Litli Bergþór - 01.07.1997, Side 7

Litli Bergþór - 01.07.1997, Side 7
Hreppsnefndarfréttir ábúanda í Vegatungu, Friðriki Sigurjónssyni, dagsett 25. 3. 1997. Gerðar eru athugasemdir við ófrágengin landamörk og vegalagningu. Athugasemdin er send til Jarðeignadeildar ríkisins til umsagnar. Bréf frá spilliefnanefnd, dags. 25. 3.1997. Kynnt spilliefnagjald sem leggja á á ýmsa vöruflokka. Fundargerð skólanefndar dags. 21. 3.1997. Gísla falið að afla skýrslu fyrir næsta hreppsnefndarfund frá Skólaskrifstofu um samskipti skrifstofunnar við Reykholtsskóla. Ákveðið að boða skólastjóra á næsta hreppsráðsfund til að ræða síðasta lið í bókun skólanefndar um lögsögu skólastjóra í hinum ýmsu málum. Gísla falið að undirbúa tillögur fyrir aðalfund SASS sem fulltrúar Biskupstungnahrepps flyttu á fundinum. Tillögumar em um umráð yfir Geysissvæðinu, brú á Hvítá og vegamál að Geysi og Gullfosssvæðunum. Hreppsráðsfundur 10. apríl 1997. Allir nefndarmenn mættir ásamt Einari Sveinbjörnssyni lögg. endurskoðanda hreppsins. Þriggja ára fjárhagsáætlun. Einar fór yfir áætlun sem hann hafði unnið fyrir hreppinn til næstu þriggja ára. Annars vegar miðað við óbreytta stöðu samkv. núverandi drögum að fjárhagsáætlun og hins vegar miðað við að bygging íþróttahúss verði hafin strax á þessu ári. Hreppsráð leggur til að fjárhagsáætlun eins og hún liggur fyrir í dag og þriggja ára áætlun með byggingu íþróttahúss innifalinni verði báðar staðfestar á næsta hreppsnefndarfundi. Bréf frá Þorfinni Þórarinssyni Spóastöðum. Hann hvetur til að söfnun heimilda vegna byggingar Aratungu verði sinnt til að heimildir glatist ekki. Einnig hvetur hann til að útilistaverkinu verði sinnt betur og bendir á Minningarsjóð Biskupstungna af því tilefni. Hreppsráð felur oddvita að fá Helga Kr. Einarsson til að huga að heimildasöfnun og hafa samband við stjóm Minningarsjóðsins vegna listaverksins. Bréf frá Jónínu Stefánsdóttur Lyngbrekku 1, Kópavogi. Hún fer fram á að fá felld niður fasteignagjöld vegna sumarhúss í landi Efri-Reykja, þar sem hún er ellilífeyrisþegi. Hreppsráð leggur til að erindinu verði hafnað þar sem viðkomandi hefur ekki fasta búsetu í sveitarfélaginu. Hreppsnefndarfundur 15. aprfl 1997. Allir nefndarmenn mættir nema Guðmundur en Ágústa Ólafsdóttir kom inn í hans stað. Sameiginlegur fundur hreppsnefnda Biskupstungnahrepps og Hrunamannahrepps, haldinn í Skálholtsskóla þriðjudaginn 8. aprfl 1997. Eitt mál á dagskrá: Bygging brúar á Hvítá við Brœðratungu. Allir hreppsnejhdarmenn beggja sveitarfélaga mœttir, utan Svavars Sveinssonar frá Biskupstungnahreppi, ásamt öllum þingmönnum Suðurlandskjördœmis. Oddvitar sveitarfélaganna skýrðu skoðanir heimamanna. Alþingismenn skýrðu sín sjónarmið og allir, að Lúðvík Bergvinssyni undanskildum, lýstu því yfir, að þegar að næsta brúarverkefni kæmi, á Suðurlandi, væri Hvítárbrú efst á lista að þeirra mati. Fundarmenn skiptust síðan á skoðunum og voru allir einhuga um að leggja áherslu á verkefnið. Ársreikningur sveitarsjóðs 1996 síðari umræða og afgreiðsla. Ársreikningur Biskupstungnahrepps fyrir árið 1996 var samþykktur og undirritaður af hreppsnefndarmönnum. Fjárhagsáætlun 1997 og þriggja ára áætlun, umræða og afgreiðsla. Lögð var fram fjárhagsáætlun 1997. Einnig var lögð fram þriggja ára áætlun þar sem gert er ráð fyrir byggingu íþróttahúss og önnur þriggja ára áætlun sem gerir ekki ráð fyrir íþróttahúsi. Fjárhagsáætlun fyrir 1997 var samþykkt ásamt þriggja ára áætlun sem gerir ráð fyrir byggingu íþróttahúss. Vegna óvissu um fjárþörf sveitarfélagsins og mikilla skulda mælir Svavar með því að framkvæmdum við íþróttahús verði frestað. Kauptilboð v/ sláturhússins í Laugarási. Hlíf Pálsdóttir f. h. óstofnaðs hlutafélags gerir kauptilboð í Sláturhúsið í Laugarási ásamt lóð og hita. Seljandi er Sláturfélag Suðurlands og kaupverð 7.500.000,- kr. Hreppsnefnd samþykkir að neyta ekki forkaupsréttar. Bréf Veiðistjóra 9. apríl. Nýjar reglur um refa og minkaveiðar þar sem kynnt er að ríkissjóður greiði ekki lengur nema 50% vegna grenjaleitar refa. Bréf Ferðamálasamtaka Suðurlands þar sem boðaður er aðalfundur og ráðstefna að Kirkjubæjarklaustri 18 og 19 apríl 1997. Erindi Sýslumannsins á Selfossi 8. aprfl varðandi leyfi til vínveitinga utandyra við veitingastofuna Réttina í Úthlíð. Hreppsnefnd samþykkir að fenginni umsögn félagsmálanefndar. Bréf Samb. ísl. sveitarfélaga 7. apríl um viðmiðunarreglur um veitingu launalausra leyfa til kennara og skólastjóra grunnskóla kynnt Tillaga um fækkun í hreppsnefnd: Við undirrituð leggjum til að fækkað verði um tvo í hreppsnefnd Biskupstungnahrepps. Undirbúningur verði þegar hafinn og miðist við að við næstu kosningar vorið 1998 verði kjömir fimm fulltrúar í sveitarsjóm Biskupstungnahrepps. Sveinn A. Sæland, Drífa Kristjánsdóttir, Páll M. Skúlason. Tillagan kynnt til afgreiðslu síðar. Tillaga Páls M. Skúlasonar, þar sem lagt er til að hreppsnefnd leiti samstarfs við aðra uppsveitahreppa um hönnun og uppsetningu vefsíðu á netinu. Tillögunni vísað til hreppsráðs. Litli - Bergþór

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.