Litli Bergþór - 01.07.1997, Page 23
Ritsmíðar nemenda í 4. og 5. bekk
Reykholtsskóla veturinn 1996-1997. frh...
Amma mín
Höf: Fanney Þóra Magnúsdóttir, Króki.
Amma mín heitir Þórdís Ivarsdóttir, en hún er
oftast bara kölluð Dísa. Hún er 96 ára, gráhærð og
frekar lágvaxin. Hún er mamma, amma,
langamma og langalangamma. Hún býr á
neðri hæðinni á Króki. Afí er dáinn, hann dó
áður en ég fæddist. Mér skilst að hann hafí
verið verið indælis maður og amma er oft að
tala um hann. Einu sinni gaf amma mér penna
sem afí átti og skrifaði alltaf með. Mér þykir
mjög vænt um pennann. Amma er mjög
góðhjörtuð. Ef það koma gestir tekur hún þeim
alltaf opnum örmum og gefur þeim kökur og
annað góðgæti, en hún á alltaf eitthvað gott.
Þegar ég kem í heimsókn gefur hún mér alltaf
nammi. Amma er alltaf í kjól nema þegar hún
fer í löng ferðalög, þá fer hún í buxur. Amma
á fullt af styttum og u.þ.b. 670 bækur. Hún á
líka fullt af skartgripum og hún hefur gefíð
mér hálsfestar, nælur og armbönd. Amma
eignaðist 5 börn og 4 þeirra eru enn á lífí. Hún
ól upp tvo fóstursyni, annar þeirra er
dóttursonur hennar, en hinn er pabbi minn.
Amma á 18 ömmubörn, 22
langömmubörn og 1
langalangömmubarn. Amma
hefur saumað margar fallegar
myndir og málað margar
fallegar svuntur og dúka.
Hún hefur líka búið til
margar gólfmottur og margir
eiga vörður sem hún hefur
búið til úr grjóti. Amma
prjónar ennþá sokka og
vettlinga. Hún var næst elst
af 7 systkinum og er sú eina
sem enn er á lífí. Hún er elsti
íbúi í Tungunum. Mér þykir
mjög vænt um ömmu mína.
AMMA ER BEST !!!
Ef ég væri...........
Höf: Fríða Helgadóttir, Hrosshaga.
Ef ég væri hestur myndi ég vilja vera jörp með svart
fax og tagl og lítil. Ég vildi vera hjá góðu fólki sem
annaðist mig vel. Svo borðaði ég gras og drykki vatn
eins og aðrir hestar. Fólkið sem ætti mig , mætti ekki
slá mig áfram, þreyta mig eða hætta að gefa mér mat.
Þeir sem settir væru á mig sætu mig vel og rækju ekki
pískinn alltaf í mig og þreyttu mig ekki. A veturna
fengi ég að vera inni í hesthúsinu og fengi góðan mat.
Vonandi yrði ég ekki seld, nema fólkið væri vont við
mig. Ef ég yrði seld til einhvers annars myndu
hestamir þar sparka í mig, því þeir myndu halda að ég
vildi stjóma. Á sumrin hlypi ég á túnunum væri frjáls,
en léti mennina ekki fara með mig eins og ég væri
eitthvert vont dýr. Fólkið er heimskt og veit ekki
hvernig dýrunum líður. Ég vildi heita Telja.
Gæludýrið mitt
Höf: Níels Magnús Magnússon,
Austurhlíð.
Gæludýrið mitt er naggrís. Hann
er karlkyns. Hann heitir Nebbi.
Kristín á lfka naggrís og þess
vegna skiptumst við á að þvo
búrið. Við keyptum þá í Arakoti á
Skeiðum. Þar bjó kona og maður.
Konan ræktaði naggrísina og líka
kanínur. Ég valdi þann minnsta,
en Kristín stærsta. Þeir borða
mikið gras, mikinn naggrísamat
og líka blóm. Þeir drekka líka
mikið.
Litli - Bergþór 23