Litli Bergþór - 01.07.1997, Qupperneq 16
Frá íþróttadeild U.M.F.B.
Körfuknattleikur
voru það við sem stóðum að mótinu og kepptum við að
Laugarvatni í 8. flokknum. Fóru leikar þannig að
Hrunamenn unnu alla sína leiki og urðu þar með í fyrsta
sæti, Laugvetningar sigruðu í tveimur leikjum og urðu í
öðru sæti, við sigruðum í einum leik og urðum þar með í
þriðja sæti og í fjórða sæti var svo Hvöt í Grímsnesi. í
minnibolta drengja kepptum við á Flúðum, en í þessum
flokki voru það aðeins tvö félög sem náðu saman liði,
þ.e.a.s. Hrunamenn og Tungnamenn. Hrunamenn unnu
leikinn. Engin keppni fór fram í stúlknaflokki þar sem
aðeins Hrunamenn áttu lið til keppni.
6. flokkur.
Nú er lokið körfuknattleikstímabilinu þennan
veturinn. Umf. Bisk. tók þátt í Héraðsmóti unglinga, en
þar voru skráð til leiks tíu lið. Það er búið að vera
svipaður fjöldi undanfarin ár. Við höfðum þann háttinn á
núna að spila heimaleikina okkar að Laugarvatni. Okkur
fannst ekki boðlegt lengur að spila leikina í Aratungu,
þar sem ekki er hægt að hafa fullskipað lið inn á og
umhverfið hættulegt leikmönnum, sérstaklega gestunum
sem eru ekki vanir að spila í samkomuhúsi. Við
byrjuðum mótið mjög vel og sigruðum í öðrum leik, en
síðan ekki söguna meir. Reyndar töpuðum við tveimur
leikjum með aðeins einu stigi. Við
urðum sem sagt í níunda sæti, en
úrslit leikja urðu þessi: Bisk,- Þór 54-55
Garpur- Bisk. 46-57
Bisk.- Selfoss 28-77
Eyrabakki- Bisk. 50-43
Bisk,- Hvöt 49-50
Hrun,- Bisk. 86-45
Bisk,- Hekla 35-52
Hamar - Bisk. 67-29
Bisk,- UBH. 32-39
Sú nýbreytni var tekin upp hjá
HSK að búa til mót fyrir yngri
flokka. Við tókurn þátt í hraðmóti
hjá 8. flokki, en spilaðar voru tvær
umferðir. Við unnum einn leik og
töpuðum tveimur í báðum umferðunum. Fyrri umferðin
fór fram að Laugarlandi í Holtum en sú seinni að
Laugarvatni.
Þá er eftir að nefna Garðyrkjumótið eða
fjögurrafélagamótið eins og það hefur oftast verið kallað.
GBFUA eða Garðyrkjubændafélag Uppsveita Árnessýslu
hefur gefið bikara á þetta mót svo eðlilegast er að kalla
það Garðyrkjumótið. Fyrst var keppt í þessu móti árið
1987 í 8. flokki. Síðan hefur verið keppt á hverju ári og
hafa félögin skiptst á að sjá um mótið. Undanfarin ár
hefur einnig verið keppt í flokki minni bolta drengja og
einu sinni hefur náðst að keppa í stúlkna flokki. Þetta árið
8. flokkur.
Eins og sjá má í
þessu uppgjöri
mínu um
körfuboltann, þá
höfum við þurft að
leita til annarra
sveitafélaga með
aðstöðu þegar við
tökum þátt í keppni
eða þurfum að
standa að mótum.
Eins og nærri má
geta er þetta mjög
bagalegt bæði hvað
10. flokkur. varðar ferðalög og
ekki síður það að
okkar krakkar hafa aldrei neina stuðningsmenn á sínum
heimaleikjum sem hvetja þau til dáða. Eins er það
auðvitað mjög erfitt að æfa körfubolta við aðstæður eins
og eru í Aratungu og keppa síðan að Laugarvatni. Við
fögnum því heilshugar þeirri ákvörðun hreppsnefndar að
hefja framkvæmdir við byggingu íþróttahúss og vonum að
sú framkvæmd gangi vel og hratt fyrir sig. Að lokum vil
ég þakka öllum þeim sem tóku þátt í körfuboltanum í
vetur, leikmönnum, dómurum, foreldrum og öðrum þeim
sem hafa lagt okkur lið.
F.h. körfuknattleiksnefndar,
Áslaug Sveinbjömsdóttir.
Litli - Bergþór 16