Litli Bergþór - 01.07.1997, Síða 15
Logafréttir
Frá unglinganefnd Loga.
Mikil gróska hefur verið í æskulýðsstarfi innan
hestamannafélaganna um allt land og það á lrka við í
félaginu okkar, Loga. í þessu starfi hefur áhersla verið
lögð á starf á breiðari grunni en verið hefur, þ.e. annað en
hefðbundnar keppnir. Með því gefst fleirum kostur á að
vera með.
Aukið samstarf er meðal unglingafulltrúa
hestamannafélaganna á Suðurlandi og hafa þeir hittst á
sameiginlegum fundum og borið saman bækur sínar.
Einnig hafa Logi, Trausti og Smári átt gott og vaxandi
samstarf.
Það, sem helst hefur verið á döfinni á s.l. ári:
Þann 7.-9. júní 1996 voru Frissa fríska leikarnir á
Akureyri haldnir í fyrsta skipti. Þangað fór vaskur hópur
úr Loga og Smára, alls 19 manns. Var sú ferð frábær og
vel heppnuð í alla staði og heim
kom hópurinn með stóran bikar
fyrir góða liðsheild og
prúðmannlega framkomu.
í lok ágúst heimsóttu okkur
um 20 krakkar frá Smára og komu
að sjálfsögðu ríðandi. Nokkur
hópur úr sveitinni reið til móts við
gestina að Brúarhlöðum, en þaðan
var haldið í Hrísholt.
Veðurguðirnir voru unga
hestafólkinu ekki hliðhollir, það
má með sanni segja að það hafi
hellirignt og allt var á floti. En
enginn lét það á sig fá og allir
skemmtu sér hið besta. Nýja
hesthúsið sannaði ágæti sitt, en
þangað inn flúðum við með grillið og síðar um kvöldið
var nokkrum tjöldum tjaldað innandyra! Tvö tjöld voru
þó reist utandyra en aðrir sváfu í flatsæng í félagshúsinu.
En ekki tókst að kveikja varðeldinn! Morguninn eftir var
farið í sund í Reykholti en heim á leið héldu gestirnir um
hádegisbil í góðu veðri.
Þann 23. febrúar var unglingum úr hestamanna-
félögunum í Ámessýslu boðið á hestadaga í reiðhöll Gusts
í Kópavogi. Þangað fóru um 90 krakkar að austan og
horfðu á skemmtilega sýningu. Að henni lokinni var
boðið upp á pylsuveislu.
Logi og Smári héldu sameiginlegan fræðslufund í
Bergholti 1. mars.
Gestir fundarins voru Sigurður Ingi Jóhannsson
dýralæknir og Lilja Loftsdóttir í Steinsholti. Sigurður
ræddi um fóðrun og þjálfun reiðhestsins en Lilja fjallaði
um umhirðu á reiðtygjum og reiðtygjagerð og sýndi
krökkunum hvemig höfuðleður, reiðmúlar og fleira er
búið til. Krakkamir sýndu mikinn áhuga og spurðu
gestina spjörunum úr.
Sameiginleg unglingaárshátíð hestamannafélaganna á
Suðurlandi var haldin að Efstalandi í Ölfusi 15. mars.
Hana sóttu rúmlega 100 manns, en því miður var engin
þátttaka frá Loga.
í vetur kom fram ósk frá unglinganefnd Sörla í
Hafnarfirði þess efnis að gerast vinafélag Loga, Trausta
og Smára varðandi samskipti unglinganna innan þessara
félaga. Þessari ósk var að sjálfsögðu vel tekið. Fyrsti
þáttur í því samstarfi var síðan helgina 11.-12. apríl,
þegar 23 krakkar frá Sörla komu í heimsókn og var tekið
á móti þeim í Aratungu af 25 krökkum úr
vinafélögunum. Á föstudagskvöldinu var samvera sem
byrjaði með pizzuveislu. Eftir morgunverð á
laugardeginum var farið í sund en síðan í rútuferð. Farið
var í heimsókn að Torfastöðum, og uppeldisstöðina á
Minni-Borg. I félagsheimilinu á Borg var boðið upp á
kakó og smurt brauð, sem gerð voru góð skil. Gerður var
stuttur stans við Kerið og að endingu komið við í fjósinu
að Laugarbökkum í Ölfusi þar sem leiðir skildu. Alls
staðar var vel tekið á móti hópnum og eru gestgjöfum
færðar bestu þakkir
fyrir uppfræðslu og
móttökumar.
Heimboð kom
svo frá Sörla helgina
26.-27. aprfl. En
vegna anna m.a.
vegna samræmdu
prófanna, var ekki
talið fært að þiggja
heimboðið að sinni.
Það verður skoðað
aftur næsta vetur og
sennilegt er að
framvegis verði
þessar heimsóknir til
skiptis hvert ár.
Það, sem framundan er: Frissa fríska mótið á
Akureyri 6.-8. júní, æskulýðsmót á Gaddstaðaflötum 11,-
12. júlí, haldið sameiginlega af félögunum á Suðurlandi,
og reiðtúr til Smára í ágúst.
Eins og sjá má af framantöldu þá hefur starfið verið
fjölbreytt á s.l. ári.
Auk þess sem upp er talið þá taka unglingamir að
sjálfsögðu einnig þátt í þeim mótum, sem haldin em á
vegum félagsins, s.s. vetrarmóti, íþóttamóti, firmakeppni
og félagsmótinu.
S.l. vetur auglýsti unglinganefndin eftir krökkum,
sem hefðu áhuga á því að hafa hest á húsi yfir
vetrartímann, en vantaði aðstöðuna. Tveir gáfu sig fram í
Reykholti og var þeim hjálpað til þess að fá inni í
hesthúsi í hverfinu og er sú aðstaða að litlu leyti
niðurgreidd. Sveitarfélagið hefur veitt kr. 50.000 í
unglingastarf Hestamannafélagsins og hefur sú upphæð
verið notuð til þess að greiða niður kostnað vegna
ferðalaga unglinganna og annan kostnað tengdan starfinu
s.s heimsóknir frá öðmm félögum. Unglinganefndin
þakkar kærlega fyrir þetta framlag.
Unglinganefndin vill þakka öllum krökkunum, sem
tekið hafa þátt í starfinu á árinu, fyrir áhugann og mjög
gott samstarf.
Hólmfríður Ingólfsdóttir.
_________________________ Litli - Bergþór 15
Kátir krakkar á leið heim afFrissafríska mótinu.