Litli Bergþór - 01.07.1997, Blaðsíða 8
Hreppsnefndarfréttir
Hreppsráðsfundur 23. aprfl.
Aðalskipulag Reykholts. Pétur Jónsson og Haraldur
Sigurðsson mættu og gerðu grein fyrir drögum að
greinargerðinni o.fl. Ymsar athugasemdir komu fram og
viðbætur. Stefnt að því að endanleg útgáfa liggi fyrir á
júnífundi hreppsnefndar.
Bréf SASS frá 16. apríl. Samþykkt að greiða kr.
29.750,- fyrir mynd af Reykholti sem hanga mun á
skrifstofu SASS.
Jóhannes Gíslason frá Genis hf mætti með
Bandaríkjamann með sér og kannaði aðstæður og áhuga
fyrir staðsetningu stórrar verksmiðju sem framleiða
myndi rækjur, þörunga og ef til vill fleira. Hreppsráð
taldi alla möguleika á að koma mætti slíkri verksmiðju
fyrir í Tungunum og er að vænta fleiri upplýsinga frá
þeim félögum. Hreppsráð mun væntanlega fara til
Flórída í boði fyrirtækisins og kynna sér rekstur
stórfyrirtækja á þessu sviði.
Beiðni Gunnars Guðjónssonar listmálara um lóð í
Laugarási. Hreppsráð felur oddvita ásamt Pétri Jónssyni
að finna lausn á málinu og hugsanlega taka málverk upp í
greiðslu á lóð.
Bréf Samb. ísl. sveitarfélaga um ráðstefnu um vamir
gegn áfengis og vímuefnavandanum dags. 18. apríl 1997.
Sent Félagsmálanefnd og ef til vill Fjallskilanefnd.
Bréf Landgræðslu ríkisins dags. 15. aprfl 1997.
Leitað er eftir samþykki sveitarstjómar sem landeiganda
til að græða upp svæðið frá afréttargirðingu og inn að
Sandá. Hreppsráð mælir eindregið með þessum
hugmyndum.
Hreppsráðsfundur 5. maí.
Bréf Sorpu dags. 15. aprfl 1997. Varðar framkvæmd
á eyðingu spilliefna sem bera spilliefnagjald. Gísla falið
að ræða við aðra oddvita uppsveitanna þar sem nú þegar
er samstarf um þessi mál og bera þetta tilboð saman við
samninginn sem í gildi er.
Reykholtsskóli. Á fundinn mættu auk Hreppsráðs,
skólanefnd Reykholtssóla, skólastjóri, Kristinn
Bárðarson og þrír fulltrúar frá Skólaskrifstofu
Suðurlands, þau Jón Hjartarson, Ágústa Gunnarsdóttir og
Auður Kristinsdóttir. Farið var yfir samskipti
Skólaskrifstofu og Reykholtsskóla á liðnum vetri.
Aðilar skiptust á skoðunum og vísast til fundargerðar
skólanefndar þar sem mál eru bókuð ítarlega.
Hreppsnefndarfundur 13. maí 1997.
Allir nefndarmenn mættir nema Svavar.
Skipulag sumarbústaða á Reykjavöllum. Lagt fram
bréf frá Landbúnaðarráðuneytinu dags. 9. maí '97
ásamt makaskiptaafsali milli jarðanna Reykjavalla og
Vegatungu, undirritað af ábúendum. Bréf frá Sigurði
Guðmundssyni til Landbúnaðarráðuneytis 21. 4. '97
ásamt samkomulagi um girðingastæði og tilhögun
girðinga dags. 7. maí '97. Þar sem fullt samkomulag
virðist um málið, samþykkir hreppsnefnd skipulagið og
vísar því til Skipulags ríkisins til samþykktar.
Skipulag sumarbústaða á Felli. Borist hefur ein
athugasemd vegna skipulagsins dags. 16. 4. '97 frá
Jóhanni Vilbergssyni og fjölskyldu. Telja þau að ekki
hafi verið gegnið frá skiptasamningi við þau. Þar sem
skiptasamningnum hefur nú verið þinglýst samþykkir
hreppsnefnd skipulagið og vísar því til Skipulags ríkisins
til samþykktar.
Bréf Skógræktardeildar U.M.F.Bisk. Deildin óskar
eftir svokölluðu Sigurðarlandi í Laugarási til afnota.
Samþykkt að hreppsnefnd kynni sér málið nánar, þ.á.m.
rétt núverandi lóðarhafa.
Hönnun á vefsíðu uppsveitanna. Rætt um hugsanlegt
samstarf M. L. við sveitarfélögin um gerð vefsíðu.
Sveini falið að kynna hugmyndimar innan
ferðamálasamstarfsins og leita eftir þátttöku
sveitarfélaganna.
Bréf Sorpstöðvar Suðurlands 9. maí. Boðið er upp
á þjónustu við söfnun á dagblöðum og
drykkjarvöruumbúðum. Samþykkt að fá gáma í
Reykholt og Laugarás.
Bréf Gylfa Haraldssonar og Péturs
Skarphéðinssonar. Itrekuð er umsókn um lóðir í
Laugarási. Samþykkt er að Gylfi og Pétur fái lóðir en
afgreiðslu frestað vegna endurskoðunar skipulagsmála í
Laugarási.
Bréf Daníels Mána Jónssonar 30. 4.'97. Farið er
fram á styrk til útvarpsreksturs í maí. Samþykkt að
styrkja starfsemina í formi auglýsinga um kr. 10.000,-.
Bréf Is-jeppa s.f. 5. maí. Óskað er eftir leyfi til
lagningar vegar af Bláfellshálsi að Langjökli. Samþykkt
að leita eftir því við skipulagsyfirvöld að vegagerðin geti
farið fram í sumar þrátt fyrir að skipulag miðhálendisins
hafi ekki verið samþykkt enda brýtur hún ekki í bága við
tillöguna.
Kosning byggingarnefndir íþróttahúss. Lögð fram
fundargerð undirbúningsnefndar íþróttahúss frá 8. 4. '97
og 13. maí 97. Kosnir voru í bygginganefnd íþróttahúss.
Gísli Einarsson, Kjartan Sveinsson og Gunnar Sverrisson
og taki hún þegar til starfa þar sem undirbúningsefnd
hefur lokið störfum.
Lögð fram verk- og kostnaðaráætlun vegna úttektar
á sex grunnskólum í uppsveitum Ámessyslu. Verkið er
unnið á K.H.Í. og heildarkostnaður er 1.343.372 kr.
Hlutur okkar yrði ca. 270.000 kr. Samþykkt að taka
jákvætt í erindið.
Hreppsráðsfundur 3. júní 1997.
Bréf Helga Sveinbjörnssonar dags. 16. maí. Sótt er
um land til beitarafnota fyrir Dýragarðinn Slakka og er
ætlunin að beita þar geitum, kálfum og folaldi.
Hreppsráð samþykkir að verða við þessari ósk, enda sjái
þau um girðingar í samráði við verkstjóra hreppsins.
Leyfið gildir fyrir sumarið 1997.
Bréf Kristínar Hólmgeirsdóttur dags. 4. maí 1997.
Umsókn um rekstrarleyfi fyrir Pylsubankann með sama
sniði og verið hefur. Hreppsráð samþykkir umsóknina.
Litli - Bergþór 8