Litli Bergþór - 01.12.2001, Qupperneq 18

Litli Bergþór - 01.12.2001, Qupperneq 18
Sigríður og Sveinn í Bræðratungu frh mjólkurkýr og milli 3 og 400 fjár, þótt því væri farið að fækka og búið væri að eyða sauðunum vegna mæðiveikinnar, sem kom fyrr þar en hér í Tungu. Sauðabúskapur hafði áður verið mikill á Kiðjabergi, eða um 200 sauðir. En þeir voru einskonar sparisjóður bænda í þá daga. Ullin var þá svo verðmæt, að hún borgaði fóðrið og kjötið af þeim var svo hagnaðurinn. Voru þeir látnir ganga úti að mestu leyti og ekki gefið nema í verstu veðrum. En samt varð að gæta þess að fóðra þá svo vel að þeir héldu ullinni, þ. e. að ekki kæmu skil á vorin. Annars var heyskapur mikill á Kiðjabergi, mikill mannskapur við slátt og rakstur og kappsamlega unnið. Kiðjaberg 1927. L.B: Skólagangan, hvernig var hún? Sveinn: Eg var náttúrulega í Barnaskólanum í Reykholti hjá Stefáni Sigurðssyni skólastjóra. Byrjaði 10 ára gamall í vorskóla, en það varð eitthvað styttra í dvölinni en til stóð, bara 4-5 dagar ef ég man rétt. Eftir barnaskólann fór ég 17 ára í Héraðsskólann á Laugarvatni til Bjarna Bjarnasonar og var þar tvo vetur 1944 -46. Stelpur voru taldar meira bráðþroska þá og máttu fara 16 ára í skólann. Svo var fæðið líka fjórðungi ódýrara fyrir þær! Þetta var bölvað óréttlæti! Síðan var ég einn vetur heima, en fór svo á Hvanneyri veturinn 1947 -48. Eg tók bara eldri deildina þar sem ég var búinn að vera á Laugarvatni. Við vorum 3 „vetrungar,, herbergisfélagar á Hvanneyri, en auk mín voru það Kristinn Jónsson frá Þverspyrnu í Hrunamannahrepp, síðar tilraunastjóri á Sámsstöðum og Páll Ólafsson, bóndi á Brautarholti á Kjalarnesi. Það var góður heimilisbragur þarna, en Guðmundur Jónsson var þá nýskipaður skólastjóri. Þetta sama ár var búvísindadeildin sett á stofn. L-B: Kannt þú einhverjar sögurfrá skólaárum þínum og voru einhverjir aðrir Tungnamenn samtímis þér, t.d. á Hvanneyri? Sveinn: Nei, ég kann engar sögur. Við vorum svo stilltir! En ég á bara góðar minningar frá báðum þessum skólum. Skólafélagarnir voru góðir og vrðs vegar að af landinu. Við vorum til dæmis að hittast í gær á Geysi, Litli - Bergþór 18 ------------------------- gamlir skólafélagar frá Laugarvatni. Við hittumst fyrst eftir 50 ár, en síðan höfum við hittst þrisvar. A Laugarvatnsárum mínum kynntist ég Páli á Hjálmsstöðum, en mér hafði verið uppálagt að skila sérstakri kveðju til hans frá föður mínum, því milli þeirra var sérstakur vinskapur. Hafði Páll verið hjá afa mínum á Kiðjabergi í nokkrar vikur sem unglingur til að læra að reikna og skrifa og var það hans eina skólaganga. - En afi minn tók oft drengi til sín og kenndi þeim undir skóla eins og það var kallað. - Þetta dugði Páli til þess að hann varð vel ritfær og sveitarskáld Laugdæla og oddviti þeirra eftir Stefán Stephensen. Bjarni skólastjóri kenndi okkur félagsfræði og fór frjálslega með kennsluefnið. Sagði hann m.a. sögur af Kiðjabergsheimilinu í tímum og tók þá fram að ég væri ættaður þaðan. Fór þetta ógurlega í taugarnar á mér. Annars var Bjarni alveg einstakur húsbóndi og mikill atorkumaður, sérstaklega við uppbyggingu skólans. A þessum árum var skólahúsið sprungið utanaf nemendafjöldanum sem fór sífellt stækkandi og beitti hann sér fyrir byggingu nemenda- og kennarabústaðanna í Björk, Grund og Mörk. Einnig lagði hann grunn að menntaskólanámi á Laugarvatni. A Hvanneyri var Sverrir í Hrosshaga samtímis mér, en Fríða var þá að vinna þar sem starfsstúlka. L-B: Svo við snúum okkur aftur að búskapnum hér í Brœðratungu, hvað getur þú sagt mér afbúskap ykkar Sigríðar? Sveinn: Já, við Sigríður giftum okkur á 10 ára afmæli lýðveldisins, 17. júní 1954, og frá þeim degi töldumst við fyrir ákveðnum hluta búsins. Það sambýli hélst til áramóta 1966-67, þegar pabbi fellur frá. Við bjuggum svo ein hér þar til fyrir nokkrum árum, að Kjartan fer að búa með okkur. Nú eru hann og Guðrún, sambýliskona hans, búin að taka við öllu búinu, frá og með síðustu áramótum (2001). L-B: Hvernig er það, er Brœðratunga ennþá ríkisjörð? Sveinn: Nei, við keyptum jörðina um 1992. Það hafði verið í býgerð áður, en þá átti ég að kaupa öll þau tún, sem ég hafði ræktað á jörðinni, og það gat ég ekki fellt mig við. Seinna var þessu breytt og ábúendum gefinn kostur á því að kaupa jarðirnar á viðráðanlegu Nýja íbúðarhúsið í Brœðratungu.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.