósepsdóttir, sem var húsmóðir í Amarholti frá 1946 til 1971, andaðist í maí. Hún var jörðuð á Torfastöðum. Hreinn Erlendsson frá Dalsmynni, sem hefur verið búsettur á Selfossi síðustu áratugi, lést í maí. Hann var jarðaður á Torfastöðum. Helga Karlsdóttir á Gýgjarhóli andaðist um miðjan júní og var hún jörðuð í Haukadal. Útför hennar, og einnig Ingvars, Halldóru og Hreins, fór fram frá Skálholtskirkju. Þar var einnig gerð útför Jóns Guðmundssonar í Fjalli á Skeiðum, en hann lést í byrjun júní. Hermann Bjamason, í Auðsholti, lést um miðjan júní og var einnig jarðaður í Skálholti. A. K, Litli - Bergþór 5

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.