Litli Bergþór - 01.07.1997, Síða 20

Litli Bergþór - 01.07.1997, Síða 20
Ritsmíðar nemenda í 4. og 5. bekk Reykholtsskóla veturinn 1996-1997. <--------------------------------------------------- Ef ég væri... Höf: Lovísa Tinna Magnúsdóttir, Kjóastöðum. Ef ég væri skólataska yrði ég á ferð og flugi allan daginn. Ég yrði rifin snemma upp á hverjum degi og mér dröslað fram á gang. Þar væri ég látin bíða þangað til eigandi minn væri búinn að borða morgunmatinn. Svo væri ég dregin óviljug út í skólabílinn, þar sem ég væri látin sitja á leiðinni í skólann, innan um krakka með hávaða. Þegar ég kæmi í skólann yrði mér hent á gólfið í skólastofunni, þar sem eigandi minn byrjar að róta í mér í leit að skóladótinu sínu. Að loknum skóladegi væri mér síðan dröslað heim í sama skólabílnum með sama eigandanum og daginn eftir hefst þetta allt aftur. Gæludýr Höf: Andri Freyr Hilmarsson, Skálholti. Kötturinn minn heitir Daði. Hann er eins og bangsi í framan og svo er hann ýkt feitur. Hann er næstum því villiköttur, því hann er eiginlega alltaf úti. Hann týndist í tvo mánuði, en svo kom hann heim eina nóttina. Við héldum að hann væri dáinn. Hann er rosa matvandur, en þegar hann byrjar að borða getyr hann ekki hætt. Bróðir minn Höf: Anna Helga Guðmundsdóttir, Iðu. Bergur heitir bróðir minn hann er rosa sætur hann er stærri en bróðir þinn og hann fer mjög snemma á fætur Bergur heitir hann, já og mun alltaf heita stígi hann á litlutá mun hann alltaf neita. Að bílum alltaf leikur sér og honum finnst það gaman en hann stundum stríðir mér þegar við erum saman. Ef ég væn. Gæludýrið Höf: Sigrún Erna Kristinsdóttir, Reykholti. Pontíus er kisan mín. Hanr algjört gæludýr. Hann er g og gerir ekki flugu mein, nema hann étur flugur. Hann er besti köttur í heimi. Hann er einkaeign mín. Ponti er þriggja ára. Hann er með hjarta úr gulli. Hann er alltaf að lúra, nema þegar hann er að éta og veiða. Þegar hann vill komast inn þá klórar hann í hurðina ' yvið hleypum honum inn. Höf: Jónína Erna Gunnarsdóttir, Tjörn. Ef ég væri afgreiðslukona myndi ég alltaf afgreiða fólk, panta vörur í búðina, taka við pöntunum og verðmerkja vörumar. Einu sinni á ári er vörutalning og þá þarf að telja allar vörurnar í búðinni og á lagernum. Á hverjum degi þarf að setja nýjar vörur í hillumar, því hillurnar mega ekki vera tómar. Með eða á móti sælgæti Höf: Ólöf Anna Brynjarsdóttir, Heiði. Sælgæti er gott en óhollt. Tennurnar skemmast og maður missir stundum matarlystina. En ég missi oft matarlystina. Mér finnst asnaleg að systir mín er með ofnæmi fyrir nammi og öllu sætu og ávöxtum. Það er Sæunn. Mér og öðrum finnst nammi gott, en sumum finnst nammi vont til dæmis Ólöfu ömmu, en hún étur sjálf tyggjó og hún gefur okkur tyggjó. L. Litli Bergþór 20

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.